Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 5Í SIGURJON FANNDAL TORFASON + Siguijón Fann- dal Torfason fæddist í Hvítadal í Saurbæ í Dalasýslu 7. febrúar 1926. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 22. nóv- ember siðastliðinn og fór útför hans fram frá Staðar- holtskirkju í Saurbæ 2. desember. Steinn Steinarr skrifar um Saurbæ í Dalasýslu sem fegurstu sveit á Is- landi. Það er vandalaust fyrir mig að vera honum sammála. Eg var svo heppinn að komast í sveit í þennan fagra dal Hvolsdal, í Hvítadal til Torfa frænda og Guðrúnar Sigurðar- dóttur árið 1950, þá fimm ára. Þetta var mér mjög erfitt fyrsta daginn, svo ungur sem ég var innan um alla ókunnuga. En ekki þarf að orðlengja það að þarna var ég næstu átta sumrin og naut ég hvers dags þar. Þau sem eft- ir voru í föðurhúsum voru þá Sigur- jón, Sigurósk og Sighvatur. Ailir á heimilinu voru mér ótrú- lega góðir og naut ég þess að hjálpa til við búskapinn eins og ég gat hverju sinni. Þetta varð einnig til þess að for- eldrar mínir kynntust þessu fólki en móðir mín, Matthildur Stefánsdóttir, var alin upp í Búðardal á Skarðs- strönd en ekki í foreldrahúsum í Bessatungu eins og öll hin systkinin. Ég fékk strax mikið dálæti á Sig- urjóni við kynningu, enda barngóð- ur, rólyndur og mjög traustur. Svo þegar aldur færist yfir mann sjálfan eykst enn virðingin fyrir manninum. Hreinn og beinn, ljóðelskur og alltaf stutt í kímnigáfuna. A þessum árum sá Sigurjón um dreifingu á öllum pósti í sveitinni og fór ég þá ófáar póstferðimar með Sigurjóni á sumarkvöldum. Man ég enn að þær voru alltaf farnar á þriðjudögum. Þá fann ég einnig hvað hann naut mikillar virðingar á hverjum bæ og vildu allir að við kæm- um inn og þæðum veit- ingar. Einnig var aukastarf þarna í sveitinni að sjá um mæðuveikigirðing- ar, viðhald og uppsetn- ingu, og sá Sigurjón um það, svo þar var alltaf mikið um að vera. A áttunda áratugn- um fann Sigurjón sinn lífsförunaut, gæðakon- una Elísu Berhelsen. Þau eiga soninn Torfa saman en fyrri bömum Elísu var Sigurjón sem besti faðir. Til þeirra hjóna var gott að koma og gat maður eftir á sagt: Af hverju kom ég ekki oftar? Kæri frændi, þakka þér fyrir öll árin og góðu minningarnar Manégæskuárin yndisbros-ogtárin gleðiogsviðasárin sól og daga langa. Vinarhöndávanga nú græt ég sárt um sólarlag þau sumarbros og liðinn dag. (Stefán frá Hvítadal.) Innilegustu kveðjur mínar og Villu til ykkar Elísu og Torfa og systkina. Stefán Sigurðsson. Mikið vom mamma og börnin hennar sem bjuggu hjá henni á þeim tíma lánsöm þegar þú komst inn í líf þeirra. Það er ekki allra og það þarf stórt hjarta til að taka börnum maka síns eins og sínum eigin. Mér er minnistætt eitt haustið þegar við systurnar þrjár komum í sveitina til að vinna í sláturhúsinu þar sem þú varst verkstjóri, ég var ófrísk og þurfti að fara heim vegna verkja sem ég var með. Ég var rétt nýkomin heim þegar þú hringdir til að athuga hvernig ég hefði það og hvort allt væri í lagi. Þetta lýsti því hversu umhyggju- samur þú varst gagnvart öðram og þeim sem þér þótti vænt um. Oft var líf og fjör í Hvítadal, sérstaklega á sumrin og hjá smáfólkinu, hávaði og læti sem oft fylgir þegar mörg börn eru saman komin og allir orðnir hálf pirraðir á látunum nema þú. Þú hafð- ir svo lúmskt gaman af því að fylgj- ast með börnunum í leik og hlusta hvað þeirra fór á milli. Aldrei man ég eftir því að hafa séð þig skipta skapi. En Arnar segist muna eftir því einu sinni, þá fóru þeir Torfi í kappakstur hvor á sinni dráttarvélinni og þá varð afi reiður, sagði hann. En það veit ég að þú óttaðist meira um drengina en dráttarvélarnar. Mamma kvartaði oft yfir því þegar Torfi var lítill að það þýddi ekkert að banna honum neitt því að það var alltaf viðkvæðið hjá þér: „Afhverju má hann þetta ekki greyið...“ En svo sannarlega hefur hann ekki borið skaða af því að oft varð mamma að láta í minni pokann og leyfa það sem hún vildi banna. Þrátt fyrir fimmtíu og eins árs aldursmun ykkar feðga þá voruð þið miklir fé- lagar frá fyrstu tíð. Þú komst alltaf fram við Torfa eins og jafningja og vin, því er þetta mikill missir fyrir hann að missa bæði föður og vin. Það var alltaf gaman að koma til ykkar í Hvítadal en einhveira hluta vegna höfðaði sveitalífið og búskapurinn aldrei neitt sérstaklega til mín og fór ég afskaplega sjaldan í útihúsin. Eitt af þessum fáu skiptum fór ég í fjósið þar sem þú varst að mjólka, ég ætl- aði lengra inn í fjósið og þurfti þá að klofa yfir flór sem þarna var en af því að það lá spýta þarna yfir steig ég á hana og hún brotnaði. Fóturinn á mér fór á kaf í flórinn, hvað mér fannst þetta ógeðslegt og niðurlægj- andi. Ég sá útundan mér að þú horfðir á þetta en lést sem þú hefðir ekki tekið eftir neinu. Seinna um daginn þegar þú sást að ég var búin að jafna mig á þessu hlóst þú manna mest. Þetta sagði manni hversu til- litssamur þú varst gagnvart tilfinn- ingum annarra. Nú eru að koma jól, þú hlakkaðir alltaf til jólanna af því að þá færi daginn að lengja og birta til aftur. Ég veit að það er þegar far- ið að birta til hjá þér og ég veit að það var vel tekið á móti þér þegar þú yfirgafst þetta líf. Mig langar að þakka þér fyrir að hafa fengið að kynnast þér og þinni manngæsku. Elsku mamma og Toifi, ég votta ykkur mína dýpstu samúð, svo og öðrum aðstandendum. Lífið er aðeins lítíl stund, lánuðogtetínaftur. Þú fæðist og lifir á lánaðri grund, uns leggur þig dulinn kraftur. (LúðvígThorberg.) Inga Amars. + Fjóla Pedersen fæddist 4. febr- úar 1916. Hún lést á heilsuheimili í Porsgrum í Noregi 2. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Níels Peder- sen og kona hans, Ágústa Finnboga- dóttir, búsett í Reykjavík. Fjóla giftist 1942 Ingolf Evensen, liann var norskur hermaður í norsk- enska fiughernum á íslandi. Við stríðslok fluttu þau til Noregs og voru búsett í Porsgrum. Þau eign- uðust tvö börn, Inger Johann og Niels Karal. Fjóla og Ingolf skildu. Barnabörnin eru fjögur og barnabarnabörnin sjö. Útför Fjólu fór fram frá Pors- gmm í Noregi 7. nóvember. Deyrfé, deyjafrændur deyrsjálfriðsama. Enorðstírdeyraldregi hveim er sér góðan getr. Fjóla mín, mér finnst þetta erindi hæfa þér og ég - systir þín - þekkti þig vel. Við höfum búið á sama svæði í Noregi í 55 ár. Þegar maður er langt að heiman tengist maður sterkum bönd- um þeirri einu mann- eskju í nágrenninu sem maður hefur lifað æsku- og ungdómsárin með og þannig var það með okkur systur. Við gátum talað saman um liðin ár, sungið íslensk lög, farið í ferðalög saman bæði til Islands og víða um Noreg. Við vorum vinkonur og trúnaðarvinir, glödd- umst með hvor annarri þegar allt gekk vel og vorum til huggunar og trausts þegar eitthvað gekk á móti. Þú varst mjög heil- steypt manneskja, hreinskilin, trygglynd og ótrúlega hjálpsöm, vildir helst hjálpa öllum þar sem þörf var, mjög vinsæl á elliheimilinu þar sem þú vannst í mörg ár. Þú varst alltaf tilbúin að veita huggun og ástúð þeim sem veikir voru og leið illa. Ég veit líka að þú sendir pen- ingaupphæð í hverjum mánuði í mörg ár til SOS Barnebyer og Redd barna, og það var ekki af því að þú værir svo vel stæð, þú hafðir ekki annað en launin þín en áttir alltaf nóg. Svo, Fjóla mín, það verður kalt og tómt eftir þig og við erum mörg sem söknum þín, sérstaklega börnin þín og barnabörn, ég og mín börn og ekki síst sonur þinn Níels Karl sem bjó með þér í mörg ár og hugsaði vel um þig þegar heilsan fór að bila. Það var sárt að sjá þig síðasta daginn, þú varst allt í einu fárveik, fékkst bæði heilablæðingu og hjartabilun - gast ekki talað. Þér leið illa og þú varst óróleg, kannski vildir þú segja eitt- hvað. Ég sat hjá þér í marga tíma, talaði við þig og raulaði gömul ís- lensk lög sem ég vissi að þér þótti vænt um. Ég sagði að þú þyrftir ekki að vera hrædd, það væri ekkert að óttast, það mundi verða tekið vel á móti þér við ferðalok. Það er mín trú og mín vissa og það náði til þín, þú varst róleg og sofnaðir og eftir nokkra tíma varstu farin og laus við allan sársauka. Fjóla mín, við, öll fjölskyldan á ís- landi og í Noregi, vinir og vanda- menn, munum alltaf muna þig og vera þakklát fyrir að hafa þekkt þessa fínu og heiðvirðu manneskju, sem þú varst. Vonandi höfum við lært eitthvað af þér, eitthvað sem við getum borið áfram út í okkar um- hverfi. Fyrir hönd allra ættingja og vina. Þín systir, Anna. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á net- fang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. FJOLA PEDERSEN t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA RAGNHEIÐUR GISSURARDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, andaðist á sjúkradeild Hrafnistu þriðjudaginn 5. desember. Hrefna Jónsdóttir, Ríkharður Árnason, Einar Jónsson, Valgerður M. Karlsdóttir, Jón Ragnar Ríkharðsson, Árni Ingi Ríkharðsson, Sævar Þór Ríkharðsson, Jón Benjamín Einarsson, Karl Einarsson, Jónína Ragnheiður Einarsdóttir og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBRANDUR GUNNAR GUÐBRANDSSON, Búðargerði 5, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 5. desember. Guðbjörg Jóhannsdóttir, Ásta G. Guðbrandsdóttir, Garðar Ágústsson, Jóhanna J. Guðbrandsdóttir, S. Stefán Ólafsson, Jón Marinó Guðbrandsson, Elfn Elísabet Baldursdóttir, Anna Kristín Guðbrandsdóttir, Benjamín M. Kjartansson, Guðbjörg Jóna Jóhanns, Vilhjálmur B. Þorvaldsson, afabörn og langafabörn. t ESTER GUÐLAUG WESTLUND, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 4. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Steingrímur Westlund og fjölskylda. Ástkærir foreldrar okkar og tengdaforeldrar, afi og amma, sonur og dóttir, bróðir og systir, JÓN RÚNAR ÁRNASON og VILBORG JÓNSDÓTTIR, Túngötu 17, Keflavík, sem létust af slysförum fimmtudaginn 30. nóvember, verða jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 8. desember kl. 14:00. Jón Ingi Jónsson, Bergiind Sigþórsdóttir og Rúnar Ingi Jónsson. Árni Rúnar Jónsson, Guðrún Andrea Borgarsdóttir og Alexandra Líf Árnadóttir, Björn Vilberg Jónsson. Árni Vilhjálmsson, Guðrún Magnúsdóttir. Jón Stígsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Kristín Árnadóttir, Vilhjálmur Árnason, Ingibjörg Gerður Bjarnadóttir, Björn Línberg Jónsson, Helga Jónsdóttir. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, fósturföður, tengda- föður, afa og iangafa JÓNS KORTS ÓLAFSSONAR, Haganesi.Fljótum, Skagafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunarinnar á Siglufirði fyrir góða og hlýja umönnun. Guðlaug Márusdóttir, börn, fósturbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.