Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 26
26 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Eimskip með afkomuviðvörun vegna gengistaps á síðari hluta ársins
Gengistapið milljarður
„AEKOMA Eimskips er lakari á síð-
ari hluta ársins en áætlanir félagsins
gerðu ráð fyrir. Þyngst vegur um-
talsvert gengistap sem verður, að
öllu óbreyttu, á síðari hluta ársins
vegna veikingar íslensku krónunnar
en í óendurskoðuðu uppgjöri félags-
ins fyrir fyrstu tíu mánuði ársins var
gengistap félagsins orðið um 1.000
milljónir króna í samanburði við um
300 milljónir króna um mitt ár,“ seg-
ir í fréttatilkynningu frá Eimskip.
„Veiking íslensku krónunnar hefur á
móti almennt jákvæð áhrif á tekju-
myndun félagsins, en þess þáttar
hefur ekki gætt að sama marki á
þessu ári m.a. vegna mikillar sam-
keppni á flutningamarkaðinum. Af-
koma af flutningastarfsemi félagsins
hefur ekki batnað að neinu marki á
síðari hluta ársins, eins og gert var
ráð fyrir þegar sex mánaða uppgjör
félagsins var kynnt, einkum vegna
aukins olíukostnaðar og annarra
kostnaðarhækkana umfram áætlanir
félagsins. Talsverð óvissa er með af-
komu félagins í heild á árinu vegna
þróunar á gengi íslensku krónunnar
ogverðlags."
Þarf vart að koma á óvart
Ingimundur Sigurpálsson, for-
stjóri, Eimskips, segir að það kæmi
sér á óvart ef afkomuviðvörunin nú
kæmi mönnum á óvart. Þeir sem hafi
skoðað milliuppgjör Eimskips frá því
í sumar sjái auðvitað að gengisþróun
hafi veruleg áhrif á afkomuna. Við
það bætist svo verðlagshækkanir og
neikvæð þróun á hlutabréfamarkaði.
Fjárfestingarstarfsemi sé drjúgur
hluti af rekstri Eimskips og niður-
sveifla á markaðinum hafi því bein
áhrif á afkomuna. Aðspurður segir
Ingimundur að á þessu stigi liggi
ekki fyrir neinar ákvarðanir um
hækkun á farmgjöldum. Menn séu
búnir að vera að undirbúa ýmis mál,
kaupin á nýju skipunum og breyting
á siglingakerfi sé hagræðingaratriði
sem vonandi skili árangri strax á
næsta ári. Þá megi líka nefna að
ákvörðun hafi verið tekin um það að
standa að rekstri tölvuþjónustufyrir-
tækis með Tölvumyndum og Flug-
leiðum en það sé einnig gert í hag-
ræðingarskyni. Fyrir utan þessi
atriði séu stjórnendur Eimskips vita-
skuld að leita leiða til þess að lækka
kostnað og auka tekjur. Sitthvað sé
þess vegna í bígerð auk þeirra að-
gerða sem þegar hafi verið gripið til.
Ingimundur segir að Eimskip sé með
drjúgan hluta af tekjum bundinn í
evrum en aftur á móti séu ýmsir
samningar bundnir í Bandaríkjadali,
s.s. leiga á skipum þannig að mis-
vægið þarna á milli hafi áhrif á af-
komuna. Gengislækkun hafi mjög
þung áhrif strax en gengisþátturinn
sé lengur að tikka tekjumegin og að
því leyti sé mun óheppilegra gagn-
vart ársreikningi að fá gengisfall í
lok árs en á fyrri hluta ársins.
í markaðsyfirliti Landsbanka ís-
lands í gær segir að fjallað hafi verið
um erfið rekstrarskilyrði samgöngu-
fyrirtækja í síðustu mánaðarskýrslu
og því komi þessi lækkun á gengi
Eimskipafélagsins ekki á óvart í ljósi
áframhaldandi erfiðra umhverfis-
þátta.
Lokagengi bréfa Eimskips var
7,30 á fimmtudag en lækkaði um 4%
eða í 7,0 í gær en viðskipti með bréf
félagsins námu liðlega 170 milljónum
króna á Verðbréfaþingi Islands í
gær.
í afkomuviðvörun sem Eimskip sendi frá sér i gær kemur fram að gengistap félagsins nemi einum milljarði fyrstu tíu mánuði ársins.
Fjárfestingarkostir leyn-
ast á Norðurlöndunum
ÁHUGAVERÐIR fjárfestingarkostir leynast á Norðurlandamörkuðunum,
að mati skýrsluhöfunda Landsbanka Islands. í nýlegri Mánaðarskýrslu
bankans er greint frá því að FTSE Norex 30 hlutabréfavísitalan hafí skilað
mun betri ársávöxtun að meðaltali síðustu fimm ár en bæði S&P 500 og
FTSE 100 hlutabréfavísitölumar í London. FTSE Norex 30 hefur að meðal-
tali skilað 34% ársávöxtun síðastliðin fimm ár.
RAFRÆN SKRÁNING HLUTABRÉFA
STEINULLARVERKSMIÐJUNNAR HF.
Mánudaginn 22. janúar 2001 verða hlutabréf Steinullarverk-
smiðjunnar hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfa-
skráningu íslands hf. Frá þeim tíma ógildast hlutabréf félags-
ins sem eru útgefin á pappírsformi í samræmi við heimild í
ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna
eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um
breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignar-
skráningar á verðbréfum, og reglugerð nr. 397/2000, um raf-
ræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja
nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært
í hlutaskrá Steinullarverksmiðjunnar hf., að staðreyna skrán-
inguna með fyrirspurn til skrifstofu Steinullarverksmiðjunnar hf.,
Skarðseyri 5, Sauðárkróki, fyrir nefndan dag. Ennfremur er
skorað á þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra
hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við full-
gilda reikningsstofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verð-
bréfafyrirtæki).
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reiknings-
stofnun, sem hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu
(slands hf., að hafa umsjón með eignarhlut sínum í félaginu.
Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta bréfleiðis.
Stjórn Steinullarverksmiðjunnar hf.
Á sama tíma hækkaði S&P um
21% á ári að meðaltali og FTSE
100 skilaði aðeins 16% ársávöxtun
að meðaltali. Ekki var tekið tillit til
gj aldmiðlaáhættu.
Hátt olíuverð kemur
norska markaðnum vel
í Mánaðarskýrslunni er gefið
stutt yfirlit yfir markaðina í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð. Norski
hlutabréfamarkaðurinn hefur kom-
ið betur út á þessu ári en margir
aðrir hlutabréfamarkaðir, að því er
fram kemur í skýrslunni. Þetta
skýrist helst af því að hækkandi ol-
íuverð hefur styrkt gengi margra
stórra félaga í Kauphöllinni í Ósló.
Hlutabréf í Ósló hækkuðu á sama
tíma og Dow Jones og FTSE vísi-
tölurnar lækkuðu. Hlutabréf eins
félags, Frontline, hafa hækkað
meira en annarra, eða um 255% frá
áramótum. Frontline stundar olíu-
flutninga á milli heimsálfa.
Norsk Hydro ASA er verðmæt-
asta hlutafélagið í Kauphöllinni í
Ósló en markaðsvirði fyrirtækisins
er nú um 102 milljarðar norskra
króna eða um 960 milljarðar ís-
lenskra króna. Frá áramótum hef-
ur gengi bréfa Norsk Hydro hækk-
að um tæp 12% en ársávöxtun
hefur verið um 15% að meðaltali
síðustu 15 ár.
Gengi hlutabréfa
úrvalsvísltölufyrirtækja
Greint er frá því að viðskipti með
0
cl
www.microtouch.com
SNERTISKJÁIR
IÐNAÐARTÆKNI ehf.
Þverholtl 15A, sími 562 7127
hlutabréf á danska markaðnum
náðu nýju hámarki í október þegar
verslað var með hlutabréf fyrir
85,3 milljarða danskra króna eða
um 850 milljarða íslenskra króna.
KFX hlutabréfavísitalan náði einn-
ig nýju hámarki. í síðasta mánuði
voru kynntar niðurstöður danskrar
rannsóknar á þá leið að mánuðinn
áður en félag verður hluti af KFX
úrvalsvísitölunni hækkar það um
10% meira en markaðurinn í heild.
Á sama hátt lækkar félag sem tek-
ið er út úr vísitölunni um 14-15% á
síðustu sex mánuðum fyrir úrfell-
inguna. Þessi niðurstaða er í sam-
ræmi við rannsóknir á S&P 500
vísitölunni, að því er fram kemur í
skýrslunni.
Mikil lækkun hlutabréfa Tele
Danmark miðað við önnur félög
vekur einnig athygli skýrsluhöf-
unda. Hagnaður fyrirtækisins
minnkaði á milli ára og gengi
hlutabréfanna lækkaði verulega í
kjölfar birtingar síðasta ársfjórð-
ungsuppgjörs. Frá áramótum hefur
gengi Tele Danmark lækkað um
25% en KFX vísitalan hefur hækk-
að um tæp 35%. í skýrslunni er
greint frá því að um 60% erlendra
sérfræðinga hafa mælt með kaup-
um á hlutabréfum Tele Danmark
sl. tólf mánuði með þeim rökum að
vöxtur og afkoma séu nokkuð stöð-
ug.
Góð afkoma Skandla
I Mánaðarskýrslunni er fjallað
um Ericsson og Skandia af sænsku
fyrirtækjunum sem hafa bréf sín
skráð í Kauphöllinni í Stokkhólmi.
Afkoma Ericsson hefur ekki verið í
samræmi við væntingar og standa
breytingar á starfseminni yfir.
Skandia er alþjóðlegt tryggingafyr-
irtæki með starfsemi í tuttugu
löndum. Bent er á að afkoma fyrir-
tækisins hafi verið með ágætum
undanfarið og að Skandia hafi skil-
að samfleyttri veltuaukningu síð-
astliðna 22 ársfjórðunga.
STUTTFRÉTTIR
Skuldabréfa-
útgáfa stækk-
uð um 105
milljónir evra
• ÍSLANDSBANKI-FBA hefur stækk-
aö útgáfu skuldabréfa á alþjóölegum
markaöi um 105 milljónirevra, oger
skuldabréfaútgáfa bankans þá oröin
samtais 355 milljónirevra. Þessi
skuldabréfaútgáfa er sú stærsta sem
íslenskur útgefandi hefur staöið fyrir
á alþjóölegum markaði til þessa aö
því er fram kemur í fréttatilkynningu
frá bankanum. Umsjón meö út-
gáfunni höföu Barclays Capital og .
Bayerische Hypovereinsbank, en
auk þeirra stóöu átta aörir erlendir
bankar að útgáfunni.
í fréttatilkynningu bankans segir aö
meö stækkun skuldabréfaútgáfunnar
sé komið til móts viö mikla eftirspurn
evrópskra fagfjárfesta. Ennfremur
geri stækkunin útgáfuna og bréfin
sterkari á alþjóðlegum markaði þegar
til lengri tíma sé litiö, og aö þessi
fyrsta stóra opinbera skuldabréfaút-
gáfa Íslandsbanka-FBA eftir samein-
ingu undirstriki velgengni fyrirtækis-
ins á alþjóðlegum fjármagnsmarkaöi
og styrki bankann sem útgefanda í
samanburði viö sambærilega banka í
Evrópu. Íslandsbanki-FBA undirbýr nú
alþjóðlega víxlaútgáfu tyrst íslenskra
fyrirtækja, og mun útgáfan aö mati
bankans styrkja frekarfjármögnunar-
grunn bankans.
Netverk og Tal
gera þróunarsamn-
ing vegna GPRS
• NETVERK og Tal hafa gert samning
um þróunarsamstarfvegnaGPRS-
tæknibúnaðarins. Netverktekuraö
sér prófanir á búnaðinum auk þess
sem samstarfið felst í aö auka áreiö-
anleika netþjónustu yfir GPRS, fullnýt-
ingu á bandbreidd og aö auka sam-
skiptahraöann.
Tal varö fyrst íslenskra fjarskiptafyr-
irtækja til að taka í notkun GPRS-
þjónustu í síöustu viku, oggeturfyrir-
tækiö nú boöió vióskiþtavinum sínum
hraövirk þráölaus samskipti viö Net-
iö, að því erfram kemurífréttatilkynn-
ingu. „Markmiö þessa samstarfs er
aö gera sem mest úr þeirri tæknilegu
forystu sem bæöi fyrirtækin hafa náð
á þessu sviöi ogtryggja aö fyrirtækin
veröi áfram í forystu," segir Guðjón
Reynisson, sölustjóri hjáTali hf.
Netverk er fyrsta og eina fyrirtækiö
sem býöur upp á lausnir sem draga
úrtöfum á sendingum um þráðlaus
kerfi, GSM, GPRS, 3G oggervihnetti.
Lausnir Netverks stytta sendingatíma
meö betri nýtingu á bandbreiddinni
auk þess sem áreiöanleiki gagna-
sendinga eykst, þar sem gagnaflutn-
ingur heldur áfram þar sem frá var
horfiö ef sending hefur rofnaö.
Konum eignuð
fleiri stjórnarsæti
Ósld. Morgunblaðið.
• Á NÝJU ári veröur lagt fram frum-
varp á norska Stórþinginu, þess efn-
is aö 40% stjórnarsæta í norskum fyr-
irtækjum skuli eignuö konum. Aö því
er fram kemur í Dagens Næringsliv
eru konur nú 12% af stjórnarmönnum
í 25 stærstu fyrirtækjum í Noregi.
Norskijafnréttismálaráöherrann,
Karita Bekkemellem Orheim, hefur
samþykki nýafstaöins landsfundar
Verkamannaflokksins sértil halds
og trausts og segir Ijóst aö kynja-
kvótafrumvarpiö sé nauösynlegt eftir
öll þau hneykslismál sem gengiö
hafa yfir norskt atvinnulíf undanfarna
mánuöi. Andstæöingar kynjakvóta
óttast að vanhæfar konur veröi vald-
arístjórnirfyrirtækja en Orheim segir
að vanhæfnin sé þegartil staðarog
nýtt blóö þurfi í atvinnulífiö. Fyrst um
sinn muni reglurnargilda um fyrirtæki
sem hafa hlutabréf sín skráð á mark-
aöi, en stór ríkisfyrirtæki eins og
Statoil fái þó ekki undanþágu.
Orheim vonasttil þess aö þegar
fleiri konur sitji I stjórnum norskra fyr-
irtækja veröi þaö til þess aö fleiri
verði ráönar í æöstu stjórnunarstöö-
ur. Um þessar mundir stýra konur níu
af 500 stærstu fyrirtækjum Noregs.