Morgunblaðið - 25.11.2000, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Bólgueyðandi lyf
gegn Alzheimer?
Hvað er
Alzheimer?
New York. Reuters.
ALGENG bólgueyðandi lyf kunna að
vinna gegn því að eldra fólk taki Alz-
heimer-sjúkdóminn. Þessi er alltjent
niðurstaða vísindamanna í Ástralíu.
Sífellt fleiri vísbendingar koma nú
fram um að lyf á borð við Aspirin geti
dregið úr líkunum á því að Alzheim-
er-sjúkdómurinn taki að hrjá eldra
fólk. Hins vegar hefur ekki legið fyrir
í hvaða skömmtum taka ætti slík lyf í
von um þessa virkni. Nú liggja fyrir
niðurstöður rannsókna, sem rúmlega
600 karlar og konur, 75 ára og eldri,
tóku þátt í, og gefa þær til kynna að
litlir skammtar kunni að duga í þessu
viðfangi.
Rannsókn þessari stýrði dr. G.
Anthony Broe, sem starfar við Há-
skólann í Sydney í Ástralíu, en gerð
er grein fyrir niðurstöðunum í nóv-
emberhefti tímaritsins Archives of
Neurology.
Þótt hér ræði um algeng lyf á borð
við Aspirin hafa menn löngum haft
áhuga á hvaða skammtastærð mæla
beri með í þeirri von að notkun lyfj-
anna geti hamlað gegn alzheimer.
Um lyf eins og Aspirin og fleiri gildir
að þau getur verið hættulegt að nota í
stórum skömmtum þar eð þau geta
þá valdið magablæðingum og lifrar-
skemmdum.
Litlir skammtar duga
í tilfelli Ástralanna kom í ljós að
flestir þeir, sem þátt tóku í rannsókn-
inni, notuðu lyfin aðeins í litlum
skömmtum eða þeim sem mælt er
með til að draga úr líkunum á blóð-
tappa. Könnunin leiddi hins vegar í
ljós að lyfin virðast einungis duga
gegn Alzheimer en ekki öðrum birt-
ingarmyndum vitglapa.
Ekki er vitað hvers vegna Aspirin
og skyld lyf kunna að draga úr líkum
á því að fólk taki Azheimer-sjúkdóm-
inn. Þótt við kunni að blasa sú skýr-
ing að þau dragi úr bólgum í heila
hafa rannsóknir ekki leitt þá virkni í
ljós, að sögn Anthony Broe og félaga
hans. Telja þeir líklegra að skýring-
anna sé að leita í þeim áhrifum sem
lyfin hafa á hjarta þeirra sem þau
nota.
Aspirin og viðlíka lyf bæta blóð-
streymið til hjartans með því að
draga úr „viðloðun" blóðflagna,
frumna, sem ýta undir að blóð hlaupi
í kekki og tappi myndist. Broe og fé-
Associated Press
Alzheimer-sjúkdómurinn lýsir sér m.a. í minnisleysis
sem ágerist og lyktar með því að sjúklingurinn er í litl-
um sem engum tengslum við umhverfi sitt.
lagar hans telja einnig hugsanlegt að
lyfin auki virkni frumna í æðaveggj-
um.
Algenglyf
Aspirin inniheldur virka efnið
acetýlsalicýlsýru. Algeng lyf á ís-
landi á borð við Magnýl innihalda
einnig þetta efni. Þá leiddi rannsókn-
in í Ástrah'u einnig í Ijós að lyf, sem
innihalda virka efnið ibuprofen, virt-
ust hafa sömu áhrif hvað hættuna á
Alzheimer varðar. í íslensku lyfja-
ALZHEIMER-sjúkdómur leiðir
til hrörnunar heilans og vitglapa
(dementia). Einkenni sjúkdóms-
ins koma fyrst og fremst fram í
lélegu minni og þverrandi hæfni
til að takast á við lífið og tilver-
una. Sjúklingurinn missir raun-
veruleikatengsl. Sjúkdómurinn
þróast hægt á nokkrum mánuð-
um allt upp í hálft ár. í byi-jun
getur verið erfitt að átta sig á
hvort um er að ræða sjúkdóm,
það kemur þó fljótlega í ljós
þegar einkennin fara að segja til
sín.
Sjúkdómurinn er einkum al-
gengur hjá rosknu fólki en til
eru dæmi um að hann herji á
ungt fólk. Sjúkdómurinn þróast
hægt en bítandi og leiðir til
dauða eftir 7 til 10 ár.
Alzheimer-sjúkdómur er al-
gengasta orsök andlegrar hnign-
unar, vitglapa. Á íslandi hafa
u.þ.b. 1.500 einstaklingar greinst
með Alzheimer-sjúkdóm miðað
við tölur frá nágrannalöndum.
Orsakir Alzheimer
Alzheimer-sjúkdóm-
ur veldur því að sjálf-
ar taugafrumurnar (í
mörgum hlutum heil-
ans) eyðileggjast
hægt og sígandi,
sennilega vegna
ójafnvægis í boð-
efnaskiptum í
heilanum.
Sjúkdómurinn
sem slíkur er
ekki arfgeng-
ur en hins
vegar virðist
hættan auk-
ast ef foreldr-
ar hafa þjáðst
af honum.
Einkenni
Á byrjun-
arstigi Al-
zheimer-sjúkdóms er sjúklingur-
inn meðvitaður um að minnið
byrjar að bresta. Þegar á líður
minnkar þessi meðvitund.
Tímabilið fram að þessu getur
valdið óþægindum.
Tilfinningar eins og hræðsla,
ringulreið og vonleysi geta verið
áberandi. Þessar óþægilegu til-
finningar hverfa hjá sjúklingn-
um þegar sjúkdómurinn ágerist.
Hins vegar eykst vandi aðstan-
denda.
Batahorfur
Án meðhöndlunar verður Alz-
heimer-sjúkdómur kominn á það
stig innan árs að sjúklingurinn
þarf að leggjast inn á stofnun,
sjúkrahús eða elliheimili. Vit-
glöpin versna stöðugt á næstu 7
til 10 árum og leiða loks til
dauða.
Sjálfshjálp
Ef einkenna verður vart skal
hafa samband við lækni til að
ganga úr skugga um orsakirnar
og byrja hugsanlega meðferð.
Sem aðstandandi skal forðast
aðstæður þar sem margt er um
manninn, mikill hávaði sem og
staði sem eru sjúklingnum
ókunnugir. Slíkar aðstæður
vekja óöryggi hjá sjúklingnum.
Meðferð og lyf
Hægt er að hægja á sjúk-
dómnum með lyfinu donepezil
(Ariceptá ) en ekki lækna hann.
Meðferðin á sér þá stað á tauga-
sjúkdómadeild eftir nákvæma
greiningu á sjúkdómnum.
Auk lyfjameðferðar er nauð-
synlegt að leita félagslegrar að-
stoðar því í fæstum tilvikum er
hægt að annast sjúklinginn
heima.
TENGLAR
Nánar á Netinu: www.netdoktor.is.
TENGLAR
Archives of Neurology:
http://archneur.ama-
assn.org/.
Aspirín kom á markað 1899 en virka efnið í því
er nefnist acetýlsalicýlsýra uppgötvaði maður
að nafni Felix Hoffmann 10. ágúst 1897. Myndin
sýnir umbúðir frá því um síðustu aldamót.
Hvað ernauðgun mikið áfall?
Gylfi Asmundsson sálfræðingur svarar spurningum lesenda
Spurning: Hvað er vitað um
langvarandi sálræn áhrif nauðg-
unar á fórnarlambið? Eru mörg
dæmi þess að konur, sem er
nauðgað, jafni sig aldrei eftir at-
burðinn?
Svar: Flestum rannsóknum ber
saman um að nauðgun sé eitt-
hvert alvarlegasta áfall sem fólk
verður fyrir, en langoftast verða
konur fyrir því. Þetta er al-
gengari glæpur en flestir gera
sér grein fyrir, þar eð aðeins lít-
ið hlutfall þeirra sem verða fyrir
nauðgun kæra atburðinn. Tölum
um fjölda fórnarlamba ber því
illa saman. Lægstu áætlanir
samkvæmt erlendum rannsókn-
um gera ráð fyrir að um 5%
kvenna verði einhvern tíma fyrir
nauðgun, en hæstu tölur eru
22%, þannig að fleiri en fimmta
hver kona verði einhvern tíma
fyrir nauðgun. I Bandaríkjunum
er talið að um 12 milljónum full-
tíða kvenna hafi verið nauðgað
og 40% þeirra oftar en einu
sinni. Ekki eru til tölur um áætl-
aðan fjölda nauðgana hér á
landi.
Þau áföll sem fólk getur orðið
fyrir á lífsleiðinni eru margvís-
leg, en flest leiða þau til sál-
rænna einkenna sem sam-
kvæmt skilgreiningu geta falið í
sér áfallaröskun. Helstu ein-
kenni slíkrar röskunar eru sár-
ar og ásæknar endurminningar
um atburðinn, sem bæði koma
fram í vöku og draumi, einkenni
eins og martraðir, spenna,
svefntruflanir, depurð og til-
hneiging til að forðast allt sem
minnir á atburðinn og gleyma
honum með misjöfnum árangri.
Sorg og missir eru nokkuð sem
flestir verða fyrir á lífsleiðinni
og þótt það sé hluti af almennri
lífsreynslu getur vanlíðan
margra þeirra orðið sár og lang-
varandi. Annars konar atburðir
ríða stundum yfir og vekja ógn
og skelfingu, eins og við þekkj-
um hér á landi, náttúruhamfarir
eins og eldgos, jarðskjálftar og
snjóflóð. Rannsóknir hafa verið
gerðar á sálrænum afleiðingum
slíkra atburða fyrir þolendur
þeirra og ber þeim allvel saman
um að 40-50% þeirra verði fyrir
Afallaröskun
áfallaröskun sem varir um nokk-
urra mánaða skeið, en um þriðj-
ungur búi við lengri áfallarösk-
un til margra ára með þeim ein-
kennum sem talin voru að ofan.
í niðurstöðum rannsóknar sem
gerð var á íbúum í Súðavík og á
Flateyri eftir snjóflóðin þar kom
fram að eftir 3-4 mánuði var
tæpur helmingur Flateyringa
haldinn einkennum sem upp-
fylltu skilyrði um áfallaröskun,
og á Súðavík voru um 35% með
slík einkenni rúmu ári eftir
snjóflóðið þar. Gera má ráð fyrir
að þetta hlutfall lækki með tím-
anum, en þó sé sennilegt að um-
talsverður fjöldi fólks sem lendir
í slíkum áföllum búi við sálræn
vandamál af þeirra völdum svo
árum skiptir. Það er athyglis-
vert að konur fá mun fremur
einkenni um áfallaröskun en
karlar. Á Flateyri voru þær 56%
og í Súðavík 46%. Þessar niður-
stöður eru í góðu samræmi við
sambærilegar rannsóknir er-
lendar.
Nauðgun er talsvert annars
konar áfall en missir og náttúru-
hamfarir. Hún er mun pers-
ónulegri reynsla sem vegur að
heiðri konunnar og sjálfsvirð-
ingu ofan á þá skelfingu sem oft
fylgir atburðinum, stundum ótta
um líf sitt. Það er því ekki að
undra þótt áfallaröskun sé mun
algengari undir þeim kringum-
stæðum, auk þess sem áður seg-
ir að konur fá fremur áfallarösk-
un en karlar almennt.
Bandarískar rannsóknir sýna að
um 80% kvenna sem hafa orðið
fyrir nauðgun fá einkenni um
áfallaröskun, sem hafa truflandi
áhrif á daglega aðlögun þeirra,
og hafa m.a. í för með sér kyn-
lífsvandamál og stöðugan ótta
tengdan atburðinum. Helmingur
hefur enn slík einkenni að 2-3
árum liðnum og umtalsverður
fjöldi situr í sárum það sem eftir
er ævinnar. Nýleg BA-ritgerð
við sálfræðideild Háskóla Is-
lands skýrir frá niðurstöðum
frumrannsóknar á afleiðingum
nauðgunar hjá 44 íslenskum
konum. Þar kemur fram að um
80% þeirra eru haldnar áfallar-
öskun, ef stuðst er við þau við-
mið sem almennt eru notuð.
Hjá sumum kvennanna eru
mörg ár liðin frá atburðinum.
Þessar niðurstöður eru í sam-
ræmi við það sem fundist hefur
við rannsóknir erlendis. Vænt-
anlega munu höfundar þessarar
rannsóknar kynna hana innan
tíðar.
Það er því ljóst af bæði er-
lendum og innlendum rann-
sóknum að nauðgun er bæði al-
gengt og mjög alvarlegt áfall,
sem veldur mörgum langvar-
andi vanlíðan og röskun á eðli-
legu lífi, sumum þannig að þeir
bíða þess aldrei bætur
• Lcsendur Morgunblaðsins gcta spurt sal-
fnvðinginn uin það scm þeim liggur d
l\jarta. Tekið er móti spurningum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 ísfma 569110
og brcfum cða símbrcfum merkt: Vikulok,
Fax: 5691222. Einnig gcta lcscndur sent
fyrirspumir sínar mcð tölvupósti a nctfang
Gylfa Ásmundssonar: gylfias(S)li.is.