Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 282. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sígur á seinni hluta málaferla vegna bandarísku forsetakosninganna Gore bindur enn vonir við talninffu vafaatkvæða Washington. AP, Reuters. ^ ^ Reuters Séra Jesse Jackson ávarpar fjcildafund f Tallahassee í gær, þar sem sam- an var komið fólk sem telur brögð hafa verið í tafli við framkvæmd for- setakosninganna í Flórída, George W. Bush í hag. Lýsti Jackson því yfir að blökkumönnum væri greinilega mismunað sem kjósendum f rfkinu. LOGFRÆÐINGAR Als Gore, for- setaefnis demókrata í Bandaríkjun- um, báðu í gær Hæstarétt Flórída- ríkis að líta framhjá því að yfirvöld í ríkinu hefðu staðfest sigur repú- blikanans George W. Bush í forseta- kosningunum 7. nóvember sl., og lögðu til að rétturinn fyrirskipaði að tafarlaust yrði hafizt handa við að telja þúsundir vafaatkvæða, í því skyni að gera út um „úrslitaspum- inguna“ hvor frambjóðendanna hefði í raun fengið fleiri atkvæði. Lögfræðingar Gore og Bush lögðu í gær fram skriflegan mál- flutning sinn í áfrýjunarmáli fyrir Hæstarétti Flórída, en munnlegur málflutningur fer fram í dag í þessu máli sem gæti verið lokakaflinn í togstreitunni um hvor frambjóðend- anna fær hina 25 kjörmenn Flórída og tryggir sér þar með tilskilinn meirihluta á kjörfundi 18. desember. Færð eru rök að því í skjalinu, að undirréttardómarinn, sem á mánu- dag hafnaði kröfu liðsmanna Gores um talningu um 14.000 vafaatkvæða úr sýslunum Miami Dade og Palm Beach, hafi gert alvarleg lagaleg mistök. Lögmenn Bush héldu því hins vegar fram, að Gore væri að fara fram á að dómurinn breytti gildandi kosningalöggjöf. Hvöttu þeir dóm- ara Hæstaréttar til að hafna áfrýjun liðsmanna Gores. Dómur undirrétt- ar hefði verið vel rökstuddur. Sögðu lögmenn Bush að hagsmunum al- mennings væri ekki þjónað með því að draga málaferlin frekar á lang- inn. Þeir fóru þess einnig á leit við dóminn að taka fyrst fyrir mál það sem Hæstiréttur Bandaríkjanna vís- aði til baka til Hæstaréttar Flórída á mánudaginn, en það snýst um fyrri handtalningu atkvæða í vissum kjördæmum Flórída sem minnkuðu opinbert forskot Bush úr 930 at- kvæðum í 537. Þá stóðu í gær yfir tvenn mála- ferli fyrir umdæmisdómstólum í Seminole- og Martin-sýslum, sem byggjast á kærum stuðningsmanna Gores úr röðum kjósenda í þessum kjördæmum. Vilja þeir að þúsundir utankjörfundaratkvæða verði strik- uð út á þeim forsendum að stuðn- ingsmenn Bush hafi hagrætt þeim. Flórídaþing kallað saman Forsetar beggja deilda Flórída- þings tilkynntu í gærkvöldi, að á morgun, föstudag, yrði þingið kallað saman sérstaklega til að ræða möguleikann á að þingið, þar sem repúblikanar eru í meirihluta, skip- aði hina 25 kjörmenn ríkisins, ef málaferli skyldu enn standa yfir þegar frestur til að skipa kjörmenn- ina rennur út hinn 12. desember. Meðan á þessu öllu stóð hélt Bush áfram undirbúningi valdatöku. Á búgarði sínum í Texas tók hann á móti Condoleezzu Rice, sem fastlega er búizt við að verði ráðgjafi Bush í þjóðaröryggismálum, flytji hann í Hvíta húsið. Við þetta tætófæri tjáði hann blaðamönnum, að alþjóðlegir hryðjuverkamenn skyldu ekki halda að óvissan um stjómarskiptin í Washington yrði til þess að gera þeim auðveldara fyrir að skaða bandaríska hagsmuni. ■ Fimmtán þúsund atkvæði/30 Tyrknesk sjónvarpsstöð Utsending- arbann fyr- ir að sýna Pokémon Ankara. AFP. TYRKNESK eftirlitsyfirvöld ljósvakaútsendingarmála hafa fyrirskipað einkareknu sjón- varpsstöðinni ATV að gera dagshlé á útsendingum í refs- ingarskyni fyrir að hafa sent út þátt úr japönsku teiknimynda- þáttaröðinni um Pokémon-ver- urnar. Frá þessu greindi Anat- oka-fréttastofan í gær. Eftirlitsráðið skýrði ákvörð- un sína með því að vísa í skýrslu frá heilbrigðisráðuneytinu, þar sem fullyrt er að Pokémon- þættirnir ýti undir ofbeldi með- al barna. Þáttaröðin er í miklu uppáhaldi meðal bama í Tyrk- landi, eins og reyndar víðast hvar í hinum vestræna heimi, ekki sízt hér á íslandi. í skýrslu tyrkneska heil- brigðisráðuneytisins segir, að þættirnir „láti börn venjast of- beldi í andrúmslofti leiks,“ og „ylli því að böm áttuðu sig verr á muninum á réttu og röngu“. Þá segir enn fremur, að bömin yllu alvarlegu efnahagslegu vandamáh með því að þrýsta á foreldra að kaupa handa þeim alls kyns vaming sem er til sölu í tengslum við þáttaröðina. Mikilvægur leiðtogafundur ESB hefst í Nice í dag Togstreita Þjóðverja og Frakka sögð erfíðust Nice. AP, Reuters. ÞEGAR leiðtogar Evrópusam- bandsríkjanna fimmtán koma í dag saman í frönsku Miðjarðarhafs- strandarborginni Nice eiga þeir nokkra erfiða sólarhringa fyrir höndum. Þeir era undir miklum þrýstingi ,að ná samkomulagi um breytingar á innra skipulagi ESB sem búa það í stakk til að taka inn allt að þrettán ný aðildarríki á næstu árum, flest fyrrverandi kommúnistaríki í austanverðri álf- unni. Er útlit fyrir að meðal hinna mörgu erfiðu úrlausnarefna, sem fyrir fundinum liggja, muni það reynast einna erfiðast að sætta sjónarmið Frakka og Þjóðveija en deila þessara tveggja „driffjaðra Evrópusamrunans", um það hvemig endurmeta skuli atkvæðavægi aðild- arríkjanna eftir stækkun sambands- ins, endurspeglar í hnotskum þá baráttu sem ESB-ríkin há nú um valdajafnvægið í Evrópu framtíðar- innar. Franski utanríkisráðherrann Hubert Vedrine sagði í viðtali í gær að það kæmi ekki til greina að Þýzkaland hlyti meira atkvæðavægi en önnur „stór“ ríki ESB þótt íbúar Þýzkalands séu yfir 20 milljónum fleiri en t.a.m. í Frakklandi. Þótt þýzka ríkisstjórnin hafi ekki form- lega krafizt þess, er hún fylgjandi tillögum sem gera ráð fyrir að Þýzkaland, sem fjölmennasta og efnahagslega stærsta ESB-ríkið, fái meira vægi en hin. Þótt togstreitan milli Frakka og Þjóðverja sé sennilega það atriði sem víðtækt samkomulag um end- urskoðun fyrirkomulags ákvarðana- töku í sambandinu muni einna helzt stranda á, er ekki síður óvist um árangurshorfur í mörgum öðmm deilumálum sem tekizt verður á um í Nice. Brezki forsætisráðherrann, Tony Blair, hyggst standa fast á þeirri kröfu, að Bretar haldi neitunarvaldi á ýmsum málefnasviðum ESB-sam- starfsins, þar sem þeir kæra sig ekki um að verða skuldbundnir til að taka upp neina evrópska löggjöf sem þeir sjálfir vildu ekki styðja; Spánverjar verjast öllum tilraunum til að draga úr valdi þeirra yfir því hvemig fé byggða- og þróunarsjóða ESB sé varið; og loks má nefna að smærri aðildarríkin em staðráðin í að hvað sem ákveðið verði muni ekki verða hvikað frá því að hvert og eitt þeirra hafi sinn fulltrúa í framkvæmdastjórn ESB - en það hafa verið uppi tillögur um að þak verði sett á fjölda fulltrúa í fram- kvæmdastjórninni. Schröder hvetur til hugdirfsku Um 15.000 lögreglumenn dreifðu sér í gær um Nice í því skyni að hafa stjóm á þeim allt að 60.000 mótmælendum sem búizt er við að láti að sér kveða á meðan leiðtog- amir hittast. Mótmælaaðgerðir vom hafnar strax í gær en þær em af ýmsum toga - gegn atvinnuleysi, aðgerðaleysi í félagsmálum og óhóf- legu frelsi í heimsviðskiptum, eða í þágu málstaðar bænda, svo nokkur málefni séu nefnd. Ljóst er að vilja tU málamiðlana er þörf ef leiðtogafundurinn á ekki að verða árangurslítiU og hálfs árs formennskutímabil Frakka þar með endasleppt. „Ég mun segja félögum mínum í Nice: vemm hugdjarfir!" sagði Ger- hard Schröder, kanzlari Þýzka- lands, í Varsjá í gær, þar sem hann var í opinberri heimsókn. „Við eig- um að standa við okkar sögulegu skyldu - að byggja upp einingu Evrópu,“ sagði hann. A1 Iransforseti gagnrýnir harðlínumenn ÍRANSKIR háskólastúdentar fögnuðu orðum Mohammads Khatami, hins hófsama forseta ír- ans, er hann ávarpaði þá á ár- legum stúdentadegi írans í gær. Um 10.000 námsmenn Tarbiat-e- Modarres-háskólans í Teheran, karlar sem konur, voru mættir til að hlýða á orð hans. Khatami hvatti námsmennina til þess að missa ekki trúna á þeim umbótum sem hann ýtti úr vör árið 1997 þegar hann var þjóðkjörinn í embætti. Hann sagði alrangt að íslam ætti ekki samleið með lýðræði og sakaði harðlínu- menn um að standa gegn umbót- unum. Harðlínumenn ráða lögum og lofum í dómstólum landsins og hafa siðan í vor stöðvað útgáfu 30 blaða, sem eru hlynnt Khatami, til að reyna að draga úr miklum stuðningi almennings við hann. MORGUNBLAÐtÐ 7. OESEMBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.