Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT AP Lee Yong-soo frá Suður-Kóreu og Tomasa Salinog frá Filippseyjum, sem báðar voru hnepptar í kynlífsþrælkun af japanska hernum, heilsast fyrir utan dómshúsið í Tókýó í gær. Kynlífsþrælar tapa dómsmáli Tókýó. AFP, AP. ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Tókýó hafnaði f gær bótakröfu 46 filipps- eyskra kvenna, sem japanski her- inn hélt föngnum sem kynlífsþræl- um í seinni heimsstyrjöld. Konurnar höfðu krafið japanska ríkið um samtals 920 milljónir jena, um 720 milljónir króna, í bætur. I dómsorðinu segir að einstakl- ingar hafi ekki rétt samkvæmt al- þjóðalögum til að krefjast skaða- bóta af ríkisstjómum, auk þess sem málið sé fyrnt. Konurnar hyggjast áfrýja úrskurðinum til hæstaréttar Japans. Rétturinn hafnaði einnig sambærilegri kröfu suður- kóreskrar konu í síðustu viku. Þær kvennanna sem vom við- staddar réttarhöldin í Tókýó létu í ljósi vonbrigði með niðurstöðuna. „Japanskir hermenn nauðguðu mér. Þeir komu fram við okkur eins og við værum svfn. Er þessi úr- skurður þeim í vil réttlætanlegur?" spurði hin 73 ára gamla Ortencia Martinez og hét því að halda barátt- unni áfram. Konurnar lýstu einnig furðu á þvi að dómstóllinn hefði að- eins tekið sér nokkrar mínútur til að kveða upp úrskurðinn. „Mér var haldið nauðugri og misþyrmt í meira en ár. En það tók [dómstól- inn] aðeins nokkrar mínútur að gefa svar við þjáningum mínum,“ sagði Hilaria Bustamante, sem er 74 ára. „Þessi úrskurður gerir mér ekki kleift að endurheimta sæmd mi'na. Ég krefst maklegra mála- gjalda fyrir að hafa verið numin á brott, pyntuð og nauðgað.“ Talið er að japanski herinn hafi haldið um 200 til 300 þúsund kon- um nauðugum sem kynlifsþrælum á hernámssvæðum sinum f Asiulönd- um í síðari heimsstyrjöldinni. Kon- urnar sem hér um ræðir höfðuðu mál gegn japönskum sljórnvöldum árið 1993 og vísuðu til alþjóðasátt- mála frá 1907, þar sem kynlífs- þrælkun er lýst ólögleg, og til al- þjóðlegra reglna um meðferð óbreyttra borgara á hernámssvæð- um. Lögmenn japanskra stjóm- valda halda því hins vegar fram að alþjóðalög nái ekki til skaðabóta- krafna einstaklinga, heldur gildi þau aðeins um samskipti milli ríkja. Sjö önnur mál um kynlífsþræla japanska hersins eru nú fyrir rétti í Japan. Breska dagblaðið The Guardian Konungdæmið ólöglegt? London. Morgunblaðið. „SEGÐU henni að lesa Guardian,“ gall við í Dennis Skinner, þing- manni Verkamanna- flokksins, þegar hirð- maður gekk í þingsalinn samkvæmt ævafornri venju og sagði Elísabetu II. Bretadrottningu að biðja þingmenn að ganga á sinn fund. Þetta var aðeins einn liður í langri athöfn hirðsiða sem um- kringja þann atburð er drottningin les stefnu- ræðu forsætisráð- herra. Breska blaðið The Guardian notaði daginn í gær til að hefja birtingu greinaflokks um fram- tíð konungdæmisins og lagði til að lýðveldi tæki við þegar Bretadrottn- ing fellur frá eða hverfur af öðrum ástæðum frá störfum. Um leið legg- ur blaðið einnig til að lög, sem mæla svo um að aðeins elstu synir, aldrei dætur, geti erft krúnuna og banna öðrum en mótmælendatrúar ríkis- erfðir, verði afnumin. í blaðinu er lögð áhersla á að drottningin ríki að- eins en ráði engu. „Konungdæmið sem skiptir engu máli“ kallar Guardian konungdæmið í leiðara blaðsins sem birtist á for- síðu blaðsins í gær. Um þetta séu all- ir sammála, hvort sem þeir séu kon- unghollir, lýðveldissinnar eða láti það sig engu skipta. „Vandinn er ekki ein ákveðin kon- ungsfjölskylda eða einn ákveðinn meðlimur hennar. Vandinn er sjálft embættið,“ segir síðan í leiðaranum. Nú þegar þinghúsið hafi verið hreinsað af flestum aðalsmönnum þá sé almennt samþykki fyrir því að þessi hreinsun hafi verið löngu tíma- bær. Núverandi fyrirkomulag nafn- bóta og titla sé fjarri því að vera full- gott en enginn mæli fyrir að horfið verði tU fyrri siða. „Um leið er konungdæmið eins og strandaður hvalur, eini hluti óskrif- aðrar stjómarskrár okkar sem byggist á því hver maður slysast til að fæðast. Þetta er í sjálfu sér óverjandi." Síðan rekur blaðið hvemig margt, sem umdeilanlegt sé nú á dögum, eigi rætur að rekja tU konungdæmis- ins, til dæmis miðstýr- ing og mikið vald for- sætisráðhema á kostnað þingsins. Einn- ig er bent á að einmitt þessi fæðingartilviljun, sem einkenni hver ríki, stríði gegn öllum reglum og lögum nútímans um að kynferði og trú viðkomandi eigi ekki að ráða gengi varðandi embætti og annað. Það geti ekki staðist nú- tímalög að standa vörð um fmm- burðarrétt karla og útilokun sumra frá embætti vegna trúarbragða. Lögin endurspegli andúð á kaþólikk- um, sem var ríkjandi er lögin voru sett, en ekki aðstæður í dag. Því hyggst blaðið bera það undir dóm- stóla hvort lög um ríkiserfðir stand- ist lög um mannréttindi. Guardian birti einnig í gær skoð- anakönnun um afstöðu fólks til laga um ríkiserfðir annars vegar og það hvort fólki vilji heldur vera þegnar konungs eða borgarar. Tæplega 70 prósent sáu ekkert athugavert við að kaþóhkkar, börn ógiftra foreldra eða ættleidd börn gætu staðið tU ííkis- erfða. Og aðeins þriðjungur að- spurðra kusu að vera þegnar en tveir þriðju vildu vera borgarar. Blaðið birti einnig nokkrar grein- ar um ýmsar hliðar þess málsins. Ymsir em spurðir álits og þarna koma fram mismunandi sjónarhorn á mál sem flestir Bretar taka annars sem nokkurs konar náttúmlögmáli. Elísabet Breta- drottning á leið í þingið í gær. Viðbrögð við gagnrýni Bandarrkjamanna á væntanlega Evrdpustoð í varnarmálum Brussel. Reuters. Bretar ítreka stuðning við NATO Reuters Þýskir skriðdrekahermenn við friðargæslu í Bosniu. Bandaríkjamenn óttast að væntanleg Evrópustoð muni ekki verða að veruleika vegna þess að framlög Evrópuríkjanna til varnarmála séu of lítil. UMMÆLI WiUiams Cohens, vamar- málaráðherra Bandaríkjanna, um að áætlunin um svonefnt hraðlið EvTÓputfkjanna geti veikt Atlants- hafsbandalagið, NATO, hafa valdið miklu fjaðrafoki í Evrópulöndum. Fullyrt er að starfsbróðir Cohens í Bretlandi, Geoff Hoon, hafi beðið Cohen að tala varlegar. En banda- ríski ráðherrann endurtók gagnrýni sína og sagði í viðtali við BBC í gær að hugmyndir um aukið framlag Evrópuþjóðanna í vamarmálum, Evrópustoðin, mættu ekki verða til þess að sett yrði á laggimar nýtt skipulag hemaðaraðgerða er ógnaði starfi NATO. Cohen hefur varað við því að Evrópustoðin gæti orðið póU- tískt sjónarspil um sjálfstæði gagn- vart Bandaríkjunum og loftkastalar sem ýti undir klofning en raunvera- legt framlag Evrópumanna til her- mála verði ekki aukið. Gæti slík þróun orðið vatn á myllu þeirra stjómmála- afla í Bandaríkjunum sem vUja minnka framlagið til vamarsam- starfsins í Evrópu. Hoon sagði í gær að ekki hefði ver- ið neitt nýtt í umælum Cohens. „Bret- ar h'ta á NATO sem gmndvöU vamar- stefnu sinnar og munu gera það áfram,“ sagði hann. Ráðherrann bætti því við að svo gæti farið að Bret- ar myndu hafna því að taka þátt í hraðliðshugmyndinni. „Við munum ekki skrifa undir neitt sem ógnað gæti NATO,“ sagði Hoon. „Ef við fá- um ekki í gegn þær skipulagshug- myndir sem við höfum lagt tU myndi verða ákaflega erfitt fyrir okkur að skrifa undir. En ég er viss um að við munum fá þær í gegn.“ Heimildarmaður í breska utanrík- isráðuneytinu sagði fréttamanni Reuters-fréttastofunnar í gær að um- mæU Cohens hefðu að hluta verið við- vömn til þeirra afla í Frakklandi sem vilji stofna fastaher á vegum Evrópu- sambandsins, ESB, en um leið eins konar kveðjuávarp frá ríkisstjórn Bills Clintons forseta í Washington. Aðeins 100 manna starfslið Talsmenn breska ráðuneytisins fullyrða að ekki verði um eiginlega, hemaðarlega yfirstjóm að ræða í tengslum við hraðhðið sem á að verða reiðubúið árið 2003. í reynd muni ESB-ríkin aðeins stilla saman streng- ina þegar upp komi ástand sem bregðast þurfi við með sameiginlegu átaki og starfslið hraðliðsins í Brassel verði ekki nema um 100 manns. Bretar og Frakkar ákváðu 1997 að auka samstarf í varnarmálum og í fyrra var samþykkt að koma á fót sér- stöku 60 þúsund manna Evrópuher- liði er gn'pa má til með skömmum fyr- irvara, svonefnt hraðlið. Verður hægt að nota það til aðgerða sem NATO stendur ekki sem heild að en Evrópu- sambandsþjóðimar álíta nauðsynleg- ar öryggi sínu. Ljóst er að hraðliðið verður að geta notað ýmsan búnað í eigu NATO. Evrópuríki sem ekki eiga aðild að ESB en eru í NATO, þ.e. Tyrkland, Noregur og ísland, vilja fá tryggingu fyrir því að þau geti haft áhrif á ákvarðanir ESB í vamarmál- um og hafa því andmælt því að Evrópustoðin fái aðgang að búnaðin- um hjá NATO. Em Tyrkir þæ- fremstir í flokki. Fleira er enn óljóst um áætlunina og einkum hefur verið bent á að Evrópuríkin verði að auka útgjöld sín til vamarmála eigi Evrópustoðin að verða eitthvað annað en nafnið tómt. En íyrst og fremst hafa margir haft áhyggjur af því að NATO og Evrópu- stoðin gætu ekki starfað hlið við hlið, önnur stofnunin yrði að víkja. Talsmenn íhaldsflokksins í Bret- landi hafa gagnrýnt stjóm Tony Blairs fyrir að stefna í voða samstarf- inu við Bandaríkjamenn og hraðliðið sé aðeins fyrsta skrefið að Evrópu- sambandsher. Robertson lávarður, framkvæmda- stjóri NATO, er sagður hafa varað Blah- við i nóvember og ráðamenn hafi síðan reynt að draga úr áhersl- unni á hugtakið sjálfstæði í talinu um Evrópustoð. Robin Cook, utanríkis- ráðherra Bretlands, og Madeleine Al- bright, utam-íkisráðherra Bandaríkj- anna, rituðu í sameiningu grein í breskt dagblað fyrir nokkram vikum og lýstu fullum stuðningi við Evrópu- stoðina. Gerðu þau gys að málflutn- ingi þeirra sem teldu hugmyndina geta ógnað samvinnunni í NATO. En heimildarmenn í aðalstöðvum NATO í Bmssel segja nú að ráðherramir hafi gert of lítið úr hættunni á ágrein- ingi innan bandalagsins og hafi markmið þeirra verið að styðja við bakið á tilraunum Blairs til að auka þátttöku Breta í Evrópusamstarfinu. Dregur ekkert til baka Cohen sagði í viðtalinu við BBC í gær að Bandaríkin styddu ákaft hug- myndir ESB um aukið og sjálfstætt framlag Evrópumanna til vamar samstarfsins en þeir vildu að tryggt yrði að skipulag Evrópustoðarinnai- yrði gott svo að það styrkti en veikti ekki starf NATO og samstarfið yfir Atlantshafið. Evrópustoðin mætti ekki ýta undir tvíverknað í öryggis- og vamarmálum og heldur ekki sam- keppni milli ESB og NATO. Cohen sagðist í sjónvarpsviðtalinu ekki sjá ástæðu til að draga neitt til baka af því sem hann sagði á fundi varnarmálaráðherra NATO í Bmssel á þriðjudag. Hann minnti á að „nær allir“ vamarmálaráðherrar NATO á fundinum hefðu klappað að ræðunni lokinni. „Mér fannst ég tala býsna varlega,“ sagði Cohen. „Ef til vill hefur orðaval mitt og tjáningarmáti orðið til þess að vekja athygli aðildarþjóðanna.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.