Morgunblaðið - 25.11.2000, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 25.11.2000, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 55^ MINNINGAR + Valdimar Jóns- son, fyrrverandi forstjóri, Engjaveg 10 í Mosfellsbæ, fæddist í Reykjavík 3. mars 1927. Hann andaðist á gjör- gæsludeild Land- spítalans í Fossvogi mánudaginn 20. nó- vember 2000. Foreldrar Vald- imars voru Sigurð- ur Jón Guðmun- dsson forstjóri, f. 28.07.1893, d. 01.05.1977, og Jór- unn Guðrún Guðnadóttir, f. 08.10.1895 d. 06.10.1981. Systkini Valdimars: Helga, f. 06.04.1919, kvænt Einari Gísla- syni, sem er nú látin. Guðni, f. 13.10.1920, d. 23.06.1995, var giftur Halldóru Þorgilsdóttur. Ingólfur, f. 23.12.1921, d.22.06.1941. Sigurður Jón, f. 31.10.1923, d. 30.12.1923. Árni, f.21.02.1925, kvæntur Sólveigu Eggertz Pétursdótt- ur. Sólveig, f. 03.08.1929, d. 04.08.1997, kvænt Flemming Hólm. Guðmundur, f. 21.01.1937. Uppeldis- bróðir Valdimars er Guðmundur Gíslason, f. 12.07.1932. Valdimar kvæntist í september 1957 Rannveigu Sigurðs- son, f. 29.5.1932, d. 28.6.1970. Rannveig nam viðskipta- og listfræði í London. Hún starfaði m.a. við Danska sendiráðið í Reykjavík og fyrir Loftleiðir í Kaupmannahöfn. Hún var dóttir Viggó Emils Sigurðs- sonar, stórkaupmanns í Kaup- mannahöfn, og Fríðu Larsen Sig- urðsson húsmóður sem eru bæði látin. Valdimar var markaðs- og sölustjóri í íjölskyldufyrirtæki sínu Belgjagerðinni. Hann stofn- aði Heildverslun Valdimars Jóns- sonar ásamt eiginkonu sinni 1965 þar til hann seldi hana 1994 og settist í helgan stein. Börn Valdimars og Rannveigar eru: Björn Valdimarsson verslun- armaður, f. 08.01 1958, kvæntur Hafdísi Aðalsteinsdóttur fulltrúa, f. 01.06.1962. Börn þeirra eru tví- burarnir Emil Steinar og Thelma Björg, f. 25.03.1996. Michael Valdimarsson flugmaður, f. 22.08.1961, kvæntur Guðrúnu Ólöfu Jónsdóttur, ljósmóður og hjúkrunarfræðingi, f. 22.01.1959. Börn þeirra eru Þórunn Elísabet, f. 10.10. 1991 og Daníel Hlynur, f. 18.04.1993, stjúpsonur Ragnar Tjörvi Baldursson, f. 08.06.1983. Börn Valdimars frá því fyrir hjónaband eru Þorleifur Barði sagn- og fornleifafræðingur, f. 19.06.1950, búsettur í Noregi, kvæntur Evu Övrelight Valdi- marsson þroskaþjálfa. Börn þeirra eru Snorri lögfræðinemi og Fríða viðskiptafræðinemi. Þorbjörg Valdimarsdóttir hönn- uður, f. 17.09.1954. Uppeldisdótt- ir til margra ára Elísabet Alba Valdimarsdóttir f. 20. 09. 82. Sálumessa fer fram í Marfuk- irkju, Breiðholti, laugardaginn 25. nóvember kl 15. VALDIMAR JÓNSSON Elsku pabbi minn, þegar ég kvaddi þig um kvöldið, átti ég síður von að við kvöddumst í síðasta sinn. Þarna höfðum við setið og spjallað við séra Dennis, þinrvgóða vin, og töluðum um kirkjuna sem þér þótti svo vænt um og Alfreð biskup sem hafði verið góð- ur vinur þinn. Þessi dagur verður mér ávallt kær. Raunarganga þín hófst 1970 þegar við kvöddum mömmu sem fór svo snemma frá okkur og þann dag þegar við fengum fréttina áttum við hvorn annan að. Að takast á við okkur bræðurna frá þeim degi var mikið þrekvirki fyrir einstæðan faðir og halda öllu saman eins og áður og þetta gerðir þú pabbi minn þangað til að þú slepptir af okkur hendinni. Allt sem þú lifðir fyrir voru börnin, tengdabörnin, afabömin og systkinin þín, allir áttu sinn stað í hjarta þínu. Vinarhópurinn þinn var stór framan af en hann hefur líka horfið frá okkur. Vinna og eljusemi var þitt aðalsmerki alla ævi enda unnið frá 14 ára aldri. Að setjast í helgan stein átti að vera hvíldin frá hinu daglega amstri en tíminn varð of stuttur og það er erfitt að sæta sig við það. Þegar þú varst fluttur á gjörgæsl- una fékk ég sjokk. En innst inni taldi ég mig sjá ljós í myrkrinu og ég studdist við það ljós allan tíman uns það slokknaði skyndilega síðasta mánudag. Það að eiga góðan föður er ekki öllum gefið en það sem þú gafst mér er mér meira virði en allt gull veraldar. Ég veit að þú ert í góðum höndum umvafinn öllum sem þér þótti svo vænt um, mömmu, afa og ömmu og systkinum þínum. Guð blesssi minn- ingu þína. Núleggégaugunaftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mínverivörnínótt. Æ.virztmigaðþértaka, méryfirláttuvaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Þinn sonur, Björn Valdimarsson. Pabbi minn er dáinn. Það er svo óraunverulegt að missa pabba sinn og lífið fyllist tómlæti á þessari stundu. Samt er ég þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum saman. Við áttum mikinn tíma saman. Pabbi ól mig einn upp eftir að mamma dó og við vorum bara lítil börn. Við fónim að vera meira í kiingum pabba í vinn- unni og fórum saman í viðskipta- ferðalögin og pabbi var alla tíð minn besti og nánasti félagi og áttum sam- an flestar af mínum skemmtilegustu stundum saman bæði heima og er- lendis. Pabbi var alla tíð maður með mikla reisn og það var gaman að vera með honum sem mikill sjéntilmaður sem hann var. Ekki vantaði húmor- inn. Pabbi var ekki nema 13 ára þegar hann framfleytti tveimur bömum í gegnum Rauða krossinn í Noregi þegar það var hernumið af Þjóð- verjum og það var bara byrjunin í aðstoð sinni við aðra. Hann gaf mikið af sér og hugsaði vel um þá sem minna máttu sín. Pabbi gaf okkur öll tækifæri sem hægt er að bjóða manni og stuðning í hverju sem maður tók sér fyrir hendur. Pabbi minn var mikill gleðimaður og kunni að njóta lífsins. Það er hægt að skrifa og skrifa um svona yndislegan mann en ég ætla að hætta hér. Elsku pabbi minn.ég mun alltaf sakna þín og ég elska þig ætíð. Megi guð gæta þín. Michael. Elsku tengdapabbi minn. Það er erfitt að færa í orð þær tilfinningar og hugsanir sem bærast í bijósti mínu á stundu sem þessari. Þegar þú lagðist inn á sjúkrahúsið fyrir svo skömmu grunaði engan að þú værir svona mikið veikur. Þegar mér var síðan tjáð það síðastliðinn mánudag að þú ættir enga von setti mig hljóð- an. Ég átti kost á því að sitja hjá þér síðustu stundir ævi þinnar og er ég þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til þess. Mér er enn í fersku minni þegar ég hitti þig fyrst, því að þú vildir skoða mig mjög vel, því að þú vildir bara það besta fyrir strákinn þinn, ég upp- fyllti allar þínar kröfui- til þess. Þú varst líka stoltur þegai’ strák- urinn þinn gifti sig og þú varst hrók- ur alls fagnaðar. Þú hafðir þínai’ skoðanir og aðrir höfðu sínar en alltaf voru allir sáttir í lokin. Þú varst líka rosalega stoltur þeg- ar okkur Bjössa fæddust tvíburamir. Og þú fylgdist mjög vel með þeim þegar þú bjóst um tíma út í Bret- landi. Og þegar þú komst aftur heim komstu oft í heimsókn eða hringdir. Það eru svo margar minningar sem koma upp í hugann sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu og mun ég deila þeim með börnum mínum um ókomna framtíð. Þakka þér fyrir allt, elsku Valdi minn. Ég veit að það verður tekið vel á móti þér í nýjum heimkynnum og t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUNNAR ÁGÚST HELGASON, Skólavegi 2, Vestmannaeyjum, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 23. nóvember. Ingibjörg Lovísa Guðjónsdóttir, Páll Guðjón Ágústsson, Sigurbjörg Stefánsdóttir, Helga Guðbjörg Ágústsdóttir, Guðmundur Snædal Jónsson, Hrönn Ágústsdóttir, Sigurður Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á liorni Bcrgstaðastrætis, sínii 551 9090. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALDIMAR JÓNSSON, Engjavegi 10, Mosfellsbæ, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi, mánudaginn 20. nóvember. Sálumessa fer fram í Maríukirkju, Breiðholti, í dag, laugardaginn 25. nóvember, kl. 15.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. ég veit að Rannveig tekur vel á móti þér, líka systkini þín og foreldrar. Hvíl í friði, elsku Valdi minn. Hafdis Aðalsteins. Bless elsku afi Valdi. Núna ertu laus við allar þínar þján- ingar og við vitum að núna mun þér líða betm’ þegar þú hittir hana ömmu Rannveigu og foreldra þína aftur. Takk fyrir að vera okkur svona góður afi.Við ætlum að passa pabba vel fyrir þig. Eg fel í forsjá þína Guðfaðir,sálumína Þvínúerkomin nótt Um ljósið lát mig dreyma Ogljúfaengilgeyma Oll bömin þín, svo blundi rótt (M.Joch.) Guð geymi þig, elsku afi. Emil Steinar og Thelma Björg Björnsbörn. Elsku afi okkar er dáinn og við er- um mjög leið að hafa hann ekki leng- ur. Það var svo gott að hafa hann og við vorum svo heppin að fá að eiga heima með honum. Við sátum svo oft í fang- inu á afa þegar við vorum að horfa á barnatímann. Hann passaði okkur svo oft. Hann var svo góður afi og við söknum hans svo mikið. Við vildum að hann væri ekki dáinn. Við vitum að afi er núna hjá Rannveigu ömmu og er ekki lengur veikur og líður betur. Núna getur afi flogið um og hlaupið um allt. Afi þarf ekki lengur að labba með stafinn sinn og getur gert allt sem sem hann gat ekki gert í öll þessi ár. Við elskum þig, elsku afi minn, og söknum þín. Megi Guð og englarnir passa vel upp á þig. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús þér ég sendi, bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíðiJesúsaðmérgáðu. (Asmundur Eiríksson.) Þórunn Elísabet og Daníel Hlynur Michaelsböm. Móðurbróðir minn, Valdimar Jóns- son, er látinn, 73 ára að aldri. Hann var þriðja yngsta barn afa míns og ömmu, Sigurðar Jóns Guðmunds- sonar og Jórunnar Guðrúnar Guðna- dóttur. Valdi, eins og hann var kallaður, ólst upp í foreldrahúsum ásamt stór- um systkinahópi. Ungan að árum dreymdi hann um að gera flugmanns- starf að ævistarfi sínu og dvaldi í Am- eríku um skeið við flugnám, en vegna sjóngalla gat þessi draumur hans ekki ræst. Eftir heimkomuna frá Ameríku hóf hann störf við sölumennsku í Belgja- gerðinni, fyrirtæki fjölskyldu hans. Við þau störf vann hann uns fyrirtæk- ið var selt. Við þau tímamót stofnsetti hann eigið fyrirtæki, heildsölu, sem hann starfrækti til loka starfsævi^ sinnar. Mér auðnaðist að vinna við heildsölu hans um tveggja ára skeið og var sá tími að mörgu leyti lær- dómsríkur, þvi Valdi hafði mikla reynslu af öllu er varðaði sölu- mennsku og viðskipti. Samstarf okkar var ávallt gott, þótt hann byrsti sig stöku sinnum ef honum líkuðu ekki vinnubrögðin. Það var mikið áfall í lífi Valda þegar kona hans, Rannveig Sigurðsson, ung að árum, lést frá tveimur ungum son- um þeirra. Það voru erfiðir tímar fyrir Valda. En hann lét ekki sorgina yfir- ^ buga sig og með seiglu og dugnaði kom hann sonum sínum til fulls þroska. Valdi hafði létta lund, var skemmti- legur í viðræðum og aldrei nein logn- molla í kringum hann. Hann var vinur vina sinna og var hjálpsamur þeim sem minna máttu sín. Milli Valda og móður minnar, sem lést fyrh’ þremur árum, var mjög kært og reyndar milli allra systkina þeirra. Nú að leiðarlokum vil ég þakka þau góðu kynni sem ég hef haft af frænda mínum. Með þessum orðum kveð ég Valda frænda. Flemming Þór Hólm. Frágangur afmælis- og minning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það • eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn frerhur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (minning@- mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling biitist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegi’i lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGMAR HJÁLMTÝR JÓNSSON, lést þriðjudaginn 21. nóvember í Bergen, Noregi. Útförin auglýst siðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Már Sigmarsson, Margrét Ragna Kristínsdóttir, Stefnir Örn Sigmarsson, Valdís Eyjólfsdóttir, Sævar Þór Sigmarsson og barnabörn. + Eiginmaður minn, bróðir, faðir okkar og afi, ÁSMUNDUR STEINAR JÓHANNSSON lögfræðingur, er látinn. $ Ólöf Snorradóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Ásta Margrét Ásmundsdóttir, Snorri Ásmundsson, Jóhann Ásmundsson, Ásmundur Ásmundsson, Valur Ásmundsson og fjölskyldur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.