Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 65
UMRÆÐAN
Því ekki að hækka
kennsluskyldu?
HVER og einn
þeirra 20 þúsund nem-
enda sem nú eru utan
skólanna hefur eytt
drjúgum skildingi í
skólabækur og skóla-
gjöld. Hann hefur
stundað námið í rúmar
11 vikur nú í haust, og
skilað mörgum stórum
verkefnum í náms-
greinum sínum. Það
sem upp á vantar er um
þriggja vikna kennsla
og prófatími. Náist
samningar um mánaða-
mót mætti ljúka
kennslu í desember og
halda próf í janúar.
Kröfur kennara um leiðréttingu
hafa nú meiri meðbyr meðal al-
mennings en oft áður. Bent hefur
verið á að endurnýjun sé ekki næg
innan stéttarinnar, að ungt fólk
velji sér ekki kennslu sem lífsstarf.
Því virðist nú vera lag til að sýna
það í verki að yfirvöld meti starf
okkar meira en svo að laun kennara
sem gerist ritari í ráðuneyti hækki
um tugþúsundir á mánuði, eins og
tilgreint var í sjónvarpsfréttum um
daginn.
Eg fæ ekki orða bundist vegna
síðasta útspils samninganefndar-
innar, að hækka kennsluskyldu
móti nokkurri launahækkun. Hér á
eftir langar mig að útskýra hvers
vegna ég tel slíkar hugmyndir frá-
leitar.
Það eru 15 ár síðan ég byrjaði að
kenna. Mér fannst þá og finnst enn
starf framhaldsskólakennara vera
mjög spennandi. Það sem heillaði
mig mest var kannski hversu skap;
andi þetta starf getur verið. í
hagnýtri kennslufræði og á nám-
skeiðum var mikil uppspretta hug-
mynda um nýjar kennsluaðferðir
sem gaman var að reyna. Skemmti-
legast var þegar sköpunargáfa
nemendanna komst á flug. Að baki
mörgu því sem tókst best lá sam-
starf fagkennara þar sem hug-
myndum var miðlað og vinnugleði
einkenndi andrúmsloftið. Dæmin
sýna líka að heildarárangur er best-
ur þar sem samstarf er gott,
markmið sett og þeim fylgt eftir.
Lengi vel kenndi ég í hlutastarfi,
oft um 18 tíma á viku (sem telst
reyndar fullt starf meðal tungu-
málakennara í Noregi). Sjaldan hef
ég unnið jafn langan vinnudag fyrir
jafn litlu kaupi. Eins og allir þekkja
sem hafa reynt að miðla þekkingu,
þarf maður sjálfur að vera mun bet-
ur að sér en nemendurnir. Þegar
tekin er ný bók í kennslu - t.d. ný
skáldsaga - liggur mjög mikil vinna
að baki. Kennarinn þarf að kynna
sér bakgrunn sögunn-
ar, og lesa verk sem
tengjast henni eða
fjalla um hana. Svo
þarf að búa til verk-
efni sem orðið gætu
leið nemandans að
kjarna bókarinnar,
mismunandi eftir
aldri hans og þroska.
Þá er að ákveða hvað
skal gera í hverjum
tíma, og hvernig loka-
verkefnið á að vera.
Þessi vinna öll er
mjög gefandi þegar
vel tekst til. Texta-
bækur ætlaðar til
tungumálakennslu
eru líka þannig að það þarf að að-
laga þær, og gera verkefni sem
henta betur okkar nemendum en
þeirri alþjóðablöndu sem bækurnar
eru samdar fyrir. Viðbótarefni svo
sem dægurlög, sjónvarpsfréttir,
kvikmyndir, efni af netinu og annað
sem finna má í umhverfi okkar lífg-
ar upp á kennslu og eykur áhuga
nemenda. Þegar slíkt efni er mat-
reitt er kennarinn í hlutverki
kennslubókarhöfundar.
En hlutastarf - og svo fullt starf
- dugir skammt til framfærslu. Og
fyrr en varir eru það yfirvinnutím-
arnir sem bjarga fjárhagnum. Sól-
bjartir helgardagar í nóvember að
undanförnu voru sérstakir fyrir
margra hluta sakir. Þótt það sé ekki
skemmtilegt að vera kennari í verk-
falli, fór ekki hjá því að ég hugsaði
um það að helgarfrí í nóvember hef
ég varla átt undanfarin ár. I byrjun
annar geta kennarar tekið sér frí
um helgar - a.m.k. annan daginn -
en alls ekki þegar líður á önnina.
Því þegar kennd er meira en full
kennsla verða skilaverkefni nem-
endanna svo mörg að virkir dagar
duga aðeins fyrir undirbúning en
ekki yfirferð ritgerða og stærri
verkefna, sem bíða þá helganna. Að
kenna hverja önn líkist því að stinga
sér til sunds - mestöll hugsun snýst
um að komast í gegn um allt það
sem fyrir er lagt þar til prófum lýk-
ur.
Foreldrar unglinga þekkja það
vel að ekki er alltaf auðvelt að halda
þeim að vinnu. Framhaldsskóla-
kennari er verkstjóri oft 30 ungl-
inga í hverjum hópi. í fullu starfi
felst að kenna fjórum til sex hópum
24 stundir á viku. Dag hvem eru
það 4-6 stundir. Eðli starfsins sam-
kvæmt er kennarinn í sviðsljósi all-
an tímann. í síðasta verkfalli líkti
einn dálkahöfundur dæmigerðri
kennslustund við afmælisveislu. Áð-
ur en hún getur hafist þarf að und-
irbúa hana, meðan á afmælinu
Kennarar
Kröfur kennara um leið-
réttingu, segir Eva
Hallvarðsdóttir, hafa nú
meiri meðbyr meðal al-
mennings en oft áður.
stendur mæðir mest á gestgjafan-
um og á eftir þarf hann að ganga
frá. Allir sem gegnt hafa hlutverki
gestgjafa þekkja ánægjuna eftir vel
heppnað boð, en líka þreytuna sem
fylgir. Því er fjögurra til sex tíma
kennsla á dag engan veginn sam-
bærileg við jafn langa setu við skrif-
borð, svo dæmi sé tekið, og
frágangur og undirbúningur næsta
dags er eftir. Vegna aðstöðuleysis í
skólunum vinna flestir kennarar
hluta undirbúningsins heima, þar
sem þeir hafa komið sér upp að-
stöðu.
Fyrir utan þetta hafa þeir flestir
umsjónarbekk, viðtalstíma og taka
þátt í þróunarstarfi t.d. vegna nýrr-
ar námskrár. Nýjum kennsluhátt-
um þar sem tölvur koma við sögu
fylgja gjörólik vinnubrögð, og hug-
búnaðarsmíð. Allt þetta skal kenn-
arinn inna af hendi, en dirfist hann
að fara fram á leiðréttingu kjara
sinna sem verða sífellt lakari miðað
við aðra háskólamenn er spurt:
Hvað ert þú tilbúinn að láta af hendi
á móti?
Það eru kostir starfsins sem hafa
fengið mig til þess að halda áfram í
kennslunni, þrátt fyrir lág laun. Að
fylgjast með þroska unglinga sem
koma inn í skólann á sextánda ári
og útskrifast ungar manneskjur um
tvítugt auðgar líf hvers framhalds-
skólakennara. I hvert skipti sem
samningar voru lausir vonaði ég að
nú yrði vinna okkar betur metin og
kaupið hækkað, nú myndi full
kennsla duga til framfærslu. í hvert
skipti sem mistókst að ná fram leið-
réttingu setti það svip sinn á vinnu-
andann í skólanum og fleiri spurðu
sjálfa sig hvers vegna þeir ættu að
leggja svona mikið á sig þegar það
væri svo lítils metið. Mér fannst líka
umfjöllun um bág launakjör verða
til þess að nemendur bæru síður
virðingu fyrir kennurum sínum. En
ekki fyrr en nú finnst mér yfirboð-
arar okkar gera lítið úr störfum
okkar.
Höfundur hefur stundað kennslu við
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel-
fossi, Háskóla íslands, Fjölbrauta-
skólann við Ármúla og Menntaskól-
ann við Hamrahlíð.
1 •>
Eva
Hallvarðsdóttir
JD HLAUPAHJÓL: MICRO, RAZOR, JD BUG
Skeifunni 11, sími 588 9890
Rúnnað horn úr
öryggisgleri. 4 eða 6 mm.
Stærðir 80x80 eða 90x90 cm.
Verð frá kr. 27.750,- stgr.
ÖLL T0PP MERKIW í HLAUPAHJÓLUM
öll stökk og
götuæfingar.
Með og án
dempara.
Svissnesk
hönnun.
Fislétt og
níðsterk hjól
úr flugvélaáli.
Sterkar suður
og öflug
hönnun
gefa mikið
burðarþol
og miklu betri
endingu.
Þola betur
irenda Kringlunnar
CASA