Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hagfræðistofnun Háskóla Islands birtir kynslóðareikninga áranna 1994-1998 Stjómvöld hafa rekið „kyn- slóðavæna“ efnahagsstefnu Hrein skattbyrði núiifandi kynslóða 20 15 10 5 0 á verðlagi ársins 1998 milljónir kr. 1994-96 cki.dtl 1 10 1 IL 65 70 75 80 85 90 0 5 10 15 20 25 30 35 40 45 50 55 60 Aldur 1998-----1 -5 1997- -10 1 SKATTBYRÐI núlifandi ogframtíð- arkynslóða íslendinga léttist stöðugt á árunum 1994 til 1998, samkvæmt svonefndum kynslóðareikningum sem Hagíræðistofnun Háskóla Is- lands hefur gert. Stofnunin birti skýrslu sína um kynslóðareikningana í gær en þeir sýna hvemig skattgreiðslur núlifandi kynslóða og endurgreiðslur frá hinu opinbera dreifast á einstaklinga eftir aldri þeirra og kyni. Með þessum út- reikningum er einnig lagt mat á skattbyrði framtíðarkynslóða íslend- inga. Hagur framtíðarkynslóða batnaði á tímabilinu 1994-98 Meðal þess sem bent er á í skýrsl- unni er að svokallaður ójafnvægis- stuðull hafi verið að lækka á um- ræddu tímabili, en hann gefur til kynna hversu mörg prósent skatt- byrði núlifandi kynslóða þarf að þyngjast til að verða jöfn skattbyrði framtíðarkynslóða. Ljóst sé því að hagur framtíðarkynslóða haíi vænk- ast á tímabilinu 1994 til 1998. Er ástæðan fyrir minnkandi ójafnvægi að hluta rakin til þess að undanfarin ár hafi verið mikil uppsveifla í ís- lensku efnahagslífi. Einnig er á það bent að þegar litið sé á svokallaða kerfisafkomu, þ.e. af- komu ríkissjóðs eftir að leiðrétt hef- ur verið íyrir hagsveiflunni, virðist sem raunverulegur viðsnúningur hafi orðið á rekstri ríkissjóðs á und- anförnum árum. „Undanfarin ár hafa verið hag- felld, ríkissjóður hefur verið rekinn með afgangi frá árinu 1998 og ríkið hefur greitt niður lán. Stjórnvöld hafa í krafti góðs efnahagsástands rekið „kynslóðavæna“ efnahags- stefnu. Fremur en að nota tekjuaf- gang til að auka útgjöld til hinna ýmsu málaflokka hafa þau greitt nið- ur lán, en slík stefna er mjög í þágu komandi kynslóða. Þetta kemur fram í því að ójafnvægið milli núlifandi kynslóða og framtíðarinnar hefur minnkað. Ef litið er til framtíðar er hins vegar ekki trúlegt að núverandi ástand efnahagsmála sé viðvarandi. Mun líklegra er að á tímabilinu sem er til skoðunar sé hagkerfið nánast á toppi hagsveiflunnar. Ef efnahags- ástandið versnar til muna frá þvi sem nú er er ólíklegt að stjómvöld geti haldið núverandi stefnu sinni til streitu,“ segir í skýrslunni. Kynslóðareikningamir eru byggð- ir á ákveðnum forsendum, m.a. nú- virðingu á greiðslu- og útgjalda- straumum og á ákveðnum forsendum, s.s. um 1,5% hagvöxt, og á tiltekinni spá um mannfjöldaþróun í framtíðinni. Er þetta í þriðja skipti sem Hag- fræðistofnun birtir slíka útreikninga. I skýrslunni er m.a. sýnd dreifing skattbyrði núlifandi kynslóða á aldr- inum 0 til 90 ára miðað við meðaltal áranna 1994-1996, 1997 og 1998. í ljós kemur að yngri kynslóðir greiða meira til hins opinbera en þær fá til baka yfir ævina en eldri kynslóðir fá meira til baka en þær greiða, skv. ákveðnum forsendum sem útreikn- ingamir eru byggðir á. Einnig kemur fram í niðurstöðum að skattbyrði yngri kynslóða jókst umtalsvert milli 1997 og 1998 á sama tíma og skattbyrði hinna eldri breyttist sáralítið. Niðurstöðumar sýna einnig að skattbyrði karla er þyngri en skatt- byrði kvenna og jókst munurinn milli áranna 1994 og 1998. Er megin- ástæðan sú að þrátt fyrir að greiðslur kvenna í tekjuskatt hafi hækkað hlutfallslega meira en tekjuskatts- greiðslur karla, þá er hækkunin í krónum talið mun meiri hjá körlum. Kynslóðareikningarnir sýna einn- ig hversu mikið þyrfti að auka tekjur hins opinbera eða lækka framlög til að ná jafnvægi á milli núlifandi og komandi kynslóða. Kemur t.d. í ljós að árlegar heild- artekjur hins opinbera af tekjuskatti og útsvari þyrftu að hækka um 29%, eða um tæplega 17,2 milljarða kr., eða að lækka þyrfti útgjöld t.d. til fræðslumála um 69% eða til heil- brigðismála um 48% til að ná jafn- vægi á milli skattbyrði núlifandi kynslóða og framtíðarkynslóða ís- lendinga. Lúkning skulda dugar ekki til að nájafnvægi milli kynslóða Sérfræðingar Hagfræðistofnunar leggja einnig mat á það í skýrslunni hvaða áhrif það hefði fyrir niður- stöður kynslóðareikninganna ef ríki og sveitarfélög greiddu upp skuldir sínar og væru skuldlaus. í ljós kemur að þrátt fyrir að skattbyrði framtíð- arkynslóðanna lækki töluvert þá dugar lúkning opinberra skulda ekki ein og sér til að tryggja jafnvægi á milli kynslóðanna. „Af framansögðu má sjá að ýmsar leiðir koma til álita til að draga úr ójafnvægi kynslóðanna og einnig væri hægt að framkvæma sambland af aðgerðunum. Rétt er þó að taka fram að þetta eru einungis vísbend- ingar, því ekki eru tekin önnur áhrif sem breytingarnar kunna að valda. Einnig gefa kynslóðareikningar sér ýmsar einfaldandi forsendur. Af þessum sökum verður að taka niður- stöðum reikninganna með ákveðnum fyrirvara og ekki nota þá til stefnumarkandi ákvörðunartöku," segir í skýrslunni. Segir íbiia í Álandi hafa orðið fyrir áreiti frá vegfarendum Gatan lokuð næstu mánuði Gullsmiðir merktir með brons- skildi GULLSMIÐIR í Félagi íslenskra gullsmiða hafa látið steypa brons- skjöld með merki félagsins sem not- aður verður til að merkja verslanir og verkstæði félagsmanna. Halla Bogadóttir formaður Fé- lags íslenskra gullsmiða segir markmiðið vera að vekja athygli á þeirri þjónustu og ábyrgð sem felst í því að versla hjá íslenskum gullsmiðum. „Það er svo mikill inn- flutningur á skartgripum og marg- ir að selja skartgripi að við vildum merkja hvar faglærða gullsmiði LAGASTOFNUN Háskóla íslands hefur ekki getað tekið að sér verk- efni í meira en ár og hefur þurft að endursenda beiðnir um álitsgerðir þar sem prófessorar fá ekki greitt fyrir yfirvinnu umfram tiltekið hámark vegna úrskurðar kjaran- efndar um launakjör prófessora. „Við megum ekki vinna neina yfir- vinnu sem heitið getur,“ segir Sig- urður Líndal lagaprófessor. „Þetta hefur leitt til þess að prófessorar geta ekki tekið að sér verkefni. Margir eru það nálægt toppnum að þeir geta ekki unnið aukavinnu á vegum Háskólans, því þá fá þeir hana ekki borgaða." Lagastofnun hefur unnið ýmsar álitsgerðir á umliðnum árum en nokkrar beiðnir um lögfræðiálit liggja nú óafgreiddar hjá stofnun- inni. Að sögn Guðrúnar Zoéga, for- manns kjaranefndar, fá prófessorar Bronsskjöldurinn með merki Félags íslenskra gullsmiða verð- ur framan á verslun og verk- stæðum félagsmanna. væri að finna,“ segir Halla. Hún bætir við að talsvert sé um að fólk kaupi skartgripi erlendis. Oft á tíðum reynist um gallaða eða jafnvel svikna vöru að ræða. laun skv. röðun í fimm launaflokka, sem byggist á mati á „afköstum og árangri í ,starfi“. „Mánaðarlaunin eru mismunandi en þar að auki er greidd föst yfirvinna, sem fer hækkandi eftir því sem prófessor- arnir eru hærra launaðir. Því til viðbótar geta þeir fengið laun fyrir breytilega yfirvinnu og hún er mest í lægstu launaflokkunum og fer nið- ur í ekki neitt í þeim efsta,“ segir hún. „Prófessor sem kominn er í hæsta launaflokk fær því ekki greitt sérstaklega fyrir að vinna álitsgerðir fyrir Lagastofnun enda fær hann fastar yfirvinnugreiðslur sem eiga að fela í sér greiðslur fyrir alla yfírvinnu sem unnin er á vegum lagadeildar,“ sagði hún. Aðspurð sagði Guðrún líklegt að þetta yrði meðal þeirra atriða sem kæmu til skoðunar ar næst þegar laun prófessora verða ákveðin. HRAFNHILDUR Sigurðardóttir, íbúi í Álandi, sem hefur verið í for- svari íyrir íbúa í götunni og Akralandi sem hafa viljað loka íyrir almennan gegnumakstur um Aland í átt að sjúkrahúsi Landsspítala - háskóla- sjúkrahúss, kveðst telja óvíst að gat- an verði opnuð fyrir umferð þrátt fyr- ir úrskurð úrskurðamefndar. Ami Þór Sigurðsson, formaðui- skipulags- og bygginganefndar, segir að sú ákvörðun standi óröskuð að loka göt- unni til eins árs þrátt fyrir úrskurð- inns en tilrauninni ljúki í mars nk. Urskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur fellt úr gildi ákvörðun skipulags- og umferðar- nefndar Reykjavqkur frá 24. janúar 2000 um breytingu í deiliskipulagi í Fossvogi vegna umferðartakmarkana um Aland. I úrskurðinum kemur fram að það sé hvorki á valdsviði úrskurðamefndarinnar að fjalla um þá ákvörðun borgaryfirvalda að leita heimildar lögreglustjóra til þess að loka umferð um Áland með tilvísun í 81. gr. umferðarlaga, svo sem gert var, né um ákvörðun lögreglustjóra um að verða við þeirri málaleitan og standi þær ákvarðanir því óhaggaðar, þrátt íýrir niðurstöðu málsins. Hrafnhildur segir að sveitarfélag þurfi að samþykkja breytinguna og beina því til lögreglustjóraembættis að þessi breyting verði gerð. Gatan sé því enn lokuð og hún trúi því ekki að borgaryfirvöld snúi við blaðinu og opni fyrir almenna umferð. Hrafnhildur segir að íbúar við Áland, Akraland og reyndar við fleiri hliðargötur, hafi búið við gríðarlega mikla umferð í langan tíma í gegnum þessar litlu íbúðargötur. Stærstur hluti Fossvogshverfis sé skipulagður sem litlir botnlangar. Hún segir að í næsta nágrenni sé 1.500-2.000 manna vinnustaður og gríðarleg umferð sem fylgi honum. Auk þess er í spítalanum slysadeild, lengst af einnig heilsu- gæslustöð, fjórir leikskólar auk þess er mikil umferð vegna allra þeirra að- fanga sem svo stórri stofnun fylgir. Ekki megi gleyma öllum þeim sem komi í heimsóknir á sjúkrahúsið. Stór hluti þessarar umferðar hafi farið um Áland. Hrafnhildur segir að það sé stefna borgaryfirvalda að beina umferð úr litlum íbúðargötum á stofnbrautir. Þeir sem hafi ekið um Áland á leið sinni að sjúkrahúsinu sé flestir líklega að koma úr austurhluta borgarinnar. Hún segir að þá ætti varla að muna um það að aka áfram Bústaðaveginn að gatnamótunum við Háaleitisbraut °g beygja þar niður í stað þess að beygja niður Eyrarland og aka síðan um Aland að sjúkrahúsinu. Hrafnhildur segir að fullorðin hjón í Álandi hafi neyðst til þess að reisa mannhæðarháa girðingu umhverfis hús sitt og setja plexigler íyrir svefn- herbergisglugga sem snúa að Álandi. í fjölbýlishúsum við Akraland eru íbúðir eldri borgara. Hrafnhildur seg- ir að þeir hafi ekki getað beitt sér í þessu máli en kvartað sáran undan ástandinu. Barst hótun „Við viljum hins vegar mjög gjarn- an að sjúkrabílar eigi þama greiða leið. Við viljum líka að leiðin sé opin ef eitthvað aðkallandi kemur upp,“ segir Hrafnhildur. „En við viljum engu að síður að starfsmenn í þessari stóru stofnun sýni okkur það umburðar- lyndi að nota frekar stofnbrautina," segir Hrafnhildur. Hún segir að þeir sem eiga leið að sjúkrahúsinu hafi sýnt íbúum í göt- unni áreiti. Þeir hafi t.a.m. fært lokun- arskilti inn á lóð og fyrir útidyr hjá einstaklingum sem búi við Áland. Sjálf fékk hún hótun um að sprautað yrði á rúður í húsi hennar ef gatan yrði ekki opnuð fyrir umferð. Hún segir að lögreglan hafi verið einn Áland verður lokað fyrir gegnum- akstri a.m.k. fram í mars 2001 morgun í september í götunni og snúið við bílum sem ætluðu í trássi við bann að aka gegnum götuna. Hún segir að alveg frá því götunni var lok- að hafi engu að síður verið gegnum- akstur um hana. Þetta sé þó alltaf sama fólkið. „Þetta skiptir þó minnstu máli því þetta er svo lítið brotabrot af þeirri umferð sem var jafnan um götuna,“ segir Hrafnhildur. Hún ítrekar að borgaryfirvöld hafi þá stefnu að beina eigi umferð frá íbúðargötum á stofn- brautir og niðurstaða úrskui'ðar- nefndarinnar er á skjön við þessa stefnu. Heimildar leitað með stoð í umferðarlögum Árm Þór Sigurðsson, formaður skipulags- og bygginganefndar, segir að sú ákvörðun standi óröskuð að loka götunni til eins árs þrátt fyrir úrskurð úrskurðarnefndarinnar enda hafl ver- ið leitað heimildar til þess með stoð í umferðarlögum. Árni segir að tilraun- inni ljúki í mars nk. og alltaf hafi stað- ið til að endurskoða málið. „Við höfum vitað það að það hefur verið óánægja með þetta fyrirkomu- lag í hverfinu og við metum þá hags- muni upp á nýtt og sjáum til hver reynslan hefur verið að þessu tímabili loknu,“ segirÁmi. A Lagastofnun Háskóla Islands Ekki unnið álits- gerðir í heilt ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.