Morgunblaðið - 25.11.2000, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
m
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 41
Lengd tíðarhrings:
0,8--------------------------------------------------
Fáir öruggir
dagar í hverj-
um tíðahring
HINGAÐ til hefur verið talið að allar
konui’ hafi egglos nákvæmlega 14
dögum áður en þær hafa á klæðum
og að þær, sem hafa reglulegan tíða-
hring, geti reiknað með að geta orðið
þungaðar á tímabilinu þegar 10 til 17
dagar eru frá því blæðingarnar á
undan hófust. Samkvæmt nýrri
rannsókn sem birt er í The Britísh
Medical Journai nú í mánuðinum
eiga þessar hugmyndir ekki við rök
að styðjast heldur eru konur eins
misjafnar að þessu leyti og þær eru
margar.
Rannsóknin var gerð vestur í
Bandaríkjunum og í henni tók þátt
221 heilbrigð kona, sem allar ætluðu
sér að verða barnshafandi. Þær
skráðu nákvæmlega niður hvenær
blæðingar hófust, hvenær þær nutu
ásta með maka sínum og þær tóku
þvagsýni hvern einasta morgun á
meðan á rannsókninni stóð svo vís-
indamennirnir gætu mælt magn
ákveðinna niðurbrotsefna östrógens
og prógesteróns. Samtals var fylgst
með 696 tíðahringjum. Að rannsókn-
inni lokinni höfðu 136 konur fætt lif-
andi börn.
Langflestar voru
fijóar á 12. og 13. degi
Tilgangur rannsóknarinnar var að
meta hvenær í tíðahringnum líkurn-
ar á þungun væru mestar. Þetta hef-
ur þýðingu bæði fyrir þau pör sem
langar að eignast barn sem og pör
sem ekki vilja eða geta notað getnað-
ai’varnir.
Tíðahringur kvennanna reyndist
mjög mislangur. Sumar höfðu 19
daga hring en hjá öðrum liðu allt upp
í 60 dagar á milli tíða. Flestar höfðu
þó 28 daga tíðahring.
Samkvæmt niðurstöðum vísinda-
mannanna voru 2% kvennanna
frjóar á 4. degi frá því blæðingar hóf-
ust, 17% á 7. degi og langflestar eða
54% á 12. og 13. degi. Við upphaf
rannsóknarinnar sögðust 16%
kvennanna hafa óreglulegan tíða-
hring. Þessar konur höfðu tilhneig-
ingu til að hafa egglos seinna og á
breytilegri tíma en hinar konurnar.
Rannsakendur segja til gamans
frá því í grein sinni að á tímum fyrri
heimsstyrjaldarinnar hafí þýskur
læknir skýrt frá því að 25 böm hafi
orðið til eftir að móðir þeirra og her-
maðurinn, faðir þeirra, höfðu ein-
ungis haft einar samfarir. Konurnar
voru allt frá því að vera á öðrum degi
í tíðahringnum til þess þrítugasta.
Rannsakendur segjast ekki hafa ný-
legri vangaveltur á þessum nótum í
fórum sínum en að samkvæmt sum-
um heimildum sé það afar sjaldgæft
að kona, sem hefur egglos fyrir 13.
dag tíðahringsins, sé fijó þann
hringinn. Niðurstöður þeirra voru á
aðra lund og komust þeir raunar að
hinu gagnstæða þegar kona, sem tók
þátt í rannsókninni, varð bamshaf-
andi á 8. degi eftir að tíðir hófust.
Niðurstaða vísindamannanna er
sú að einungis lítill hluti kvenna hafi
egglos nákvæmlega 14 dögum áður
en blæðingar hefjast og gildir þá
einu hvort konan hefur að jafnaði 28
daga tíðahring. Þeir segja að meira
en 70% kvenna séu frjóar annað
hvort fyrir 10. dag frá því síðustu
blæðingar hófust eða eftir þann 17.
Tíminn sem líður frá egglosi til blæð-
inga getur samkvæmt þeirra bókum
verið frá 7 dögum upp í 19 og það er
mun erfiðara að meta hvenær kona
með óreglulegan tíðahring er frjó en
kona sem hefur blæðingar reglulega.
Aðalhöfundur greinarinnar, Allen
J. Wilcox, segir að meginboðskapur
rannsóknarinnar sé sá að egglos geti
orðið á svo mismunandi tíma hjá
einni og sömu konunni að hún geti
aldrei verið ömgg um hvenær hún er
frjóust og líkumar á þungun mestar.
Þess vegna ráðleggja höfundarnir
pömm, sem hyggja á bameignir, að
njóta ásta tvisvar til þrisvar í hverri
viku og benda þeim, sem ekki em á
þeim buxunum, á að í hverjum tíða-
hring séu fáir dagar þar sem líkur á
þungun eru ekki einhverjar. Kona
getur jafnvel orðið barnshafandi á
þeim degi sem hún á von á að blæð-
ingar hefjist.
London. Reuters.
Verja Zyban
FYRIRTÆKIÐ Glaxo Wellcome Plc
hefur lýst yfir því að engin sönnun-
argögn liggi fyrir í þá vem að reyk-
ingalyfið Zyban geti valdið heila-
blóðfalli. Lyfið Zyban er nýtt á
markaði en það getur létt þeim lífið
sem ákveðið hafa að hætta að reykja.
Lyfjaeftirlit Bretlands (Medicines
Control Agency) hefur nú skráð um
1.300 tilfelli aukaverkana sem komið
hafa fram í tengslum við notkun lyfs-
ins. í sjö tilfellum er um að ræða að
viðkomandi fengu heilablóðfall. Zyb-
an kom á markað í Bretlandi í júní-
mánuði í ár.
í tilkynningu frá Glaxo Wellcome
Plc, sem framleiðir lyfið, segir að vel
kunni að vera að heilablóðfalls-
tilfellin tengist reykingum. „Talið er
að um 15 milljónir manna hafi fram
til þessa tekið inn bupropion (en svo
nefnist virka efnið í Zyban) um heim
allan og engin gögn liggja fyrir um
að aukin hætta á heilablóðfalli teng-
ist notkun þessa lyfs,“ sagði í yfir-
lýsingu fyrirtækisins. „Hins vegar
er vel þekkt að reykingamenn eru í
meiri hættu en aðrir þegar heila-
blóðfall er annars vegar,“ sagði þar
og-
Presslink
Kona ein, sem ttík þátt í rannstíkninni í Bandaríkjunum, varð þunguð á
áttunda degi tíðahrings.
TÓfÚ
minnkar
blýmagn
The New York Times.
HAFI menn áhyggjur af því að þeir
séu með of mikið blý í blóðinu ættu
þeir að reyna tófú, hlaup sem er
unnið úr sojabaunum.
Rannsókn á 1.000 íbúum kín-
versku borgarinnar Shenyang
leiddi í ljós að blýmagnið var 12%
minna í blóði þeirra sem borðuðu
a.m.k. 740 grömm af tófú á viku, en
þeirra sem borðuðu minna en 250
grömm.
„Tófú er kalsínrík fæða og við
teljum að kalsín hafi á einhvem
hátt áhrif á upptöku blýs í blóðið,“
sagði Xiping Xu aðstoðarprófessor
við Harvard-háskóla.
„Þetta er athyglisverð hugmynd,"
sagði Herbert Needlemanprófessor
við Pittsburgh-háskóla og sérfræð-
ingur í skaðlegum áhrifum blý-
mengunar á börn. Hann kvaðst
einnig vera þeirrar skoðunar að
kalsín keppti við blý um upptöku í
blóðið. „Jurtaprótín á að hægja á
blýupptökunni,“ bætti hann við.
Xu og fleiri vísindamenn voru að
rannsaka tengsl mengunar og fóst-
urláta og lítillar fæðingarþyngdar
bama þegar þeir komust að þessum
áhrifum sojabaunahlaupsins sem er
unnið með svipaðri aðferð og ostur.
Þeir höfðu valið Shenyang vegna
mikillar mengunar, einkum af völd-
um málmbræðslu í miðri borginni.
Þeir spurðu rúmlega 500 konur um
mataræði þeirra og í ljós kom að
því meiri sem tófúneysla þeirra var,
þeim mun minna blý var í blóði
þeirra.
Vísindamennimir spurðu síðan
um 500 karla um tófúneyslu þeirra
og niðurstaðan var sú sama.
- betra í baksturinn
OSTAOG
SMIÖRSALANSE