Morgunblaðið - 25.11.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 58
UMRÆÐAN
Upplýsingar um byggingu
Náttúrufræðahússins
AÐ undanfömu hafa
orðið nokkrar umræð-
ur og blaðaskrif vegna
byggingar Náttúni-
fræðahúss Háskóla ís-
lands í Vatnsmýrinni.
í þeim hefur gætt mis-
skilnings og rangra
fullyrðinga sem hér
verða leiðréttar.
I Kostnaður við
bygginguna
í fyrsta lagi hefur
verið staðhæft að
kostnaður við bygg-
inguna hafi farið langt
fram úr áætlun. Stað-
reyndirnar eru þessar:
Fyrsta skóflustunga var tekin í
janúar 1996. í framhaldi af því fóru
jarðvegsskipti fram. Kostnaðaráætl-
un þessa fyrsta áfanga var 52,9 m.kr.
Fjórtán tilboð bárust í verkið. Samið
Húsið á að hýsa kennslu
og rannsóknir í líffræði
og jarðfræði, segir
Páll Skúlason, og er
nærtækt að bera það
saman við sjúkrahús.
Kostnaður er áætlaður
200 þús. kr. á m2, en við
byggingu Barnaspítal-
ans 220 þús. kr. á m2.
var við lægstbjóðanda, en tilboð
hans hljóðaði upp á 34,4 m.kr. og
stóðst það fyllilega.
Næsti áfangi fólst í að steypa hús-
ið upp og ganga frá því að utan. í
áfanganum fólst einnig að útveggir
væru einangraðir. Að innan skyldu
veggir vera tilbúnir til málningar. Þá
fólst í þessum áfanga að norður-
gluggi væri frágenginn
með lýsingu í miðrými.
Kostnaðaráætlun var
530,4 m.kr. Útboð fór
fram fyrri hluta árs
1997 og vom tilboð opn-
uð 10. júlí. Fimm tilboð
bárust, en lægsta til-
boðið var 537 m.kr. og
var gengið að því.
Greiðslur vegna þessa
verkáfanga eru sem hér
segir í lok október 2000:
Af verksamningi 461
m.kr., verðbætur 20,3
m.kr. og umsamin
aukaverk 47,5 m.kr.
Samtals 528,8 m.kr. Til
viðbótar hefur verktak-
inn lagt fram kröfur um aukaverk að
upphæð 25 m.kr., sem ekki hefur
enn verið tekin afstaða til. Eins og
fram hefur komið vai- tilboð verk-
taka 537 m.kr. en greiddar hafa ver-
ið 461 m.kr. Því eru ógreiddar 76
m.kr. ásamt verðbótum. Þessi áfangi
verksins fór fram úr áætlun sem
nemur aukaverkunum eða um 9 tO
13%.
Þá er kostnaður vegna hönnunar
65,5 m.kr. og við eftirlit 52,6 og ráð-
gjöf 19,2 m.kr. I kostnaði við hönnun
eru greiðslur sem tengjast verk-
áfanga sem eftir á að bjóða út.
Kostnaður við eftirlit og ráðgjöf er
óvenjulega hár sem sýnir að mikið
eftirht hafi þurft að hafa með fram-
kvæmdinni.
II Endurskoðun áætlunar
fyrir bygginguna í heild
í öðru lagi hefur verið fullyrt að
endurskoðun heildarkostnaðar við
bygginguna feli í sér óeðlilega mikla
hækkun. Byggingin er 8.000 fer-
metrar að stærð og á árinu 1997 var
áætlun um heildarkostnað um 1.200
m.kr. (þ.e. 150 þús. kr. á m2), en hún
er núna um 1.600 m.kr. (þ.e. 200 þús.
kr. á m2) og er þá tekið mið af verð-
hækkunum sem átt hafa sér stað í
þjóðfélaginu á síðustu fjórum árum.
Til dæmis má benda á að verð hús-
næðis í Reykjavík frá árinu 1997 hef-
ur að jafnaði hækkað um 48%. Eftir
á að taka ákvarðanir um ýmsar
hönnunarforsendur vegna útboðs á
lokaáfanga verksins og gera endan-
lega kostnaðaráætlun. A þessu stigi
er því ekki hægt að segja með vissu
hver hún verður.
III Samanburður við annars
konar byggingar
í þriðja lagi skal á það bent að
ekki er raunhæft að bera bygging-
una saman við einfalt kennsluhús-
næði þar sem kostnaður á fermetra
er miklu lægii en í því hátæknihúsi
sem Náttúrufræðahúsið á að verða.
Húsið á að hýsa kennslu og rann-
sóknir í líffræði og jarðfræði og er
nærtækt að bera það saman við
sjúkrahús. Samkvæmt áætlun er
kostnaður við byggingu Náttúru-
fræðahússins 200 þús. kr. á m2.
Áætlaður kostnaður við byggingu
grunnskóla er um 150 þús. kr. á m2.
Aætlaður kostnaður á fermetra við
byggingu Bamaspítalans á Land-
spítalalóð er 220 þús. kr.
IV Ákvarðanir og ábyrgð
í fjórða lagi er rétt að taka fram
að háskólinn tekur ekki einn ákvarð-
anir er snerta byggingu hússins,
heldur gilda um framkvæmdir hans
sömu lög og um aðrar ríkisstofnanir.
Háskóli íslands ákveður í hvaða
framkvæmdir hann vill ráðast á
hverjum tíma og aflar fjár til þeirra
með framlagi af ágóða Happdrættis
Háskólans. Samstarfsnefnd um op-
inberar framkvæmdir heimilar að
ráðist sé í byggingu á vegum háskól-
ans eftir að menntamálaráðuneytið
hefur gefið samþykki sitt. í sam-
starfsnefnd um opinberar fram-
kvæmdir sitja formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis, ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytis og forstjóri
Framkvæmdasýslu ríkisins. Fram-
kvæmdasýsla ríkisins býður verkið
út, ákveður hver fær það og hefur
síðan eftirlit með framkvæmdum.
Háskólinn greiðir Framkvæmda-
sýslunni fyrir þessa þjónustu af
sjálfsaflafé sínu.
Höfundur er háskólarektor.
Páll
Skúlason
Launhelgi lyganna
- einstæð bók
ÚT er komin bókin
Launhelgi lyganna
sem skrifuð er af
ungri konu undir dul-
nefninu Baugalín.
Þessi bók er einstæð.
Þetta er ekki skáld-
saga heldur sársauka-
full lýsing konu á
bernsku sinni og ungl-
ingsárum, mótunarár-
um sem einkennast af
ofbeldi, kynferðislegu,
líkamlegu og andlegu
og afleiðingum þess á
tilfinningalíf hennar
og sjálfsmynd. Þetta
er uppgjör við fortíð-
ina og lesandi fær að
fylgjast með hvernig hún glímir við
eigin tilfinningar, sem einkennast
af skömm, sekt, örvæntingu og þrá
Bókmenntir
Þetta er í fyrsta skipti,
segir Guðrún
Jónsdóttir, sem íslensk
kona skrifar bók um
eigin reynslu af því að
alast upp í fjölskyldu
þar sem hún sætir
kynferðisofbeldi.
eftir ást og viðurkenningu og
hvernig henni tekst að lokum að
leysa þessi innri átök, sættast við
sjálfa sig og lifa af sem sigurveg-
ari.
Þetta er skelfileg og harmræn
saga um svik þeirra sem standa
henni næst. Svik fósturföður, sem
beitir hana kynferðisofbeldi, svik
kúgaðrar móður, sem fórnar börn-
um sínum fyrir ofbeldismanninn,
svik fjölskyldunnar allrar, sem kýs
þögnina og tekur þar með afstöðu
með ofbeldismanninum. En það er
ekki aðeins fjölskyldan sem svíkur,
það gera einnig þeir
fulltrúar samfélags-
ins, sem unglingurinn
leitaði til, þegar lífið
innan fjölskyldunnar
er orðið óbærilegt.
Þetta er líka saga
fjölskyldu þar sem
þeir fullorðnu eru
fastir í ógnum eigin
fortíðar, þar sem allt
samskiptamynstur ep
stórlega brenglað.
Utan frá séð er þetta
jafnframt ósköp
venjuleg íslensk fjöl-
skylda, duglegir
vinnuþjarkar sem
standa sig vel í lífs-
gæðakapphlaupinu, linna ekki fyrr
en þau hafa náð því að flytja úr
kjallaraíbúðinni í blokkina og það-
an í einbýlishúsið og sannar þar
með fyi’ir sjálfri sér og öðrum að
ailt sé í lagi með þau.
Þetta er í fyrsta skipti, sem ís-
lensk kona skrifar bók um eigin
reynslu af því að alast upp í fjöl-
skyldu þar sem hún sætir kynferð-
isofbeldi. Hún lýsir í bókinni
hvernig kynferðisofbeldið þróast,
hvernig ofbeldismaðurinn gerir
hana samseka sér með peninga-
gjöfum og ógnunum um afleiðing-
arnar fyrir fjölskylduna segi hún
frá því sem hann gerir. Hún gefur
lesanda einnig innsýn í viðbrögð
sín við ofbeldinu, valdaleysinu, ótt-
anum og skömminni á sjálfri sér og
hvernig ofbeldið smám saman
brýtur niður sjálfsmynd hennar.
Öll er þessi frásögn hennar sann-
færandi og trúverðug.
Baugalín er augsýnilega hug-
rökk og sterk kona og bókin henn-
ar er til þess fallin að auka skilning
á stöðu barna, sem búa við kyn-
ferðisofbeldi og annað ofbeldi. Hún
er þess vegna þörf áminning til
allra þeirra sem vinna með börn-
um. Bókin er líka áskorun á okkur
öll að bregðast ekki börnum. Þessi
einstæða bók á erindi við alla.
Höfundur er félagsráðgjafi og
fyrrum starfskona á Stígamótum.
Guðrún
Jónsdóttir
NATO að veikjast
LEIÐTOGAFUNDUR ríkja
Atlantshafsbandalagsins samþykkti
í apríl 1999 í Washington að herlið
undir stjórn Evrópusambandinu
(ESB) væri heimilt að nota búnað
NATO á hættutímum. Það skilyrði
fylgdi þó að NATO-ríkin í Evrópu
utan Evrópusambandsins yrðu ekki
verr sett eftir þessar breytingar en
áður en eins og segir í fréttatilkynn-
ingu leiðtoganna 9. lið d „leggjum
við gríðarlega áherslu á að evrópsk
bandalagsríki, sem standa utan
ESB, taki þátt í aðgerðum vegna
hættuástands undir forystu ESB og
verði þar byggt á gildandi ráðstöf-
unum innan VES“. Með samþykkt
Evrópusambandsins í Köln skömmu
síðar kom þó í ljós að ekki var ætl-
unin að hafa mikið samráð við
Evrópuríkin í NATO utan ESB.
ESB hefur ráðið fyrrverandi
framkvæmdastjóra NATO, Anvar
Solana, til að stjórna utanríkis- og
varnarmálum ESB og uppbyggingu
bandalagsins á þessu sviði. Hann
var jafnframt skipaður sem fram-
kvæmdastjóri Vestur-Evrópusam-
bandsins (VES), Evrópustoðar
NATO eins og þessi 52 ára gömlu
samtök hafa verið kölluð. I fram-
haldi af þessari ráðningu ákvað
ESB að settur yrði á laggirnar
60.000 manna her sem væri til taks
og undir stjórn ESB.
Ekki hefur orðið samstaða um
það að byggja hið nýja kerfi varnar-
og öryggismála ESB á stofnana-
kerfi VES eins og margir vonuðu og
gert beinlínis ráð fyrir af hálfu leið-
togafundarins í Washington eins og
segir í 41. lið fréttatilkynningarinn-
ar um hlutverk stofnana bandalags-
ríkjanna. Þar hefur ýmislegt komið
til m.a. telja ýmsir að tenging þess
við NATO og Bandaríkin sé of sterk
svo Frakkar geti sætt sig við VES í
þessu hlutverki. Fleira kom einnig
til eins og að innan VES eru ríki
sem ekki eru aðilar að ESB eins og
Tyrkir. Þessi staðreynd tniflaði
meira en sú að innan ESB eru mörg
ríki sem ekki eiga aðild að NATO en
geta öll verið fullgildir aðilar innan
VES.
Stofnanahluti VES
ESB hefur tekið þá ákvörðun að
sundurlima VES og mun stofnana-
hluti þess heyra undir ESB. Það
þýðir að stofnanir eins og gervi-
hnattastöð, rannsóknarstofnun, svo-
nefnd Peterburg-verkefni þ.e. frið-
argæsla, þjálfunarmál lögreglu,
jai-ðsprengjuleit o.fl., flyst til ESB.
Utanríkisráðuneytið og fastafull-
trúi íslands í VES og NATO hafa
stýrt störfum þessara stofnana með
setu á fundum í fastanefndinni
ásamt með öðrum Evrópuríkjum
NATO og því mikil tengsl og sam-
ráð um þessu málefni skapast milli
NATO-ríkjanna í Evrópu og NATO-
ríkjanna í heild á undanfömum ár-
um. Þetta samráð hefur verið mjög
mikið og á hæstu stigum stjórnkerf-
isins. Ekki hefur náðst samkomulag
um hvernig NATO- ríkin 6 utan
ESB tengist nýju fyrirkomulagi
ESB-ríkjanna 15. Nýjasta tillagan
er að fundir 15+15 þ.e. að ESB-
ríkin og umsóknarríkin 9 í ESB
ásamt NATO ríkjunum 6 (sem sum
eru einnig að bíða eftir aðild að
Varnir
Flutningur stofnana-
kerfís VES til ESB,
segir Kristján Pálsson,
mun draga verulega
úr samvinnu við
Evrópuríkin í varnar-
og öryggismálum.
ESB) hittist á ráðherraplani einu
sinni á ári en 2-4 sinnum á ári verði
fundir lægra settra embættis-
manna. Fundir 15+6 þ.e. ESB og
Evrópuríkja í NATO utan ESB
verði eftir hina fundina en allar
ákvarðanir verði teknar af ríkunum
15 í ESB. Á samráðsfundum með
öðrum ríkjum verði einungis rætt
um ákvarðanir sem ESB-ríkin 15
hafa tekið og óvíst með öllu hvað
mikið verður lagt upp úr því sam-
ráði né á hve háu embættismanna-
plani það verður.
Þingmannahluti VES
Mikil átök hafa orðið um þing-
mannaþátt VES og hefur Evrópu-
þingið (EÞ) lagt mikla áherslu á að
efla völd og áhrif EÞ með því að
flytja umræðuna um varnar- og ör-
yggismál á Evrópuþingsplan. Flest
þjóðþing ESB líta þó svo á að varn-
ar- og öryggismál séu ein af grunn-
einingum að sjálfstæði þjóðanna og
tilheyri sú umræða því þjóðþingun-
um en ekki EÞ. Niður-
staðan hefur því orðið
sú að þingmannahluti
VES starfai’ áfram og
réttindi og skyldur ríkj-
anna 30 verða óbreytt-
ar. Staða íslands sem
aukaðih (associated
member) verður því
óbreytt inna VES. Um-
svif VES-þingsins
byggjast fyrst og
fremst á umræðu um
vamar- og öryggismál í
Evrópu allri og 5. og 9.
gr. Brusselsamningsins.
Tvö þing verða árlega
eins og áður í París og
fastanefndir munu
starfa milli þinga. Starfslið VES-
þingsins verður 30 manns auk túlka
og verður skrifstofan í París en
fastanefnd starfar væntanlega í
Brussel. Umræða um framtíðarhlut-
verk VES-þingsins verður hávær
áfram þó skýrt hafi komið fram að
lítill viíji sé til að hrófla við Bruss-
el-samningnum sem þingið mun
byggja sinn starfsgrundvöll á.
Margir álíta að VES-þingið muni
þróast sem umræðuvettvangur
þjóðþinganna um varnar- og örygg-
ismál Evrópu og enda sem önnur
deild innan Evrópuþingsins. Þannig
verði fyllt upp það tómarúm sem er
á milli þjóðþinganna og fram-
kvæmdastjórnarinnar í Brussel, en
á VES-þingunum sitja aðeins þing-
menn þjóðþinganna. Þess vegna
hefur verið bætt við VES nafnbót-
inni „The interim European Secur-
ity and Defence Assembly“.
NATO á tæpu vaði
Að mínu áliti munu þær breyting-
ar sem nú eru að þróast gjörbreyta
stöðunni innan Átlantshafsbanda-
lagsins. NATO-ríkin í
ESB munu ekki koma
jafn sterkt fram sem
sjálfstæð ríki innan-
NATO framvegis'
heldur munu ESB-
ríkin reyna að sam-
ræma afstöðu sína
fyrir fundi NATO.
Málefni Evrópu verða
ekki rædd innan
NATO nema búnaður
NATO verði notaður.
Margii- ráðamenn
ESB eru þegar famir
að líta á ESB sem of-
urríki og þróunin
muni styrkja þá
stöðu. Niðurstaða
breytinganna verður því hemaðar-
bandalag 6 ríkja þ.e. stórveldanna
tveggja ESB og USA auk íslend-
inga, Norðmanna, Tyrkja og
Kanadamanna. Þær umbreytingar
sem verða á starfsháttum innan
NATO með þessu era þær mestu
frá stofnun bandalagsins og mesta
ógnun við framtíð þess frá upphafi.
Undin-itaður hefur óskaði eftir því í
varnarmálanefnd VES að sérstök
skýrsla verði gerð um áhrif þessara
breytinga á samstarfið innan NATO
og framtíð þess til lengri tíma litið.
Flutningur stofnanakerfis VES
til ESB mun draga veralega úr sam-
vinnu íslendinga við Evrópuríkin á
sviði varnar- og öryggismála og yy
meiri aðgerð en íslendingar gérá
sér almennt grein fyrir. Alþingi get-
ur að einhverju leyti bráað það bil
sem óhjákvæmilega skapast við
þessar breytingar með auknu sam-
starfi innan VES. Undirritaður hef-
ur lagt til að svo verði gert.
Höfundur er formaður þingmannaf ~
samtaka fslandsdeildar VES.
Kristján
Pálsson