Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Tyrkir fá stórlán hjá IMF IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn, samþykkti í gær að veita Tyrklandsstjóm stórt lán, rúm- lega 650 milljarða íslenskra króna. Verður það notað til að binda enda á óróann á fjármála- markaðnum í landinu. Bulent Ecevit, forsætisráð- herra Tyrklands, sagði í gær, að lánið yrði notað tál að styrkja bankakerfið, flýta fyrir einka- væðingu og vinna gegn verð- bólgu samkvæmt sérstakri áætlun IMF. Erlendir fjárfestar hafa flúið Tyrkland að undan- fomu vegna ásakana um spill- ingu í bankakerfinu en ríkið hef- ur neyðst til að kaupa upp 10 banka. Talið er, að um verulegt fjármálamisferli hafi verið að ræða í sumum þeirra. Aftaka í Texas MAÐUR, sem dæmdur hafði verið til dauða fyrir að nauðga og myrða sjö ára gamla stúlku, var líflátinn í Texas í fyrrakvöld. Var það 38. aftakan í ríkinu á þessu ári og er það met í banda- rískri sögu. TVeir aðrir fangar bíða þess að vera líflátnir í vik- unni þannig að metið verður hugsanlega 40 manns. í Texas bíða nú sjö menn aftöku. í Bandaríkjunum öllum hafa alls 80 menn verið líflátnir á þessu ári. Eykur hóf- drykkja greindina? HÓFDRYKKJUMENN era klárari í kollinum en þeir, sem aldrei láta vín inn fyrir sínar varir. Var skýrt frá þessu í breska vikuritinu New Scientist en þar segir, að þetta sé niður- staða könnunar í Japan. Sé greindarvísitala hófdryklqu- mannanna til jafnaðar 3,3 stig- um hærri en þeirra, sem aldrei drekka, og hjá konum er hún 2,5 stigum hærri. Engu máli skipti hvers konar vínanda menn drakku. Ekki vita japönsku vís- indamennimir hvemig á þessu stendur en sumir geta sér til, að þeir, sem drekka, borði meiri fisk en aðrir. Það er nefnilega siður í Japan að borða fisk með japönskum vínum, sake og hrís- gijónavíni, og ljóst þykir, að mikil fiskneysla auki gáfumar. Aukinaðstoð við Iraka ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna samþykkti einróma í gær að auka mannúðaraðstoð við íraskan almenning og heim- ilaði jafnframt, að Iraksstjóm notaði um 46 milljarða íslenskra króna til endumýjunar í olíuiðn- aði. Samkvæmt samningum um mannúðaraðstoð við írak mega stjómvöld þar selja olíu á heimsmarkaði gegn því, að fyrir andvirðið verði keypt matvæli, lyf og aðrar slíkar nauðsynjar og auk þess má verja hluta af fénu til viðhalds í olíuiðnaðinum. Þótt samþykktin eða málamiðl- unin hafi fengið stuðning allra vora samt nokkur ríki mjög óánægð með afgreiðsluna og töldu hana ganga of skammt. Var þar um að ræða Frakkland, Kína, Rússland og Malasíu. Demókrati höfðar mál vegna utankjörstaðaratkvæða í Flórída Krefst þess að fímmtán þús- und atkvæði verði dæmd ógild VONIR demókratans Als Gore um sigur í forsetakosningunum í Banda- ríkjunum gætu oltið á dómsmáli sem hann hefur ekki viljað taka þátt í. Kjósandi úr röðum demókrata höfð- aði þetta mál í Seminole-sýslu í Flór- ída. Hann heldur því fram að repúblikanar hafi breytt rúmlega 2.000 umsóknum um utankjörstaðar- seðla og krefst þess að öll utankjör- staðaratkvæðin, 15.000 talsins, verði úrskurðuð ógild. Verði dómarinn við þessari kröfu fer Gore með sigur af hólmi í kosningunum í Flórída með um það bil 4.800 atkvæða mun. I andstöðu við málflutning Gore í kosningadeilunum í Flórída hef- ur Gore lagt áherslu á nauðsyn þess að „öll atkvæðin verði talin“ og kraf- an um að öll utankjörstaðaratkvæðin í Seminole verði lögð til hliðar era því í algjörri andstöðu við málflutning hans til þessa. Réttarhöldin í málinu hófust í gær fyrir rétti í Leon-sýslu. Daginn áður hafnaði dómarinn í málinu, Nikki Clark, kröfu repúblikana um að því yrði vísað frá. Lögfræðingar Bush segja að lög Flórída heimili ekki að utankjörstað- aratkvæðin verði úrskurðuð ógild. „Þetta er ys og þys út af engu,“ sagði einn þeirra, George Terwilliger. „Þetta vora lítilfjörleg mistök sem breyttu engu. Það er alls engin ástæða til að ætla að þetta séu ógild atkvæði." Stefnandinn í málinu heldur því hins vegar fram að eftirlitsmaður kosninganna í Seminole, repúblikan- inn Sandra Goard, hafi leyft repúblikönum að nota skrifstofu sína til að bæta við nafnnúmeram kjós- enda sem vantaði á umsóknir þeirra um utankjörstaðarseðlana. Repúblikanar hafi þannig „með sviksamlegum hætti orðið þess vald- andi að þúsundir ógildra kjörseðla vora gefnar út“. Kosningalöggjöf Flórída var breytt árið 1998 vegna viðamikilla kosningasvika í tengslum við utan- kjörstaðaratkv'æði í borgarstjóra- kosningum í Miami árið áður. Bætt var við ákvæði um að í umsóknunum um utankjörstaðarseðlana yrðu að- koma fram ýmsar upplýsingar um kjósandann, meðal annars nafnnúm- er hans. „Kjánalegt dómsmál" James Lindgren, lagaprófessor við Northwestem University, fjallar um Einn af stuðningsmönnum Als Gore í Flór- ída hefur krafíst þess að öll utankjörstaðar- atkvæðin í Seminole-sýslu, 15.000 talsins, verði dæmd ógild á þeirri forsendu að repúblikanar hafí breytt rúmlega 2.000 um- sóknum um utankjörstaðarseðla. AP Lary Dale, bæjarstjóri í Sanford í Flórída, ávarpar blaðamenn og hóp kjósenda, sem greiddu atkvæði utan kjörstaðar í Seminole- sýslu, fyrir utan dómhús í Tallahassee. þetta mál í grein í The Wall Street Joumai undir íyrirsögninni: „Kjána- legt dómsmál í Seminole-sýslu“. Lagaprófessorinn segir að repúblikanar og demókratar hafi greitt fyrir prentun umsóknanna. „Báðir flokkamir sendu þær til stuðningsmanna sinna sem fylltu eyðublöðin út og sendu þau til kjör- stjómarinnar. Báðir flokkarnir settu nafnnúmer kjósendanna á umsóknir þeirra. Eini munurinn er sá að repúblikanar settu númerin á um- sóknimar eftir að þær vora lagðar fram en demókratar bættu þeim við áður en kjósendurnir fengu þær.“ Lindgren segir að málið snúist ekki um kosningasvik eða sviksam- legar breytingar á kjörseðlum. Eng- inn haldi því fram að eitthvað hafi verið at- hugavert við kjörseðl- ana. Hann bætir við að ásakanir demókrata um að eftirlitsmaðurinn hafi hyglað repúblikön- um sérstaklega með því að leyfa þeim að nota skrifstofur kjörstjómar sýslunnar eigi ekki við rök að styðjast. „Það var ekkert rangt við að repúblikanar fengju að nota borð kjörstjórnar- innar til að inna verk sitt af hendi, hafi það að öðra leyti verið lög- legt.“ Lagaprófessorinn segir að þótt skráning- arupplýsingar um kjós- endur séu yfirleitt trún- aðarmál séu starfsmenn stjómmála- flokkanna undanþegnir þessum takmörkunum samkvæmt lögum Flór- ída. Repúblikanar hafi haft rétt á að fá upplýs- ingamar sem þurfti á umsóknimar og hafi reyndar haft nafnnúmer kjósendanna í eigin tölv- um. „Lög Flórída kveða á um að kjósendumir leggi fram umsóknir (sem var gert) og „láti í té“ nafnnúm- er sem aðrir gerðu fyrir þeirra hönd. Ekki er tekið fram að enginn annar megi snerta þær eða fylla út umsókn- imar.“ Ástæða þess að repúblikanar þurftu að bæta nafnnúmeram kjós- endanna við umsóknimar er sú að prentsmiðja þeirra uppgötvaði að númerin vantaði á umsóknareyðu- blöðin. Þessi mistök uppgötvuðust ekki fyrr en eyðublöðin höfðu verið send til kjósendanna. Þegar repúblikanar komust að þessu ósk- uðu þeir eftir því að fá að bæta nafn- númeranum við á skrifstofu kjör- stjórnarinnar og eftirlitsmaðurinn varð við þeirri beiðni. „Gróf afbökun á lögunum“ Lagaprófessorinn kemst að þeirri niðurstöðu að umsóknirnar í Semin- ole hafi ekki verið ólöglegar og utan: kjörstaðaratkvæðin séu því gild. „I lögum Flórída er tekið mjög skýrt fram að gallar á umsóknum fyrir lög- lega kjósendur ógildi ekki atkvæði þeirra," segir Lindgren. „Enginn dómstóll, sem fylgir lögum Flórída, gæti strikað út 4.700 til 15.000 utan- kjörstaðaratkvæði þegar ekkert þeirra er ólöglegt." The New York Times tók í sama streng í forystugrein í gær. Blaðið segir að eina leiðin til að hafna at- kvæðum umræddra kjósenda repúblikana í Seminole væri að hafna öllum utankjörstaðaratkvæðunum 15.000 þar sem ógjömingur væri að greina hópana tvo í sundur. „Það væri gróf afbökun á lögum Flórída og almennri réttsýni að hafna svo mörgum atkvæðum, sem borgarar Flórída greiddu í góðri trú, á þeirri forsendu að embættismenn sýslunn- ar hafi gerst sekir um dómgreindar- brest með því að leyfa starfsmönnum flokks að fylla út umsóknareyðublöð fyrir utankjörstaðarseðla." Gore gagnrýndur The New York Times gagnrýnir A1 Gore fyrir að hafa ekki hvatt stuðningsmenn sína til að falla frá dómsmálinu eða lýsa því skýrt yfir að ekki kæmi til greina að hann hagnað- ist á niðurstöðu þess. Blaðið lýsir af- stöðu varaforsetans sem „skorti á stjórnvisku". „Við höfum stutt til- raun hans til að vinna upp forskot George W. Bush með því að bæta við atkvæðum sem voru lögð til hliðar með ósanngjörnum hætti í sýslunum Palm Beach og Miami-Dade. En Gore ætti ekki að sigra með því að draga frá atkvæði sem vora greidd keppinaut hans með löglegum hætti.“ Gore virðist fylgjast grannt með dómsmálinu í Seminole þótt hann taki ekki þátt í því. Hann rakti stað- reyndir málsins þegar hann ræddi við blaðamenn í Hvíta húsinu í fyrra- kvöld. Hann sagði að starfsmönnum Demókrataflokksins hefði ekki verið gefinn kostur á að breyta umsóknar- eyðublöðum sem vora ekki fyllt út á réttan hátt. „Mér sýnist þetta ekki vera sanngjarnt," bætti hann við. För geimfeijunnar Endeavour til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar Unnið að lag- færingum á sólarrafhlöðum Canaveral-hSrði, Houston. AFP, AP, Reuters. TVEIR geimfarar úr áhöfn geim- ferjunnar Endeavour luku í fyrrinótt við að tengja sólarrafhlöður sem þeir höfðu komið fyrir á Alþjóðlegu geim- stöðinni á sunnudag. Raforkuforði geimstöðvarinnar eykst til muna með tilkomu sólarrafhlöðubúnaðar- ins og verður nú unnt að taka alla hluta hennar í notkun. Geimgangan í fyrrinótt tók sex og hálfa klukkustund en auk þess að ljúka við að tengja rafhlöðumar komu þeir Joe Tanner og Carlos Noriega fyrir loftnetsdiski á eining- unni Unity og undirbjuggu lægi þar sem rannsóknareiningin Destiny verður tengd við geimstöðina í næsta mánuði. Þegar fyrri sólarrafhlöðu- vængurinn var settur upp á sunnu- dag losnuðu tveir strengir af vindum og talíum svo vængurinn var ekki al- veg útbreiddur. I geimgöngunni í fyrrinótt báru geimfaramir mynda- vélar á hjálmunum sem sendu mynd- ir af slöku strengjunum svo unnt væri að undirbúa viðgerðir. Áformað var að Tanner og Noriega færa svo í þriðju geimgöngu sína í nótt til að ljúka lagfæringum á strengjunum. Sólarrafhlöðuvængimir era sam- anlagt 73 metrar að lengd og era 11,4 metrar að breidd en þeir vega samtals um 17 tonn. Búnaðurinn kostaði um 600 milljónir bandaríkja- dollara, eða um 52 milljarða króna, og gert er ráð fyrir að hann geti framleitt 64 kílóvött af rafmagni. Sést frá jörðu Alþjóðlega geimstöðin er á spor- baug í 376 km fjarlægð og hún fer 16 hringi í kringum jörðina á degi hverjum, frá vestri til austurs. Eftir að sólarrafhlöðuvængjunum var komið fyrir er geimstöðin nú vel greinanleg frá jörðu og er raunar með björtustu hlutunum sem sjást á næturhimninum. Að sögn stjörnu- fræðinga sést hún best einum til tveimur klukkustundum fyrir sólar- upprás eða eftir sólarlag því þá er himinninn myrkur en stöðin upplýst. Á vef Geimferðastofnunar Banda- ríkjanna (NASA) um Alþjóðlegu geimstöðina er að finna upplýsingar um hvenær hún mun sjást frá ís- landi. Slóðin er http://space- flight.nasa.gov.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.