Morgunblaðið - 25.11.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 33
Morgunblaðið/Asdís
framkvæmdastjóri 10-11-verslananna, í njrju sólar-
hringsversluninni.
Hollustuvernd rfkisins
Ekki gripið til aðgerða
vegna Crayola-vaxlita
MIÐAÐ við fyrirliggjandi upplýs-
ingar þykir Hollustuvernd ríkisins
ekki ástæða til sérstakra aðgerða
vegna frétta um að leifar af asbésti
hafi fundist í Crayola-vaxlitum að
því er fram kom í samtali við Sig-
urbjörgu Gísladóttur, forstöðu-
mann eiturefnasviðs.
Sigurbjörg sagðist ekki hafa
fengið staðfestingu á því að
Crayola-vaxlitir hefðu verið bann-
aðir í Danmörku og Noregi eins og
haft var eftir breskum fjölmiðlum á
Neytendasíðum Morgunblaðsins á
fímmtudag. „Framleiðendurnir
virðast sjálfir, á grundvelli niður-
staðna ákveðinna rannsókna, hafa
ákveðið að taka Crayola-vaxlitina
af markaði í Danmörku. A hinn
bóginn hef ég enga staðfestingu
fengið á því að vaxlitirnir hafi verið
teknir af markaði í Noregi,“ sagði
hún.
Hún sagði einnig að grunur væri
um að ætlaðar leifar af asbesti í
ákveðnum sýnum gætu verið önnur
trefjaefni en asbest og það væri
verið að kanna nánar. „Rétt er að
asbest er krabbameinsvaldandi
efni og þess vegna voru innflutn-
ingur og notkun þess bönnuð nema
í undantekningartilvikum hér á
landi árið 1983. Engu síður er vert
að hafa í huga að hættan tengist
fyrst og fremst innöndun og hefur
áhrif á lungun. Ef efnið er bundið í
vaxlitum eru afar litlar líkur á að
það losni út í andrúmsloftið. Borði
barn slíka liti eru yfirgnæfandi lík-
ur á því að liturinn fari alla leið í
gegn og er því ekki talin ástæða til
að hafa af því sérstakar áhyggjur,“
sagði hún og tók fram að miðað við
fyrirliggjandi upplýsingar þætti
ekki ástæða til aðgerða. „Við höld-
um áfram að afla upplýsinga og ef
ástæða þykir verður að sjálfsögðu
gripið til aðgerða. Hollustuvernd
ríkisins viðhefur alltaf sérstaka
varúð þegar um áhættu varðandi
börn er að ræða.“
Onnur sólarhrings
verslunin
Hans Petersen
Þjónusta vegna staf
rænna myndavéla
VERSLUNARKEÐJAN 10-11
opnaði aðra sólarhringsverslun
sína í gær. Verslunin er í Setbergi í
Hafnarfirði og verður opin alla
daga nema lögbundna frídaga.
Þórður Þórisson, framkvæmda-
sljóri 10-11, segir að viðtökumar
við fyrstu sólarhringsverslun 10-
11 í Lágmúla hafi farið fram úr
björtustu vonum. Með nýju versi-
Ný antik-
verslun
NÝ verslun undir heitinu Antik og
list var opnuð við Engjateig 17 (List-
húsinu í Laugardal) fyrir skömmu.
í fréttatilkynningu segir að
áhersla sé lögð á vönduð frönsk
borðstofuhúsgögn frá tímabilinu
1880-1920. í versluninni fást einnig
yfir 100 ára gamlir rússneskir íkonar
ásamt lömpum, dúkum, myndum og
klukkum í gömlum stíl.
Eigandi verslunarinnar er Aðal-
heiður Karlsdóttir. Verslunin er opin
frá kl. 14.00 til 18.00 alla virka daga
og 14.00 til 17.00 á laugardögum.
Morgunblaðið/Ásdís
Aðalheiður í nýju versluninni.
Nýtt
Jólalistar
komnir
B. MAGNÚSSON hf. við Austur-
brún 3 hefur sent frá sér Kays- og
Argos-jólalista.
Fram kemur í
upplýsingum frá
fyrirtækinu að
með því að styðj-
ast við listana
megi auðveldlega
gera jólainnkaup-
in heima í stofu.
Úrvalið sé ótrú-
legt og ætti að
geta höfðað til allra. Um tvær vikur
tekur að fá vöruna senda heim.
uninni sé því verið að svara þörf-
um og óskum neytenda. Staðsetn-
ingin gæti hentað ferðalöngum á
leið til eða frá Leifsstöð sérstak-
lega vel.
Hann sagði að eins og í öðrum
10-11-verslunum yrði vöruúrval
gott, t.d. yrði alltaf ferskt græn-
metisborð. „Að sjálfsögðu verður
sérstaklega lagt upp úr hreinu og
snyrtilegu umhverfi,“ sagði hann.
„Einnig verður lögð áhersla á fjöl-
breytt úrval skyndirétta, samloka
og kaffibrauðs til að svara þörfum
þeirra sem eru á ferli á næturlagi.“
Til stendur að sérstakur hópur
fólks vinni næturvaktir í verslun-
inni. Oryggisvörður verður á vakt
allar nætur og þar að auki hefur
verið komið upp eftirlitsmyndavél-
um.
I tilefni opnunarinnar verður
boðið upp á margvísleg tilboð í
versluninni frá 24 til 10 á sunnu-
dag.
MIKILL áhugi er á jólahlaðborðum
meðal landsmanna, en jólahlaðborða-
tími veitingahúsa er að hefjast um
þessar mundir. Þau veitingahús sem
bjóða upp á hlaðborð eiga samkvæmt
reglum að hafa svokallað Gámes-eft-
irlitskerfi sem tekur til hlaðborðsins.
í lok árs 1997 samþykkti Heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur sérstakar reglur
um hlaðborð í framhaldi af könnun
sem gerð var árið áður. „Gámes er
aðferðafræði sem beitt er til að
tryggja sem best öryggi við fram-
leiðslu og dreifingu matvæla. Reglur
Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur taka
mið af þessari aðferðafræði. Umrædd
könnun sýndi fram á að ástandið var
ekki nægilega gott,“ segir Rögnvald-
ur Ingólfsson, sviðsstjóri matvæla-
sviðs Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ur. „Það helsta sem kom í Ijós í
könnuninni var að hitameðferð mat-
væla var röng í mörgum tilvikum, þá
sérstaklega hvað varðar kælingu
meðan matvæli stóðu frammi."
Skýrsla um könnunina og reglum-
ar voru kynntar fyrir veitingamönn-
um, viðbrögð þeirra voru góð og
ástandið hefur batnað til muna eftir
það, að sögn Rögnvaldar.
„Hins vegar eru alltaf að koma
fram ný veitingahús sem bjóða upp á
jólahlaðborð þannig að mikilvægt er
að eigendur þeirra hafi samband við
okkur til að fá ráðleggingar."
Búnaður til að halda matvælum
heitum eða köldum
Umræddar reglur taka til allra
hlaðborða, ekki bara jólahlaðborða.
„Hvað varðar hita- og kælibúnað
segir í reglum að ávallt skuli miðað
Á HEIMASÍÐU Hans Petersen er
hægt að fá ókeypis forrit, sem eink-
um er ætlað þeim sem eiga stafræn-
ar myndavélar. Slóðin er www.hans-
petersen.is.
Elín Agnarsdóttir, rekstrarstjóri
verslana fyrirtækisins, segir að staf-
rænar myndavélar séu orðnar býsna
algengar hér á landi og mjög margir
vinni sjálfir með myndirnar í tölvum
sínum. „Islendingar eru fljótir að
taka við tækninýjungum og hafa
gaman af að breyta myndum sínum
og bæta þær í tölvum sínum. Forritið
okkar, sem heitir Fotowire, tengir
viðskiptavini við fullkomnustu fram-
köllunarvél landsins. Það metur til
dæmis hvort upplausn mynda er
nógu góð og lætur vita ef svo er ekki.
Viðskiptavinir geta sent okkur
myndir sínar með aðstoð forritsins
við að búnaður sé til að halda heitum
matvælum heitum á hlaðborðum og
þá er miðað við 60 gráður á Celsíus
eða meira, “ segir Rögnvaldur og
bætir við að einnig skuli vera búnað-
ur á hlaðborðum til að halda kældum
matvælum köldum ef gestir setjast
ekki allir til borðs á sama tíma eða
matvælin standa lengur frammi en
tvær klukkustundir. Að hans sögn
verður hitastigið að vera 8 gráður á
Celsíus eða lægra.
„Þegar kemur að framreiðslu þarf
að bera heitan mat fram nægilega
heitan og það ber að hafa í huga að
oftast dugar hitunarbúnaður á hlað-
borði aðeins til að viðhalda hitastig-
inu en ekki til að hita matinn upp.“
I reglununum kemur jafnframt
fram að geyma skuli matvæli sem
bera á fram kæld í kæli þar til að
framreiðslu kemur. Þá verður að hafa
áhöld við hvern rétt til að hindra
krossmengun á milli rétta.
Áfram verður fylgst með með-
ferð matvæla á hlaðborðum
„Ef nýta á leifar af heitum mat skal
kæla þær í grunnum ílátum eða litl-
um skömmtum eins hratt og kostur
er og hita skal matinn upp undir suðu
áður en hann er borinn fram aftur.“
Þá segir Rögnvaldur jafnframt að
ef nýta eigi leifar af kældum matvæl-
um skuli meta hvort hugsanlega hafi
átt sér stað krossmengun frá öðrum
réttum eða þær náð að hitna yfir 8
gráður á Celsíus.
„Mikilvægt er að bera ekki fram
meiri mat en svo á borð að leifar séu
innan þeirra marka að réttlætanlegt
sé að fleygja þeim. Þá ber eigendum
og pantað þær prentaðar á hágæða-
pappír, boli, bolla eða aðra hluti. Þeir
ákveða sjálfir hvort þeir láta senda
myndirnar heim til sín eða sækja
þær í verslun okkar á Laugavegin-
um.“
Myndirnar heim
Elín segir að nú, þegar tími jóla-
korta fer í hönd, geri hún ráð fyrir að
margir muni notfæra sér heimsend-
ingarþjónustuna. „Eg reikna með að
flestir vilji spara sér sporin og forð-
ast biðraðir. Þeir sem ekki eiga staf-
rænar myndavélar geta skilið filmur
sínar eftir í verslunum okkar og
fengið myndirnar sendar heim í
póstkröfu. Hjá Hans Petersen er
hægt að fá eigin myndir þrykktar á
ýmsa hluti, til dæmis klukkur, nær-
fatnað, sokka, handklæði, kerti,
að fleygja matarleifum ef einhver vafi
leikur á gæðum þeÚTa.“
Að sögn Rögnvaldar hefur Heil-
brigðisnefnd Reykjavíkur iylgst með
meðferð matvæla á jólahlaðborðum
undanfarin ár og mun hún halda því
áfram. „Einnig höfum við átt ágætt
samstarf við samtök ferðaþjónust-
unnar við að kynna þær reglur sem
tryggja öryggi matvæla á hlaðborð-
Hjá Hans Petersen er hægt að
láta prenta myndir á hluti eins
og drykkjarmál.
glasamottu, derhúfur og barmmerki.
Eigendur stafrænna myndavéla geta
pantað þessa hluti og aðra með því
að senda myndir sínar gegnum Foto-
wire-forritið og senda jafnframt
tölvupóst til myndver@hanspeter-
sen.is.
Gullsmiðir
um.
Þar sem gæði og gott verð fara saman...
rTilboðýik^na^90_
SkvrturaðeinsW-990_
polopevsur k3900,-
Flísiakkar • 5Q0
Flispeysur
HakkaIf' 5 1.490,-
Opið virkadaga10-18.
Laugardaga og sunnudaga 11-18.
^ssasss*
'OWýya
markaðstorgið
í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
Reglur Heilbrigðiseftirlits Reykjavfkur um hlaðborð
Astandið hefur batnað