Morgunblaðið - 25.11.2000, Síða 50
150 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
j
Af ömm-
um og
öfum
„Þetta vœri auðvitað fyndið efþetta
væri ekki reglan alltafþegar kemur að
umfjöllun um konur, alvegsama hvað
þærgera, hversu langt sem þær ná og
hvernigsem þœrstanda sig. “
Eftir Hönnu
Katrinu
Friðriksson
Þau undur og stór-
merki gerðust í lið-
inni viku að bresk
amma vann milljón
pund í spurninga-
þætti. í sjónvarpsþaetti þessum
þurfa keppendur að svara fjölda
spurninga, sem verða sífellt
þyngri eftir því sem möguleik-
arnir á háum vinningi aukast.
Keppendur geta hætt í miðjum
klíðum og farið heim með þá
upphæð sem tekist hefur að ná
Uinunoc saman, en sá
* ronunr sem nær ajja
leið fær millj-
ónina. Fram
til síðustu
viku hafði
enginn náð milljóninni.
Þættirnir slógu svo rækilega í
gegn hjá Bretum að Banda-
ríkjamenn hermdu strax eftir
þeim og eru þættirnir „Hver vill
verða milljónamæringur" eitt al-
vinsælasta sjónvarpsefnið í þvi
mikla sjónvarpslandi. Sumir
sjónvarpsgagnrýnendur segja að
visu að það sé niðurlægjandi
fyrir Bandaríkjamenn hve miklu
léttari spurningarnar séu þar í
landi en hjá Bretum.
En svo var það amman í erf-
iða þættinum í Bretlandi. Amm-
an sem vann eina milljón punda.
Fyrirsögn á þessa leið bar ekki
með sér hvort voru meiri tíðindi,
milljónin góða eða sú staðreynd
að það var amma sem náði að
góma fúlguna. Hver hefði nú
getað ímyndað sér að ömmur
væru færar um slíkt og þvílíkt?
í fréttinni um ömmuna kom
líka fram, að konan er heilla 58
ára. Hún virðist ekki hafa fullan
starfa af því að vera amma, því
hún mun vera garðahönnuður
og svo hafa breskar fréttastofur
auðvitað látið fylgja með að hún
sé af aðalsættum. En fyrirsögn-
in var eftir sem áður að bresk
amma hefði unnið milljón pund.
Hvort ætli hafi verið algengara,
að fólk fylltist hrifningu, skellti
sér á lær og segði: „Sko þá
gömlu, eitthvað veit hún nú!“
eða að það hryllti sig yfir að enn
skuli konur á miðjum aldri vera
skilgreindar út frá barn- eða
barnabarneignum?
Kannski er vonlaust að ætlast
til að konur verði nefndar eitt-
hvað annað en mömmur og
ömmur. Hugsanlega er líklegra
að farið verði að skilgreina karl-
menn svona, til að hafa fullt
jafnræði. Hvemig hefði fólki
þótt fyrirsögnin: ,Afi skellir sér
í forsetáslaginn" þegar A1 Gore
ákvað að bjóða sig fram? Er
þetta líklegt?
Konur í kastljósi fjölmiðla
virðast eiga ákaflega erfitt með
að hrista af sér gamla hlékki.
Sem dæmi má taka að nú hittast
vart svo tveir Bandaríkjamenn á
fömnm vegi að þeir ræði ekki
um nýjustu stjörnuna á fjöl-
miðlahimninum, innanríkis-
ráðherra Flórída. Ráðherrann
heitir Katherine Harris, er 43
ára repúblikani og komst allt í
einu inn á hvers manns stofu-
gólf vegna lönguvitleysunnar í
forsetakosningunum í ríki henn-
ar.
Hún birtist í pontu og tjáði
sig um framkvæmd kosninganna
og almenningur í eilífri stjömu-
leit hrökk við og spurði hver
hún væri, þessi nýja kona. Á
næstu dögum komu svörin.
Katherine Harris mun vera af
efnuðum komin, hún starfaði við
fasteignasölu og hefur lengi ver-
ið virk í Repúblikanaflokknum.
Það komu líka fréttir sem Kath-
erine Harris hefði líklega viljað
að fæm síður hátt, um að hún
hefði einhverju sinni þurft að
skila vafasömum fjárframlögum
í kosningasjóði og að hún hefði
legið undir ámæli fyrir mikinn
ferðakostnað í embætti. Flest af
þessu rímaði ágætlega við
margan pólitíkusinn og almenn-
ingi var ekkert sérstaklega
skemmt.
Það var ekki fyrr en farið var
að ræða um það sem virkilega
skiptir máli sem almenningur og
grínistar allra gamanþátta tóku
við sér. Þessi kona, innanríkis-
ráðherra þeirra Flórídabúa,
þykir ekki hafa alveg nógu góða
hárgreiðslu og mætti alveg
bregða hárbursta í höfuðið á sér
af og til, það er skömm að þvi
hvað hún er stundum í stuttum/
síðum/svörtum/lj ósum/lj ótum
pilsum, hún kann hreint ekkert
að mála sig og klessir allt of
miklum farða i andlitið á sér á
miðjum degi, er barasta líkari
gleðikonu en stjórnmálamanni,
svei mér þá, og til að kóróna
ósómann liggur önnur auga-
brúnin miklu hærra en hin! Lík-
lega er það eina, sem kemur í
veg fyrir að allur bandarískur
almenningur krefjist afsagnar
hennar hið snarasta, sú stað-
reynd að hún er tággrönn, sem
þykir æðsta dyggð í Amerík-
unni.
Þetta væri auðvitað fyndið ef
þetta væri ekki reglan alltaf
þegar kemur að umfjöllun um
konur, alveg sama hvað þær
gera, hversu langt sem þær ná
og hvernig sem þær standa sig.
Katherine þessi Harris er eftir
sem áður 43 ára innan-
ríkisráðherra Flórída, en er
núna miklu frægari um öll
Bandaríkin fyrir háðsglósurnar
sem fljúga um útlit hennar í
grínþáttum á síðkvöldum en
embættið sem hún gegnir. Eng-
inn grínistinn sér hins vegar
ástæðu til að hæðast sérstak-
lega að öllum körlunum sem eru
daglega á skjá landsmanna
vegna Flórídamálsins. Þar er þó
að finna eintök af karlpeningi á
borð við Warren Christopher,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Gæfa hans er að
vera ekki kona. Þá væri hann
bæði ljótur og amma.
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Náttúruf ræði/ Vísindin efla alla dáð í aðalnámskránni. Kennarar
fara því á námskeið og nemendur leggja stund á fræðin. Anna
Ingólfsdóttir spurði kennsluráðgjafa í Reykjavík um væntanlega
vísindabylgju í skólum, sem orkuna styrkir og viljann hvessir.
Morgunblaðið/Golli
Verkeftii í vísindum er hægt að hafa bæði fræðandi og skemmtileg fyrir kennara og nemendur þeirra.
Heimurinn í ljósi
barna og vísinda
• Kennarar efla nú vitund sína um
mikilvægi vísindakennslu
• Nemendur fást við ný og skemmti-
leg vísindaverk
BÖRN, og fullorðnir, hafa
oft aðrar hugmyndir um
eðli og gerð hlutanna
heldur en vísindin segja til
um, t.d. um hreyfingu hluta í frjálsu
falli eða um efni sem mynda steypu
og malbik. Kennsla í vísindum er því
mikilvæg. I nýrri aðalnámskrá fyrir
grunnskóla fengu ákveðin svið nátt-
úruvísinda, sem áður höfðu orðið
svolítið hornreka í skyldunámi, t.d.
eðlisvísindi og stjarnvísindi, aukið
vægi. Áherslan á þessi fræði var ekki
áberandi frá upphafi áttunda áratug-
arins, nema þá hjá einstaka skólum
eða kennurum, en þar á undan gekk
yfir svonefnd nýstærðfræði- og vís-
indabylgja í íslenskum skólum líkt
og í nágrannalöndum. í kjölfar henn-
ar komu samræmd lokapróf í raun-
greinum er tóku við af gömlu lands-
og gagnfræðaprófunum. Árið 1980
voru þessi samræmdu próf lögð nið-
ur og áhersla á náttúrufræðikennslu
minnkaði jafnt og þétt. Það var ekki
fyrr en með þriðju alþjóðarannsókn
IEA 1996, sem gekk undir nafninu
TIMSS (Third Intemational
Mathematics and Science Study),
rannsókn sem gerð var á grunn-
skólabömum í 40 þjóðlöndum, að í
ljós kom hnignun meðal íslenskra
bama á kunnáttu í stærðfræði og
náttúruvísindum. Vakti athygli að
Vesturlandaþjóðir stóðu sig illa í
þessari rannsókn miðað við þjóðir í
Asíu, eins og Kóreu, Japan og Singa-
púr. Nú hafa yfirvöld menntamála
hérlendis ákveðið að taka aftur upp
samræmd próf í náttúruvísindum og
mun það fyrsta verða lagt fyrir vorið
2002.
Ný námskrá - átak
í náttúruvísindum
Meyvant Þórólfsson, kennsluráð-
gjafi hjá Fræðslumiðstöð Reykjavík-
ur, segir nýja námskrá boða miklar
breytingar á kennslu í náttúruvís-
indum. Fræðsluyfirvöld borgarinnar
hafi ákveðið að bregðast sérstaklega
við þannig að hægt verði að fara að
vinna markvisst eftir nýju nám-
skránni. Ekki sé einvörðungu lögð
áhersla á að auka kennslu í náttúm-
vísindum heldur einnig að skoða
kennsluhætti eða m.ö.o. að leita leiða
fyrir nýjar aðferðir í kennslu sem
byggjast á rannsóknum á því hvern-
ig börn læra. Meyvant segir forhug-
myndir bama um náttúruvísindi oft
ekki á rökum reistar. „Reyndin er sú
að böm og margir fullorðnir hafa
aðrar hugmyndir um náttúruvísindi
og eðli hlutanna heldur en vísindin
segja. Með vel útfærðum kennslu-
háttum fá þau að sannreyna eigin
hugmyndir með prófunum og til-
raunum." Hann segir að reynt verði
að gera raunvísindi jafnáhugaverð
fyrir stelpur og stráka. „Til þess að
kennslan verði í samræmi við nám-
skrána er fyrsta skrefið að efla vit-
und kennara um mikilvægi náttúm-
vfsinda og þar á ég ekki síst við
eðlisvísindaþáttinn," segir Meyvant.
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur býður
kennumm upp á námskeið til þess að
svara þessu kalli um bætta vitund og
hafa kennarar úr nokkmm skólum í
Reykjavík sótt slík námskeið.
Tvö námskeið hófust sl. sumar og
stendur annað enn yfir, og fyrirhug-
að er að halda fleiri á næstu misser-
um. Með námskeiðunum er verið að
fá kennara til þess að vinna á þrenn-
an hátt. í fyrsta lagi að rýna betur í
námskrána og skoða útfærslur á
markmiðum sem þar standa. í öðm
lagi að bæta við nýjum straumum í
kennslufræði og gera kennara sér
meðvitandi um að forhugmyndir
bama og almennings yfirleitt um
náttúruvísindi em oftar en ekki
ranghugmyndir sem samræmast
ekki vísindalegri hugsun. í þriðja
Móður-
skólar
MÓÐURSKÓLAR í náttúru-
vísindum era Melaskóli, Hóla-
brekkuskóli, Selásskóli og
Hagaskóli. Hlutverk móður-
skóla er að; vera frumkvöðull á
sínu sviði í uppbyggingu náms,
að gegna ráðgjafarhlutverki
gagnvart öðram skólum með
fræðslufundum og heimsókn-
um.
Verkefni móðurskólanna
stendur í þrjú ár og er styrkt af
þróunarsjóði grunnskóla.
Unnið er að gerð námsefnis í
gagnabanka fyrir kennara,
endurskoðun á starfsháttum og
skipulagningu í náttúmfræði-
kennslu, endurmenntun fyrir
kennara o.fl.
Skólamir hafa samvinnu við
stofnanir og fyriríæki á vinnu-
markaði.
lagi að gera kennara færa til þess að
gera vettvangskannanir, tilraunir,
veita kennslu úti í náttúmnni og
gera verklegar æfingar.
Fjórir skólar í Reykjavík hafa það
hlutverk að vera móðurskólar í nátt-
úravfsindum en þeir em: Melaskóli,
Hólabrekkuskóli, Selásskóli og
Hagaskóli. Hlutverk þeirra er að
þróa kennsluhætti og verkefni. Þeir
eiga að vera öðram skólum til stuðn-
ings, t.d. með ráðgjöf, miðlun hug-
mynda, námskeiðahaldi og ýmsum
öðmm verkefnum er tengjast
kennsluháttum.
Samstarf Fræðslumið-
stöðvar við stofnanir
Vegna námskeiða fyrir kennara
hefur Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
átt samstarf við Háskóla íslands og
Kennaraháskóla Islands.
- Einnig hefur verið samstarf við
Rannsóknarráð íslands, RANNÍS,
um verkefni sem nefnist „Vísindi á