Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson Kvennakórinn Ljósbrá söng fímm lög undir á tónleikunum. Aðventutónleikar þriggja kóra undir Eyjafjöllum Holti - ÞRÍR kórar í Rangár- vallasýslu héldu laugardaginn 2. desember aðventutónleika fyrir fullu húsi við sérstaklega góðar undirtektir áheyrenda. Stjórn- endur kóranna voru Guðjón Hall- dór Óskarsson og Nína María Moraavek. Píanóleikari var Hédi Maróti og í nokkrurn lögum lék á horn László Czenek. Þau spiluðu einnig lögin Ave Maria og Ó, helga nótt, á milli skiptinga hjá kórunum. Fyrst söng Samkór Rang- æinga nokkur lög undir stjórn Guðjóns Halldórs, Englakór frá himnahöll, Nóttin var sú ágæt ein, Ó, borgin kæra Betlehem og Bjart er yfir Betlehem. Sagði sljórnandi frá því að kórinn hefði nýlokið við að syngja á geisla- disk, sem vonandi yrði jólagjöf sem flestra Rangæinga á kom- andijólum. Þá söng kvennakórinn Ljósbrá nokkur lög undir stjórn Nínu Maríu, Kom englalið af himnum hátt, Haustvísur til Máríu, Far, seg þú frétt á fjöllum, Hin fyrstu jól og Hátíð fer að höndum ein. Þá söng Karlakór Rangæinga af geislandi krafti undir stjórn Guð- jóns Halldórs lögin Rangárþing, Þakkarbæn, Kemur heilög hátíð, Syng gleðibrag og Pílagrímakór- inn úr Tannhauser. Að síðustu sungu kóramir saman þijú lög, Slá þú hjartans hörpustrengi, Fögur er foldin og Heims um ból. Rangæingar hafa búið að far- sælu tónlistarstarfi í sýslunni í mörg ár og uppskera nú hrífandi söng þessara þriggja kóra, sem flestir ættu að pjóta. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Verkamennimir frá Póllandi sem em að vinna í Teigaseli em allir skyldir, þrír þeirra bræður og einn frændi þeirra. Frá vinstri Krzysztof Kubielas, Zdzislaf Szczelina, hálfbróðir Kubielas bræðra, Wojciech Mrozkiewicz frændi bræðranna og Kazimierz Kubielas. Pólskir verka- menn á refabúi Vaðbrckku, Norður-Héraði - Fjórir Pólverjar eru við störf á refabúinu í Teigaseli á Jökuldal. Einn þeirra Skölavðrftustlg. Kringlunni, Smáratorgi vinnur þar allt árið en hinir þrír eru þar tímabundið við skinnaverkun sem nú stendur yfir. Kazimierz hefur unnið í Teigaseli í fjögur ár, bróðir hans og frændi hafa unnið hjá Hellu- og steinasteypunni í Fellabæ síðustu þrjú ár en Zdzislaw hefur aðeins verið í skinnaverkun í Teigaseli einu sinni áður, það er í fyrravetur. Það virðist því vera í fjöl- skyldunni að vinna þarna en þess má geta að dóttir Kazimiers býr á ís- landi og er gift íslenskum manni og pólskur tengdasonur hans vinnur hjá Bólholti í Fellabæ. Tolla betur Að sögn Ingibjargar Friðbergs- dóttur, bónda í Teigaseli, gengur illa að fá Islendinga til vinnu. „Svo tolla Pólveijamir betur,“ segir hún. Ingibjörg segir Pólverjana vera mjög góðan vinnukraft og þeir séu duglegir. Aðspurð hvers vegna gengi illa að ráða íslendinga til starfa telur Ingi- björg það vera af því hvað skinna- verkunin stendur stuttan tíma, að- eins um sex vikur, og sennilega vildu Islendingar ekki binda sig svo skamman tíma. Saurkólígerlar í vatnsbóli 1 Varmahlíð Allt neysluvatn soðið VIÐ SÝNATÖKU heilbrigðisfull- trúa Norðurlands vestra úr tveimur vatnsbólum við Varmahlíð í Skaga- firði í síðustu viku kom í ljós talsvert magn saurkólígerla í vatninu, eða um 300 gerlar £ hverjum 100 ml. Til að vatn teljist neysluhæft má ekki einn saurkólígerill mælast. Viðvörunum var strax komið á framfæri við íbúa og íyrirtæki í Varmahlíð og þarf að sjóða allt vatn áður en það er notað. Alls er á sjötta tug húsa í Varma- hlíð, meðal annars skóli, ferðaþjón- usta og verslun Kaupfélags Skag- firðinga. Að sögn Siguijóns Þórðarsonar heilbrigðisfulltrúa er von á frekari niðurstöðum rannsókna á vatnsból- unum í dag, af sýnum sem tekin voru sl. mánudag, og £ kjölfarið verða ákvarðanir teknar um framhaldið. Sigurjón sagði við Morgunblaðið að tveir kostir væru i stöðunni, ann- aðhvort að finna ný vatnsból eða að koma upp sótthreinsibúnaði við þau tvö sem notuð hafa verið. Hann sagð- ist hafa fylgst með þessum vatnsból- um siðastliðin tvö ár, þar sem þau hafa verið talin varasöm, en mengun ekki mælst fyrr en £ sfðustu viku. Ekki liggur ljóst fyrir hvernig mengunin kom tU en að sögn Sigur- jóns var nýlega verið að lagfæra ann- að vatnsbólið, auk þess sem leysing- ar hafa verið á þessu svæði undanfarið. Aður en til sameiningar sveitarfé- laga í Skagafirði kom fyrir nokkrum árum tilheyrði Varmahlið Seylu- hreppi og hafa vatnsbólin verið í um- sjá sameignarfélags sem stofnað var um vatnsveituna af einstaklingum innan hreppsins. Þrátt fyrir samein- ingu hefur Hita- og vatnsveita Skagafjarðar ekki enn tekið yfir þessi vatnsból í Varmahlíð en vilji hefur verið til þess meðal íbúa á staðnum, sem eru alls um 130. Frá þvi i fyrra hafa Varmhlíðingar fengið heitt vatn írá Sauðárkróki íyrir til- stilli Hita- og vatnsveitunnar. Hátíðar- samkoma í Hafralækj- arskóla Laxamýri - Árshátíð Hafralækjar- skóla var haldin um helgina og að þessu sinni stóð mikiö til þar sem nemendur 10. bekkjar sýndu Mess- ías Mannsson eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Hannesar Amar Blandons og Emil- íu Baldursdóttur. Til þessa nutu þeir aðstoðar nemenda úr 8. og 9. bekk auk skólakórsins sem tók þátt í söngleiknum. Ástæðan fyrir því að þetta verk var tekið til sýningar var að fyrir nokkru var haldin þemavika í skól- anum í tilefni af Kristnihátíð og voru viðfangsefnin tileinkuð mörgu þvf sem tengist sögu kristn- innar og kristinni trú. Eitt af verkefnum þemavikunnar var að byija æfingar á Messíasi Mannssyni auk þess sem nemendur gerðu kirkjulistaverk og héldu á þeim sýningu í tengsium við ár- shátfðina. Þar vöktu litlar altaris- töflur nemenda óskipta athygli gesta þar sem Marfa mey var mál- uð í mismunandi umhverfi með Jesúbarnið, svo sem í íslenskri sveit fyrir framan torfbæ. Flestir bekkir skólans voru með atriði á árshátíðinni og vakti túlk- un 1. og 2. bekkinga á tveimur negrasálmum óskipta athygli og 5. bekkingar sýndu leikþáttinn „Ið- unn og eplin“. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Ester Ósk Hilmarsdóttir í hlutverki engils. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Leikgerð yngri barnanna á negrasálmum vakti mikla athygli. Nemendur 6. bekkjar sýndu „Stöð 12“ sem sjónvarpaði beint frá aftöku Jesú og 7. bekkingar sýndu „Hve oft“ sem er leikgerð á dæmi- sögunni úr Matt.eusarguðspjalli sem fjallar um fyrirgefninguna. Aðalstjórnandi Messfasar var Robert Faulkner tónlistarkennari og undirleikari á fiygil var Juliet Faulkner. Á hljómborð léku Andrea Eiðsdóttir og Sveinbjörg Smáradóttir, en trommuleikari var Valþór Freyr Þráinsson. Með hlut- verk Messfasar fór Sigurdís Svein- björnsdóttir, en með hlutverk Maríu Magdalenu fór Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir. Júdas Iskaríot var leikinn af Jónu Björgu Hlöð- versdóttur og Pétur af Jónasi Þór- ólfssyni. Þessi dagskrá á árshátfð var í sannkölluðum hátfðarbúningi og klöppuðu foreldrar og aðrir gestir ungum leikurum mikið lof f lófa. Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson Aðaleigendur fyrirtækisins þeir Tómas Sigurðsson og Svan Tómasson við nýja sorpbílinn. Auk þeirra eru á myndinni fulltrúi þriðju kynslóðar- innar, Páll Gunnar Svansson, fimm ára. Nýr sorpbíll fyrir Snæfellsbæ Ólafsvík - Tómas Sigurðsson ehf. í Ólafsvík hefur keypt nýlegan sorp- tökubíl frá Þýskalandi. Bíllinn er af gerðinni MAN og er sérhannað- ur í þetta hlutverk. Bíllinn er með 24 rúmmetra tunnu og getur því tekið í einni ferð allt sorp sem til fellur viku- lega í Snæfellsbæ. Allur búnaður bílsins er af nýjustu gerð svo sem sjónvarp sem sýnir ökumanni allt sem gerist aftan við bílinn. Tómas Sigurðsson hefur annast sorptöku í Olafsvík og síðar Snæ- fellsbæ allt frá árinu 1979. Fyrir- tækið annast þar að auki ýmsa verktöku og hefur verið farsælt og notið vinsælda. Starfsmenn fyrir- tækisins eru nú fjórir fastráðnir auk lausráðinna. Framkvæmdir í Skorradalshreppi Fyrsta skóflustung- an að nýju íbúðarhverfí Grund - Skipulagt hefur verið svæði með sjö einbýlishúsum í landi Grundar í Skorradal. Framkvæmdin er á vegum Skorradalshrepps, sem hefur tekið land á leigu undir íbúðar- húsabyggðina. í fyrsta áfanga verða reist þrjú hús, tvö af þeim verða leiguíbúðir, en þriðja húsið verður sett í sölu á vor- mánuðum. Stefnt er að því að leiguíbúð- irnar verði tilbúnar í lok mars mánaðar, en keypt voru eining- arhús frá fyrirtækinu Finnd- omo oy, Finnlandi. Umboðs- maður er Jón Hjörleifsson, Mosfellsbæ. Mikið hefur verið spurt um húsin og ljóst, að leiguhúsnæði vantar á svæðið. Ekki er ólík- legt að einstaklingar eða hús- næðisfélag fái þær fjórar lóðir sem óráðstafað er, en stefnt er að þvi að hverfið verði fullbyggt á2-3 árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.