Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 73 , Þess vegna spinnur kóngu- lóin svona vel! HVER hefur ekki staðið sig að því að dást að spuna kóngulóarinnar? Það er ótrúlegt hvað hún getur spunnið vel og skipulega. Til er saga sem segir frá uppruna og tilkomu kóngu- lóarinnar og hvers vegna hún spinnur svona vel en hún er svona: Enginn í heiminum er klárari í að spinna og vefa en gyðjan rómverska Mínerva (sama og gríska gyðjan Aþena). Enda er það uppfinning hennar. Imyndið ykkur hvað hún varð reið þegar hún heyrði það að hæfileikar hennar hefðu verið dregnir í efa af venjulegri, dauðlegri konu sem hét Arachne. Hún sagði að Mínerva væri ekki besta spunakona í heimi. Arachne var frá Libyu og faðir hennar starfaði við efnalitun. Þrátt fyrir fátækt þeirra varð stúlkan Arachne mjög fræg í heimahögum sínum vegna hæfileika sinna í vefn- aðarlistinni. Margir komu til að sjá hana að verki, hvernig hún vatt bandið í hnykkla, hvernig hún spann, hvernig hún óf og saumaði síðan með nálinni sinni í teppin sem hún hafði ofið. Það var greinilegt að gyðjan Mínerva hafði kennt henni þetta allt en samt neitaði Arachne því staðfastlega. Hún varð svo reið yfir því að fólk skyldi halda það að hún ákvað að skora á gyðj- una Mínervu í vefnaðar-keppni. „Ef gyðjan vinnur", sagði hún, „þá get- ur hún gert það sem hún vill við mig“, sagði Arachne kotroskin. Gömul kona, sem var í raun gyðj- an Mínerva í dulargervi, kom til Arachne og varaði hana við slíkri áskorun. Hún sagði að það væri í lagi að monta sig og bera hæfileika sína saman við aðrar dauðlegar manneskjur en það skyldi hún aldrei gera við gyðjur. Siðan hvatti hún hana til að biðja gyðjuna Mín- ervu afsökunar því ef hún gerði það myndi Mínerva hlífa henni við refs- ingu. Arachne hélt nú hins vegar ekki. Gyðjan Mínerva hristi þá af sér dulargervið og hafist var handa við að undirbúa keppnina. Teppin sem þær ófu sögðu sögur í mjög fallegum myndum af goðum og gyðjum við hinar ýmsu aðstæður. Bæði teppin voru mjög falleg en þegar Mínerva sá teppið sem Arachne hafði ofið réð hún ekki við öfund sína og reiði. Hvemig dirfðist þessi venjulega kona að draga upp myndir af leyndar- málum guðanna, hugsaði Mínerva og reif niður vefnaðinn fal- lega. Gyðjan Mínerva tók að lemja Arachne með skyttunni hennar en aumingja Arachne þoldi illa bar- smíðarnar og ætlaði að hengja sig og setti snöru um háls sér. Mínerva vorkenndi henni þó fyrir rest og sagði, „Þú ert vond kona en ég get ekki látið þig deyja svona, þú skalt því fá að lifa en hanga skaltu svona eins og þú gerir núna í loftinu ásamt öllum þínum afkomendum“. Síðan skvetti hún yfir Arachne töfravökva úr jurtum og stúlkan breyttist í kónguló. (Úrdráttur og lausleg þýðing úr Stories from Ovid eftir Martin Murphy.) Já, það borgar sig ekki að ögra guðunum, það er ljóst. Ef þú gerir það gætirðu átt von á einhverjum álögum sem erfitt er að bijótast undan eins og aumingja Arachne fékk að reyna. Grískar og róm- verskar gyðjur minna því óneitan- lega á íslenskar álfkonur. Maður verður líka að gæta sín að ögra þeim ekki og koma vel fram við þær því annars getur eitthvað slæmt komið fyrir. Það kæmi því ekki á óvart að einhver ævafom skyldleiki liggi í genunum þeirra. I desember-spuna er boðið upp á klassíska og fljótprjónaða alpahúfu og trefil í stíl úr Funny-pelsgarni handa gyðjum, álfkonum og frænk- um þeirra. Alveg kjörið til að setj- ast niður eina kvöldstund eða svo til að pijóna og þannig hvfla sig á jóla- undirbúningnum og njóta þess að skapa. Munið svo að um jól og ára- mót eru álfar og huldufólk á kreiki svo það er vert að vera ekki með neinar ögranir eða of stórar yfir- Iýsingar á vörum. Gangi ykkur vel og gleðileg jól. Klassísk alpahúfa og trefill í stíl GARN: Funny-pelsgam Upplýsingar um hvar gamið fæst er í síma 565-4610 Hönnun: Ingjerd Thorkildsen Stærð: Medium Alpahúfa: Funny-pelsgarn Ryðrautt 3525:2 dokkur Trefill: Funny-pelsgam Ryðrautt 3525:2 dokkur Pijónar: í húfu þarf sokkapijóna nr. 3 og 4 í trefil þarf hringpijón nr. 5 Pijónfesta: 20 sm slétt pijón á pijóna nr. 4 = 10 cm. ALPAHÚFA: Fitjið upp 80 lykkjur á prjóna nr. 3 og prjónið 4 cm garðaprjón fram og til baka = slétt á réttu, slétt á röngu. I næstu umferð er aukið út þannig á milli ann- arrar hverrar lykkju: Lyftið bandinu og pijónið snúið slétt = aukið út um 40 lykkjur = 120 lykkjur í allt. Skiptið yfir á pijón nr. 4 og pijónið slétt pijón í hring. Eftir 3 cm er aukið út um 1 lykkju alltaf eftir fjórðu hveija lykkju allan hringinn = alls aukið út um 30 lykkjur = 150 lykkjur í allt. Prjónið þar til slétta prjónið mælist 8 cm. Fellið af þannig: prjónið 13 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman allan hringinn = 140 lykkjur. Pijónið eina umferð án úrtöku. Pijónið 12 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt sam- an allan hringinn = 130 lykkjur. Pijónið eina umferð án úrtöku. F ellið af í annarri hverri umferð með 1 lykkju minna á milli þar tö 60 lykkjur em eftir. Fellið síðan af í hverri umferð þar til 10 lykkjur era eftir. Dragið þráðinn í gegnum lykkjumar og festið end- ann vel niður. Saumið saman garðaprjónskantinn. TREFILL: Pijónfesta: 19 lykkjur í garðapijóni á pijóna nr. 5 = 10 cm. Fitjið upp 42 lykkjur á pijón nr. 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka = slétt á réttu og slétt á röngu. Prjónið þannig þar til mælist u.þ.b. 150 sm eða þar til æskUegri lengd er náð. F ellið passlega laust af. Úr ern tollfrjáls! Hjá úrsmidnum V Jólagjöfina fyrir bútasaumskonuna færð þú hjá okkur! .Saumakassar, bútasaumstöskur, gjafapakkningar, gjafabréf og m.m.flj V/RKA Mörkin 3 - Sími 368 7477 www.virka.is Opið Mánud.-föstud. kl. 10-18 Lau. kl. 10-16. Bílabúð Benna • Vagnhöfða 23 & Kringlunni • Sími 587 O 587 • www.benni.is Sígmm Jólabúð -eda/f/'é á/t e/f//t á/' Síðustu ár hefur skátahreyrfingin selt sígræn eðaltré, í hæsta gæðaflokki og prýða þau nú mörg hundruð íslensk heimili ► lOáraábyrgð ► Elátraust vLp7/)/7y?y\— ► 12 stœrðir, 90 - 500 cm ► Þarfekki að vökva ' ► Stájfótur jýlgir ► íslenskar leiðbeiningar ® u Þérffýi ► Ekkert barr að tyksuga ► Traustur söluaðili ► Truflar ekki stqfublómin ► Skynsamlegflárfesting '“°9 nú f~, , ____ __S/gr£B '&rðu UKYÍfiW.CéA Bandalag íslenskra skéla Uka Bfia^.atr^ð MÖGNUÐ BÍLAMYNDBÖND Kr/nC' ' Myndbandsspólur sem allir bílaáhugamenn verða að eignast. Verö kr. 1.990,-til 2.490,- ^lunrii! Þessar eru frábærar!!! - gjafavöruverslun bilaáhugafólks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.