Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 50
$0 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ I pilsfaldi Dana Hins vegar má spyrja hvortsvo auð- veldlega hefði tekist að afstýra fiski- mjölsbanni hefðu Danir ekki átt neinna hagsmuna aðgæta. Einhvem tímann var því haldið fram að eitthvað væri rotið í Danaveldi en það er ekki fiskimjöl og verður ekki á næstunni. Landbún- aðarráðherrar Evrópusambands- ins komu saman í upphafi vikunn- ar til að bregðast við kúafári sem talið er að leiði til nýs afbrigðis heilahrömunarsjúkdómsins Creutzfeldt-Jakob. Creutzfeldt-Jakob er príonsjúk- dómur. Tveir þýskir læknar, þeir Hans G. Creutzfeldt og Alfons M. Jakob, lýstu fyrstir Creutzfeldt- Jakob-sjúkdómnum árið 1920. Líkist hann sjúkdómum á borð við kúrú í mönnum og riðu í kindum og geitum. Sjúkdómurinn hefur örsjaldan smitast milli manna og hefur það gerst meðan á læknisað- gerðum hefur staðið, til dæmis við flutning á homhimnu í auga. Ekk- ert bendir til VIÐHORF Eftlr Karl Blöndal að hann geti smitastmeð venjulegum smitleiðum. Sýnt hefur verið fram á það í til- raunastofu að flytja megi sjúk- dóminn úr manni í dýr og vísinda- menn em orðnir nokkuð vissir um að príonprótein, sem valda sjúk- dómi í einni tegund, geti valdið príonsjúkdómi í mönnum. Áhyggj- ur urðu að fári þegar ungt fólk á Bretlandi fékk Creutzfeldt-Jakob- sjúkdóminn um miðjan síðasta áratug. Nokkuð víst er talið að fólkið hafi fengið sjúkdóminn eftir að hafa neytt nautakjöts sem smit- að var af príoninu sem veldur kúariðu en sá sjúkdómur fór að herja á breska nautgripi árið 1986. Þrennt bendir til þess að um sama sjúkdóminn sé að ræða í mönnum og kúm. Sams konar ut- fellingar myndast í heilanum. I til- raunum, sem gerðar hafa verið á músum, hefur meðganga með sjúkdóminn verið sú sama nánast upp á dag, hvort sem hann hefur komið úr kúm eða mönnum. Þá hafa breytingamar í heilum músa verið á nákvæmlega sömu stöðum hvort sem sjúkdómurinn hefur komið úr kúm eða mönnum þannig að við samanburð hefur ekki sést neinn munur. Það er því orðið ansi erfitt að reyna að bera brigður á að kúariða valdi hinu nýja afbrigði Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins. Aðeins einu sinni hefur hins vegar verið ýjað að því í vísinda- grein að samband væri milli fiska og príonsjúkdóma. Sú grein birtist í tímaritinu Molecular Psychiatry árið 1997. Nafnið bendir til að tímaritið sé gefið út af sömu fram- leiðendum oggera sjónvarpsþætt- ina X-Files en hvað sem trúverð- ugleika þess líður má fullyrða að enginn hafi fylgt rannsókn Gibbs og félaga, á mótefnasvörun lax við spendýrapríonpróteini, eftir á þeim fjórum árum sem síðan eru liðin, tii dæmis með því að klóna genið sem framleiðir príonprótein ífiski. Rökin íyrir því að banna fiski- mjöl voru enda ekki vísindaleg heldur þess eðlis að auðvelt yrði að stunda blekkingarleik og blanda það kúamjöli, svo dæmi sé tekið. Frakkar og Þjóðverjar höfðu þegar ákveðið að banna fiskimjöl í dýrafóður þegar landbúnaðar- og matvælaráðherrar Evrópusam- bandsins komu til fundar í Brussel á mánudag. í tæpa viku höfðu hjól utanríkisráðuneytisins snúist til að knýja fram að ekki yrði lagt bann við fiskimjöli. Það er kannski hæpið að segja að sú vinna hafi verið til einskis. Ein vísbending um árangur kom í viðtali Morgun- blaðsins við Ulrike Höfken, þing- mann þýzka græningjaflokksins Biindnis90/Die Grúnen. Hún sagði að Ingimundur Sig- fússon, sendiherra íslands í Berl- ín, hefði haft samband við sig áður en búið var að taka ákvörðun um málið. „Eftir að sendiherrann hafði samband við mig reyndi ég að fá því framgengt að það yrði tekið fram í frumvarpinu að áfram mætti nota fiskimjöl í fóður handa svínum og alifuglum. Eg hefði tal- ið það skynsamlegt,“ segir hún. í þýsku lögunum var hins vegar gert ráð fyrir því að gera mætti undanþágu, hefði mátt nýta um fiskimjöl. Bæði Ingimundur og Höfken voru hins vegar sammála um að sú undanþága hefði ekki nýst ef Evrópusambandið hefði komist að þeirri niðurstöðu að banna ætti fiskimjöl í dýrafóður. Lykilinn að því að fá vilja ís- lendinga í fiskimjölsmálinu fram- gengt varð því að finna í Brússel. Hann reyndist hins vegar ekki vera í höndum íslensku utanríkis- þjónustunnar þar heldur gamal- reynds og umdeilds dansks stjórn- málamanns, Ritt Bjerregaard, sem nú er matvælaráðherra Dana. Bjerregaard sagði jafnt við ís- lenska ráðamenn sem danska blaðamenn að sér litist ekkert á þessar tillögur enda talsverðir danskir hagsmunir í húfi. „Tillag- an um kúabrjálsemina er galin,“ hafði blaðið eftir Bjerregaard. Með einhverjum ráðum tókst henni að snúa Frökkum, sem átt höfðu frumkvæðið að þeirri hug- mynd að banna fiskimjöl og höfðu þegar sett slíkt bann í lög hjá sér, um fingur sér og narra þá til að hlífa Dönum. Og þar með íslend- ingum. Hins vegar má spyrja hvort eitthvað bendi til þess að svo svo auðveldlega hefði tekist að afstýra fiskimjölsbanni hefðu Danir ekki átt neinna hagsmuna að gæta. Þess er skemmst að minnast að engan stuðning var að fá frá nor- rænum frændum okkar þegar Spánverjar lögðust gegn því að framkvæmdasjóður EFTA-ríkja til mannvirkja á íberíuskaga legð- ist af. Sjóður þessi var fylgifiskur samningsins um Evrópska efna- hagssvæðið og hafði verið samið um að hann yrði lagður niður eftir ákveðinn tíma. Með aðgerðum Spánverja var Evrópusambandið í raun að ganga á bak orða sinna þannig að ætla mætti að auðvelt hefði verið að kveða Spánveija í kútinn. í fjós kom síðan að hags- munir Evrópusambandsríkjanna ganga ávallt fyrir hagsmunum þeirra ríkja sem utan ESB standa. Með því að afstýra fiskimjölsbanni var hins vegar komið í veg fyrir að enn eitt lóðið bættist við á vogar- skál þeirra sem eru að tuldra um að kannski, einhvem tímann, ef til vill þegar allir kostir hafi verið skoðaðir og kannaðir og vegnir og metnir ættum við jafnvel að íhuga að sækja um aðild að Evrópusam- bandinu. JON OLASON OG SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR + Sigríður Guðmundsdóttir fæddist 23. nóvember 1913. Hún lést 2. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Skinna- staðarkirkju í Oxarfirði 11. febr- úar. Jón Ólason fæddist 7. desember 1910. Hann lést 12. ágúst 1994 og fór útfor hans fram frá Skinna- staðarkirkju í Öxarfirði 20. ágúst 1994. Mig langar með nokkrum orðum að minnast foreldra minna sem bæði eru látin. Faðir minn hefði orðið níræður í dag, en hann lést á Sjúkrahúsi Húsavíkur hinn 12. ágúst 1994. Dvaldi hann tvö síð- ustu árin á dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík. Var hann fædd- ur að Ytri-Bakka í Kelduhverfi 7. desember 1910 og ólst upp í for- eldrahúsum. Þegar hann var ung- ur maður stundaði hann vörubíla- akstur, sem í þá daga var talsvert erfitt starf, því þá voru vegirnir ekki greiðfærir eins og nú er. Hann tók til dæmis þátt í að velja fyrsta vegstæðið um Reykjaheiði til Húsavíkur. Móðir mín fæddist að Ferjubakka í Öxarfirði 23. nóv- ember 1913, missti hún föður sinn ung og fór þá í Klifshaga og síðar í Skóga þar sem hún ólst upp til ful- lorðinsára. Hún var tvígift og með fyrri manni sínum átti hún þrjú börn en missti hann frá þeim ung- um, giftist þá föður mínum og eignast þau fjögur börn, þar af er einn bróðir minn látinn fyrir aldur fram, var hann þeim til hjálpar við búskapinn lengst af. Mamma var búin að eiga við vanheilsu að stríða hin síðari ár og dveljast á Sjúkrahúsi Húsavíkur þar til hún lést 2. febrúar 2000, og vil ég koma þakklæti til starfs- fólksins þar fyrir frábærlega góða umönnun þann tíma sem hún 'var þar. Bjuggu þau lengst af að Skógum í Óxarfirði eða þar til jörðin skemmdist í jarðskjálftunum 1976 og urðu þá að bregða búi, fluttu til Kópaskers og dvöldu þar meðan heilsan leyfði. Ég vil þakka fyrir að hafa alist upp hjá þeim í þessari fallegu sveit okkar, fékk líka alveg ómældan stuðning og hjálp við uppeldi sona minna tveggja, og eiga þeir ömmu og afa margt að þakka frá þeim góðu árum. Oft var margt um manninn á heimili þeirra, en það var bara sjálfsagður hlutur, í sveitinni var alltaf pláss fyrir alla, nóg að gera við leik og störf, t.d. að fara á hestbak, veiði- ferðir í ána, lónin eða sjóinn, og þótti mömmu alltaf mest gaman að veiða í sjónum á kvöldin í góðu veðri, og fór hún með í þær ferðir. Einnig var vinsælt að fara i eggja- leit á vorin, og safna svartbaks-, gæsa- og kríueggjum. Það væri hægt að rifja svo margt upp en ég ætla ekki að gera það hér og nú. Enn og aftur þakka ég fyrir allt gott, kveðja og þakkir frá minni fjölskyldu. Árný Jónsdóttir. INGIBJÖRG GUTTORMSSON 1926, maki Óskar Jónsson, f. 18. júní 1916, d. 13. mars 1999. 2) Anna Elisabet, f. 24. maí 1926, maki Helgi Axelsson, f. 9. febrúar 1923, d. 9. desember 1989. 3) Samúelina, f. 3. ágúst 1927, maki Leo Madsen, f. 16. janúar 1929, d. 2. júní 1990. 4) Guttormur, f. 13. júlí 1928, maki Áslaug Sigrún Sigurðardóttir, f. 23. desember 1929. 5) Randíður, f. 23. febrúar 1938, maki Sigurður Guðni Björnsson, f. 3. maí 1936. 6) Jak- ob, f. 21. júlí 1941. 7) Vigfús, f. 18. aprfl 1950, maki Jóhanna Gísla- dóttir, f. 27. september 1956. Af- komendur Ingibjargar eru komn- ir á annað hundraðið. Ingibjörg kom til íslands 1924, var á Seyðisfirði í eitt ár en flutt- ist síðan til Norðfjarðar með Vig- fúsi og átti heima þar allt þar til hún andaðist. Útför Ingibjargar fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. tlngibjörg Gutt- ormsson fæddist í Klakksvík í Fær- eyjum 8. október 1903. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað fimmtudaginn 30. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Anna Elísabet Biskopstöð, húsmóðir, f. 10. nóv- ember 1865, d. 1945, og Jakup Biskop- stöð, bóndi og báta- smiður á Biskopstöð í Klakksvík, f. 21. desember 1867, d. 1964. Ingibjörg var næstyngst sex systkina. Hin voru: Hans, Fredrikka, Elsa, Eva og Samuel og eru þau öll látin. Ingibjörg giftist 18. júlí 1926 Vigfúsi Guttormssyni, út- gerðarmanni, f. 7. desember 1900, d. 23. febrúar 1984. For- eldrar hans voru Anna Sigríður Sig- urðardóttir, húsmóð- ir, f. 25. september 1867, d. 12. júlí 1920, og Guttormur Árna- son, bóndi, f. 2. febr- úar 1865, d. 24. aprfl 1909. Börn Ingibjargar og Vigfúsar eru: 1) Anna Sigríður, f. 24. maí í hárri elli hefur amma Ingibjörg kvatt þennan heim. Ekki erum við viss um að hún hafi vitað hvert förinni var heitið en ef Guð er til mun hann örugglega taka vel á móti henni. Amma á Strönd, eins og við krakk- amir kölluðum hana, var fædd í Klakksvík í Færeyjum og kom sem vinnukona til Seyðisfjarðar á tuttug- asta og fyrsta aldursári. Ekki er ólík- legt að förin til Seyðisfjarðar hafi tengst afa okkar, Vigfúsi Guttorms- syni, sem hún hafði kynnst í Færeyj- um nokkru áður. Tókust með þeim ástir og hófu þau búskap á Norðfirði. Byggðu þau sér hús á Ströndinni og kölluðu Hvassafell. Þar bjuggu þau mest allan sinn búskap og flestar minningar okkar um þau eru tengdar þeim stað. Þama áttum við krakkarn- ir ávallt ömggt skjól og nutum ástrík- is þeirra afa og ömmu. Á heimili ömmu í Færeyjum var matargerðarlist og handverk í háveg- um haft. Faðir hennar var bátasmiður og vann oft við bátasmíðar hérlendis, þá aðallega í Vestmannaeyjum og á Norðfirði. Það er okkui' minnisstætt þegar hann dvaldi á Hvassafelli og smíðaði báta af færeyskri gerð. Móðir hennar var bakari og komu ömmu til Norðfjarðar fylgdu ferskir vindar á sviði matargerðar. Hún bakaði sér- lega góð brauð, bjó til álegg og gerði lystilegt „smörrebröd" auk þess sem margskonar færeyskur matur var oft á borðum á hennar heimili. Sjálfbjargarviðleitni ömmu var takmarkalaus. Auk þess að sjá um stórt heimili, þar sem oft voru sjó- menn í fæði og húsnæði, færði hún björg í bú með því að selja heimagert konfekt og sleikipinna sem nutu mik- illa vinsælda. Einnig seldi hún dúkkur sem hún bjó til. Sem dæmi um dúkku- gerð ömmu hafa flestir hennar af- komendur fengið jólasveina írá henni að gjöf. Amma var snillingur í að hanna og sauma föt og þar nutu listrænir hæfi- leikar hennar sín vel. Á árum áður þegar settar voru upp skemmtanir og leikrit á Norðfirði var hún oft fengin til að sjá um búningagerð. Á heimili ömmu og afa var skemmtilegt. Þar voru hugmyndir um „frelsi og bræðralag" í öndvegi og jafnan talað hátt og mikið. Afi söng gjaman rímur og amma sá um upp- lestur öðrum til skemmtunar. Á Hvassafelli voru iðulega haldnar skemmtanir og þorrablót. Þá vai- dansað, sungið, farið með grínvísur og gamanmál. Amma var sjálfstæð og framsýn í hugsun. Hún fylgdist vel með og var umhugað um menntun og jafnrétti kynjanna. Hún var samræðugóð og hafði ávallt eitthvað til málanna að leggja. Við kveðjum ömmu um leið og við þökkum langa og farsæla samíylgd. Guðný, Orn, Ingibjörg og Svanhildur. Nú þegar langamma er látin langar okkur frænkurnar að kveðja hana með nokkrum orðum. Langamma okkar hefur lifað svo lengi að við lang- ömmubömin erum orðin fullorðin og sum okkar hafa eignast böm. Þannig var langamma fyrir löngu orðin langalangamma. Hún var mikil mat- argerðarkona. Þegar við komum til hennar fengum við heimabakað brauð með heimagerðri rúllupylsu sem var alveg sér á parti. En það sem var allra best var sleikibrjóstsykurinn sem langamma bjó til. Hann var afar góð- ur og oft með mismunandi bragðteg- undum. Síðustu ár tók langamma á móti okkur á elli- og hjúkrunardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaup- stað og áttum við oft fróðlegar sam- ræður um lífið og tllveruna. Við biðj- um guð að blessa langömmu okkar. Bára, Hrund, Ósk og Anna Sigga. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.