Morgunblaðið - 25.11.2000, Page 80
30 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
DAGBOK
MORGUNBLAÐIÐ
*■
X
í dag er laugardagur 25. nóvem-
ber, 330. dagur ársins 2000, Katrín-
armessa. Orð dagsins: Þetta býð ég
yður, að þér elskið hver annan.
(Jóh. 15,17.)
Skipin
Reykjavikurhöfn:
Kyndill, Mánafoss og
Preri koraa í dag.
Stapafell fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Opið hús
í dag kl. 14. Upp-
skeruhátíð verkefnisins
„Kynslóðir mætast
2000“.
Reykjavík - menningar-
borg. Ormurinn langi,
kynslóðaormurinn, sem
börn og fullorðnir
hafa prjónað saman,
verður til sýnis, kór-
söngur, börn úr Mela-
skóla, sönghópur
Aflagranda og Litli kór
Neskirkju syngja sam-
an, dans og bingó. Allir
velkomnir.
Árskógar. „Kynslóðir
mætast 2000.“ Samstarf
grunnskóla og félags-
og þjónustumiðstöðva í
Reykjavík - menningar-
borg árið 2000. Upp-
skeruhátíð 25. nóvem-
ber. Myndverk til sýnis
sem myndlistarnemar í
Seljaskóla, kennari Sig-
ríður Erna Einarsdóttir
og myndlistarhópur í
Arskógum, leiðbeinandi
Elsa Haraldsdóttir, hafa
unnið í sameiningu.
Söngur, tónlist og dans.
Húsið opnað kl. 14.
Kaffi. Allir velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43. Kyn-
slóðir mætast 2000, Há-
teigsskóli og Bólstaðar-
hlíð 43, uppskeruhátíð
laugardaginn 25. nóv-
ember. Húsið opnað kl.
14, dagskrá hefst kl. 15.
Forstöðumaður setur
hátíðina, skólastjóri
flytur ávarp. Nemendur
kynna verkefnið „Líf
barna á fyrri hluta 20.
aldar“. Eldri borgarar
kynna verkefnið „Líf
barna árið 2000“. Söng-
hópur félagsmiðstöðvar-
innar syngur. Samsöng-
ur yngri og eldri.
Sýning á verkefnum og
aldamótateppi. Kaffi-
sala. Jólahlaðborðið
verður fimmtud. 7. des
kl. 18.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseh,
Reykjavíkurvegi 50. A
fimmtudag verður opið
hús. Bókmenntakynn-
ing. Upplesarar: Guð-
rún Helgadóttir, Einar
Már Guðmundsson,
Þorsteinn frá Hamri,
Ragnheiður Gestsdóttir
og höfundar bókarinnar
Dís. Söngur: Vox fem-
inae undir stjórn Mar-
grétar Pálmadóttur.
Kynnir verður Guð-
mundur H. Garðarsson.
Félagsstarf aldraðra,
Sléttuvegi 11. í dag kl.
14 „Kynslóðir mætast“.
Opið hús. Allir velkomn-
ir.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Bláa lónið og
Þingvallaleið-Grindavík
bjóða eldri borgurum í
Bláa lónið mánudag til
fimmtudags. Farið verð-
ur frá Laugardalshöll
kl. 13, Hlemmi (Lauga-
vegsmegin) ki. 13.10 og
BSÍ kl. 13.30. Mánudag-
ur: Brids kl. 13. Þriðju-
dagur: Skák kl. 13.30.
Alkort kennt og spilað
kl. 13.30. Allir velkomn-
ir. Jólavaka FEB verð-
ur haldin 9. desember,
söngur, upplestur, hug-
vekja o.fl. Nánar
auglýst síðar. Jólaferð á
Suðurnesin laugardag-
inn 16. desember. Brott-
fór frá Ásgarði, Glæsi-
bæ, kl. 15. Æskilegt að
fólk skrái sig sem fyrst.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB í síma 588-
2111 frá kl. 10-16.
Furugerði 1. í dag
laugardag kl. 14-17
verður opið hús í tengsl-
um við verkefnið „Kyn-
slóðir mætast“ sem er á
vegum Reykjavik -
menningarborg 2000.
Verkefnið er sam-
starfsverkefni Furu-
gerðis 1 og Hvassaleitis-
skóla. Sýndir verða
munir sem unnir hafa
verið í samvinnu sl. tvo
mánuði. Kórar beggja
syngja sitt í hvoru lagi
og saman. Kaffiveiting-
ar. Allir velkomnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun „Kynslóðir
mætast 2000“, samstarf
við Ölduselsskóla. Kl.
14-17 opið hús, kl. 14,
blásnar sápukúlur af
viðstöddum, kl. 14.15
gamlir leikir og dansar,
umsjón Helga Þórarins-
dóttir. Boccia, opið inn í
vinnustofur, verkefni
kynnt, sýning á verk-
efnum sem unnin hafa
verið á liðnum vikum.
Kl. 15 Guðrún Jónsdótt-
ir býður gesti velkomna.
Sigríður Heiða Braga-
dóttir flytur ávarp.
Þúsaldarskjöldurinn af-
hentur. Kynslóðakórinn
syngur undir stjórn
Margrétar Dannheim.
Upplestur, Gunnhildur
Hrólfsdóttir rithöfund-
ur. Gerðubergskórinn
syngur undir stjórn
Kára Friðrikssonar.
Bingó. Veitingar í kaffi-
húsi Gerðubergs. Allir
velkomnir.
Dalbraut 18-20. „Kyn-
slóðir mætast 2000“
verður opið hús kl. 14-
17. Samstarfsverkefni
Dalbrautar 18-20 og
Laugalækjarskóla
kynnt.
Hraunbær 105.1 dag
laugardag verður opið
hús þar sem sýndur
verðu afrakstur sam-
vinnu ungra og eldri
borgara í verkefninu
kynslóðirnar mætast á
vegum Reykjavíkur
-menningarborgar 2000.
Húsið opnað kl. 14.
Jólafagnaðurinn verður
8. des. Jólahlaðborð,
heiðursgestir og ræðu-
menn Guðrún Péturs-
dóttir, Ólafur Hanni-
balsson og sr. Hjörtur
Magni Jóhannesson frí-
kirkjuprestur. Lög-
reglukórinn syngur.
Veislustjóri Þórdís Ás-
geirsdóttir.
Hvassaleiti 56-58.
„Kynslóðir mætast"
Reykjavik - menningar-
borg 2000. Laugardag-
inn 25. nóv. frá kl. 14-17
verður sýning á sam-
vinnu ungra og aldinna
á verkefninu kynslóðir
mætast. Dagskráin
hefst kl. 15. Steinunn
Armannsdóttir skóla-
stjóri Álftamýraskóla
flytur ávarp, nemendur
skólans lesa úr ritgerð-
um og leika á hljóðfæri.
Kaffiveitingar. Állir vel-
komnir.
Hæðargarður 31. Opið
hús laugardag kl. 14-17.
„Kynslóðir mætast“,
samstarfsverkefni fé-
lagsmiðstöðvarinnar og
Breiðagerðisskóla
kynnt, söngur, upp-
lestur og fleira. Veiting-
ar. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. „Kyn-
slóðir mætast", verkefni
á vegum Reykjavíkur -
menningarborgar
Evrópu 2000. Upp-
skeruhátíð verður í dag,
laugardag. Langholts-
skóli og Norðurbrún 1.
Húsið opnað kl. 14.
Graduale Nobili frá
Langholtskirkju syngur.
Verkefnið verður sýnt.
Kaffiveitingar.
Vitatorg. Kynslóðir
mætast / 2000. Opið hús
í dag laugardag kl. 14.
Verkefnið kynnt kl. 15.
Starfsemi hússins
kynnt, kaffiveitingar á
staðnum. Aðventu- og
jólakvöld verður haldið
8. desember, nánar
auglýst síðar.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudögum frá
kl. 11. Leikfimi, helgi-
stund og fleira.
Félagsstarf SÁÁ. Fé-
lagsvist í Hreyfilshúsinu
(3. hæð) laugard. kl 20
og brids sunnud. kl
19.30.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist spiluð á
sunnudögum kl. 14 í
Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14. Fjórði dagur í
fjögurra daga keppni.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58-60. Basarinn er í dag
laugardag og hefst kl.
14.
Hríseyingafélagið. Jóla-
bingó verður í Skipholti
70 kl. 14 sunnudaginn
26. nóvember kl. 14. All-
ir velkomnir.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Jólafundurinn
verður þriðjud. 5. des í
safnaðarheimilinu. Kon-
ur sem ætla að koma
láti vita í síðasta lagi 1.
des. í s. 553-6697, Guð-
ný, eða 561-2163,
Snjólaug. Munið eftir
jólapökkunum.
Hana-nú, Kópavogi
Spjallkvöld verður í fé-
lagsheimilinu Gjábakka,
Kópavogi, mánudags-
kvöld kl. 20. Umfjöllun-
arefni: Hvað má eigin-
lega borða og hvað
ekki? Gestur kvöldsins
er Borghildur Sigur-
bergsd. næringar-
ráðgjafi.
Hjúkrunarþjónustan
Karitas býður til sam-
verustundar fyrir að-
ventu sunnud. 26. nóv-
ember kl.15-17 í hús-
næði Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga,
Suðurlandsbraut 22,
sem er ætluð aðstand-
endum skjólstæðinga
sem látist hafa á árinu.
Á dagskrá verður fyrir-
lestur, kórsöngur og
hugvekja.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavfk. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, augjýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
RITSTJ@MBL.1S,7 Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í iausasölu 150 kr. eintakið.
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fostudags
Góðæris-
kakan
FIMMTUDAGINN 23.
nóvember sl. skrifaði Sig-
urður Magnússon í Bréfi til
blaðsins í Morgunblaðinu,
grein um konu, sem átti
ekki fyrir lyfjunum sínum
og gekk grátandi út úr
apótekinu. Greinin hét
Konan sem fór að gráta.
Svipaðar sögur heyri ég á
hverjum degi, jafnvel oft á
dag. Fólki líður hræðilega
illa núna sem á hvorki fyrir
mat né reikningum. Og
þegar jólin nálgast, kvíðir
það fyrir jólunum og það
eru fleiri en þessi kona sem
gráta.
Mig langar til þess að
spyrja hæstvirtan forsætis-
ráðherra og aðra ráðherra,
hvort ekki sé orðið tíma-
bært að skera stærri sneið
af góðæriskökunni handa
þeim sem minnst mega sín.
Halla Hansdóttir vara-
formaður Samtaka gegn fá-
tækt.
í kompaníi við
Þórberg
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á
framfæri sérstakri ánægju
sinni með útvarpssöguna á
Rás 1 I kompaníi við Þór-
berg eftir Matthías Jo-
hannessen. Hún hefur eig-
inlega verið að bíða eftir því
að einhver hefði orð á því,
hve lesturinn hjá Pétri Pét-
urssyni væri alveg frábær.
Kærar þakldr fyir
skemmtilega bók og frá-
bæran lestur.
Sportveiðimenn
ÉG undirrituð tek innilega
undir skrif séra Ragnars
Fjalars Lárussonar og
Bubba Morthens, hvað
snertir sportveiðimenn.
Mér er óskiljanlegt
hvernig fólk getur gengið á
vit náttúrunnar, með byssu
um öxl.
Guðrún Jacobsen
Bergstaðastræti 34
Reykjavík.
„Jarðskjáll'tahúsin"
LESANDI sendi Velvak-
anda eftirfarandi. Er ekki
hægt að nota ,jarðskjálfta-
húsin“ sem bráðabirgða
húsnæði fyrii' heimilislausa
í þessari menningarborg,
sem ekkert hugsar um það
böl, sem húsnæðisleysi er?
Tapað/fundid
Svört peningabudda
í óskilum
SVÖRT peningabudda
fannst í karlaklefanum í
Sundhöll Reykjavfkur um
síðustu helgi.
Upplýsingar í
síma 551-4059.
Dýrahald
Veit einhver
um Tóta?
TÓTI hvarf frá
heimili sínu í
Nökkvavogi hinn
13.11. Hann er
stór og mikill,
grábröndóttur
fressköttur með
bleikt nef. Hann
er eyrnamerktur
R9H180. Tóti er
gjarn á að fara í
ferðalög og þá
helst niður í
Elliðaárdal eða á
Geirsnef. Hann er
mjög mannelskur
og hefur hingað til alltaf
fundið einhvern til þess að
hringja fyrir sig heim. Ef
einhver veit eitthvað um
ferðir Tóta þá vinsamlegast
hafið samband í síma
6916044.
Hefur einhver
séð Hössa?
HÖSSI er rauður, geltur
högni með hvítar hosur og
hvítan smekk. Hann er ól-
arlaus en eyrnamerktur.
Hössi hvarf að heiman frá
sér, Vesturbergi 189,
Kötturinn Hössi.
fimmtudaginn 9. nóv. síð-
astliðinn. Þeir sem geta
veitt einhverjar upplýsing-
ar eru vinsamlegast beðnir
að hringja 1 síma 557 6122,
5575812 eða 892 7799.
Fimm mánaða
högni fæst geflns
MANNELSKUR rúmlega
fimm mánaða högni fæst
gefins á gott heimili vegna
ofnæmis. Hann er mjög
biíður, góður og rólegur.
Uppl. í síma 697-7183 eða
587-2474 eftirkl. 19.
Krossgáta
LÁRÉTT:
I laða, 4 tilgerð, 7 spakar,
8 hnötturinn, 9 umfram,
II líffæri, 13 nagla, 14
snjóa, 15 lipur, 17 ímynd,
20 samtenging, 22 öl-
víma, 23 blítt, 24 æða yf-
ir, 25 tarfi.
LÓÐRÉTT:
1 hljóðfærið, 2 náðhús, 3
hina, 4 viðartegund, 5
drengja, 6 niðurfelling,
10 sigrað, 12 kraftur, 13
hafði aðsetur, 15 troðn-
ingur, 16 þor, 18 bognu,
19 gisti, 20 hlífa, 21
Iengdareining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 rótgróinn, 8 frétt, 9 umbun, 10 Níl, 11 setti, 13
teigs, 15 starf, 18 saggi, 21 inn, 22 lúðan, 23 álfur, 24
sakamaður.
Lóðrétt: 2 ólétt, 3 gætni, 4 óhult, 5 nebbi, 6 ofns, 7 snös,
12 tár, 14 eta, 15 sálm, 16 auðna, 17 finna, 18 snáða, 19
giftu, 20 iðra.
Yíkverji skrifar...
FRÆNDUR okkar Færeyingar
minnast þess nú að hundrað ár
eru liðin frá fæðingu Williams
Heinesen. Víkverji las sér til mikillar
ánægju viðtal við Heinesen frá árinu
1962 sem birt var í Lesbók Morgun-
blaðsins um síðustu helgi og rifjaði
um leið upp sumarlanga dvöl sína í
heimabæ skáldsins, Þórshöfn. Held-
ur þótti Víkverja Færeyjar vera lítt
aðlaðandi staður, undirlendi hvar-
vetna lítið sem ekkert, varla hægt að
koma fyrir knattspymuvelli og
landslag víða heldur einhæft. Helsta
skemmtunin var að lesa á skilti í
verslunum þar sem sterklega var
varað við beru starfsfólki, umferðar-
skilti þar sem varað var við spælandi
og skreiðandi bömum og einhverj-
um Skúla sem hlaut að vera hræði-
legur maður. Víkverji dró þá skyn-
samlegu ályktun að bókmenntir
þessara eyja hlytu að vera lítilla
sanda og sæva ef nokkrar væm.
Nokkmm ámm síðar álpaðist Vík-
verji til þess að taka sögubók að láni
í bókasafni eftir færeyska höfundinn
Heinesen, svona af algerri rælni,
kannski var það Nóatún, Vonin blíð
eða í Svörtukötlum. Það hefði svo
sem engu máli skipt því Víkverji las
nú í rikk og hrifningarvímu allar
þýðingar Þorgeirs Þorgeirssonar á
verkum Heinesen og komst á þá
skoðun að þarna væri skáld sem
skrifað hefði verk sem jöfnuðust á
við það besta sem skrifað hefur verið
á íslensku. Víkverja fannst með ólík-
indum að úr þessu hrjóstuga, ein-
angraða og fábrotna umhverfl
skyldu hafa sprottið slíkar heims-
bókmenntii-. En þannig er nú einmitt
eðli skáldskaparins. A hundrað ára
fæðingarafmæli Heinesen er ekki úr
vegi að hvetja þá sem enn hafa ekki
kynnt sér verk hans að taka nú ein-
hverja af sögum hans á bókasafni. Af
þeim verður enginn svikinn.
XXX
IFRÉTTUM nýlega kom fram að
sérfræðingar á Islandi em nú
skrefínu nær að skilja eðli og orsakir
skammdegisþunglyndis sem hrjáir
nokkuð stóran hluta þjóðarinnar.
Nóvember og desember era ekki
besti tími Víkverja, hann sefur þá
heldur meira en aðra tíma ársins og
dálítill drangi sækir óhjákvæmilega
á sálina. Þetta em einkenni sem
fjöldi fólks kannast við. Hinu má
hins vegar ekki gleyma að á þessum
árstíma hvflast margir mun meira en
aðra tíma ársins og veitir ef til vill
ekki af. Fyrir mörgum ámm las Vík-
verji grein um skammdegisdrang-
ann en man nú ekki nema eitt ráð úr
þeirri grein, líklega vegna þess að
hann hrífst af einföldum og praktísk-
um lausnum. Hún felst einfaldlega í
því að gæta þess að hafa vel bjart í
kringum sig á þessum árstíma, hafa
kveikt á sem flestum ljósum heima
hjá sér og kaupa jafnvel sterkari
Ijósaperar, sálinni og rafmagnsveit-
unni til heilla og framfara.
Víkverji er raunar kominn á þá
skoðun á Islendingar séu upp til
hópa ákaflega veikt fólk. Þunglyndi
er útbreytt, annar hver maður er
með stöðugan bakverk og ef hann er
ekki með bakverk þá er hann með
vélindabakflæði eða eitthvað annað.
Séu prósentutölurnar lagðar saman
er ekki hægt að komast að annarri
niðurstöðu en að heilsufar þjóðar-
innar sé með eindæmum slæmt.
Vitaskuld er umræða um þessa
sjúkdóma og veikindi af hinu góða og
ekki ástæða til bölsótast yflr því. En
Víkverji furðar sig stundum á öllu
því ánægða og glaða fólki sem hann
mætir og umgengst í hinu daglega
lífi. Og duglegt er það þrátt fyrir
veikindin sem hrjá það enda lífskjör
hér góð. Það má því segja að í reynd
bregðist þjóðin hvorki við bana né
sárum þótt annað mætti ráða af um-
fjöllun fjölmiðla.