Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Embætti ríkistoll- stjóra lagft niður VERÐI stjórnarfrumvarp sem lagt var fyrir Alþingi í upphafí vikunnar samþykkt verður embætti ríkistoll- stjóra lagt niður frá og með næstu áramótum. Verkefni ríkistollstjóra ganga til fjármálaráðuneytis og til embættis tollstjórans í Reykjavík. Geir H. Haarde, fjármálaráð- herra kynnti starfsmönnum þessar breytingar á fundi á mánudag. Gert er ráð fyrir að 23 starfsmenn rík- istollstjóra fái önnur störf hjá tolla- yfirvöldum eftir því sem tök eru á. Geir segir að með breytingum verði hægt að nýta það fjármagn sem fer til tollgæslu betur en áður. Með þessari hagræðingu megi efla vissa þætti tollgæslu s.s. fíkniefna- eftirlit. Eftirlitshlutverk ríkistollstjóra og yfirstjórn tollamála færist að mestu yfir í fjármálaráðuneytið. Önnur verkefni s.s. samræming tollgæslu færast til tollstjórans í Reykjavík sem þó fær ekki boðvald yfir öðrum tollstjórum. í athugasemdum við laga- frumvarpið segir að breytingunum á lögunum sé ætlað að efla toll- gæslu og gera hana skilvirkari m.a. með því að samnýta starfskrafta og fækka stjómsýsluembættum. Embætti ríkistollstjóra var stofnað með tollalögum árið 1987 en tollstjórinn í Reykjavík veitti því forstöðu til ársins 1990 þegar Sig- urgeir A. Jónsson tók við embætti ríkistollstjóra. Morgunblaðið/Kristj án Gagnvirkar aug- lýsingar á mbl.is FRÉTTAVEFUR Morgunblaðsins, mbl.is, hefur hafið sölu og birtingu á gagnvirkum auglýsingum á vefn- um. Að sögn Hallgríms Jónassonar, sölufulltrúa netauglýsinga, eru auglýsingamar á svokölluðu flash- formi. Núna er á vefnum auglýsing frá Landsbankanurn um fjármála- þjónustuna Vörðuna. Hallgri'mur segir að netauglýs- ingin byggi á broti sjónvar- psauglýsingar um sama efni. Inni á auglýsingunni er jafnframt hægt að nálgast nánari upplýsingar um Vörðuna án þess að nauðsynlegt sé að fara inn á heimasíðu Landsbank- ans. Kjósi menn hins vegar að skrá sig í þjónustuna fara þeir inn á heimasíðuna. Hallgrimur segir að þetta sé fyrsta gagnvirka auglýsingin á mbl.is. Hann segir að auglýsingar af þessu tagi gefi auglýsendum aukin sóknarfæri því þeir nýti sér miðilinn betur með því að bjóða upp á gagnvirkar auglýsingar. Auglýs- endum er boðið upp á tvenns konar gjald. Annars vegar fyrir borða með fastri staðsetningu og hins vegar fyrir beinar heimsóknir. Úkraínumönnum synjað um hæli ÞRÍR Ukraínumenn fóru af landi brott í gær en þeim hafði verið sypjað um hæli hér á landi þar sem Útlend- ingaeftirlitið taldi þá ekki uppfylla skilyrði Genfar-sáttmálans frá 1951' um réttarstöðu pólitískra flótta- manna. Einn mannanna kærði úr- skurðinn til dómsmálaráðuneytið sem staðfesti hann. Mennimir komu til landsins með Norrænu hinn 20. júlí sl. og gáfu sig fram við Útlendingaeftir- litið daginn eftir. Georg Kr. Lárus- son, forstjóri Útlendingaeftirlitsins, segir mennina hafa verið með lett- nesk vegabréf en Lettlendingar þurfa ekki vegabréfsáritun hingað til lands. Hólmfríður Gísladóttii-, deildar- stjóri hjá Rauða kross Islands, segir að Úkraínumennii'nir hefðu beðið þess með óþreyju að komast úr landi þegar ljóst var að þeim yrði synjað um hæli. Þeir hafi því verið mjög sátt- ir við að fara af landi brott í gærmorg- un enda búnir að bíða þess frá því í ágúst að komast heim. Tafir á brott- för mannanna voru vegna þess hve langan tíma tók að útvega lögleg ferðaskilríki. „Það sem er sorglegt við þetta er að það eru glæpaklíkur sem selja mönnum fölsuð vegabréf og nýja framtíð í einhverju öðru landi,“ segir Hólmfríður. „Ef þessir menn hefðu komið hér með atvinnu- og dvalarleyfi hefði þetta getað gengið hjá þeim.“ Túnþökur lagðar í desember Guðmundur Magnússon, formaður Veiðifélags Leirvogsár Mengun frá byggð ógnar lífríki árinnar ÞÖKULAGNING telst ekki meðal hefðbundinna verkefna á aðventu, en strákarnir hjá Túnþökusölu Kristins voru engu að síður í óða önn að leggja þökur á Eyrar- landsholti á Akureyri í gærdag. Þar er nú verið að leggja loka- hönd á frágang utandyra við hús- næði Búseta, við Holtateig. íbúum verða afhentar nýjar íbúðir þar í næstu viku og því eins gott að hafa hraðar hendur. Við afhend- ingu íbúðanna nær Búseti á Akur- eyri þeim áfanga að afhenda fimmtugustu íbúðina sína í bæn- um. MENGUN frá byggð ógnar lífríki Leirvogs og Leirvogsár að sögn Guðmundar Magnússonar, for- manns Veiðifélags Leirvogsár. Hann segir að frárennslismál séu í ólestri og óttast að Leirvogsá hljóti sömu örlög og Elliðaárnar ef ekkert verði aðhafst. Þá segir hann að vargfugl, sem sæki í urðunarstöðina í Álfsnesi, drepi fjölmörg laxaseiði á niðurgöngutíma þeirra á vorin. „Við erum að berjast við það að halda lífi hérna í Leirvogsá - Elliða- árnar eru nú farnar og við vitum nú líklega afhverju það er,“ sagði Guð- mundur og vísar til umræðunnar um áhrif mengunar frá byggð á líf- ríki Elliðaáa. „Við setjum um 7.500 gönguseiði í Leirvogsá á hverju ein- asta sumri til viðbótar því sem er í ánni, en við verðum að láta menn fylgja seiðunum út á vorin vegna þess að mávurinn sækir í þau. Þau sem lifa koma væntanlega aftur í ána næsta sumar, en þau sem kom- ast ekki í gegnum mávagerið koma náttúrlega ekki aftur.“ í Morgunblaðinu í gær á miðviku- dag kom fram að úrgangur frá hreinsistöðinni í Ánanaustum í Reykjavík væri fluttur vikulega til urðunar upp í Álfsnes, en Guð- mundur sagði að það væri ekki það eina. Hann sagði að allt frárennsli frá Mosfellsbæ, sem væri 6.000 manna byggð, færi í Leirvoginn og mengaði hann og að það sem eftir sæti í rotþrónum væri sogað upp í tanka og urðað í Álfsnesi. „Þannig að það er nú meira en eitthvað smávegis úr einhverri stöð við Ánanaust sem er urðað í Álfs- nesi. Ef byggðin heldur áfram að stækka í Mosfellsbæ og bæjaryfir- völd ganga ekki frá sinum frá- rennslismálum þá er lífríki Leir- vogs og Leirvogsár í mikilli hættu. Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og Reykjavík verða að taka höndum saman um að reyna aðkomaþessu í lag.“ Guðmundur sagði að vargfuglinn væri einnig hættulegur lífríki árinn- ar. „Við bundum miklar vonir við það þegar okkur var sagt að það ætti að bagga allt sorp og urða daglega en nú sé ég böggunarstæðurnar blasá við. Meðan sorphaugarnir eru opnir verður ekki hægt að útrýma þess- um vargfugli, því ef hann hefur ekki nóg að éta hérna í ósnum þá fer hann bara í Álfsnes.“ Guðmundur sagði að það væri ekki rétt sem Sigurður Skarphéð- insson gatnamálastjóri hefði sagt í Morgunblaðinu að mávarnir væru helst til vandræða í ágúst og sept- ember. Hann sagði að þeir væru þarna í stórum hópum allt árið um kring og því þyrfti að fá meindýra- eyði Reykjavíkurborgar öðru hvoru til að skjóta vargfuglinn við annan mann. Hann tók sem dæmi að árið 1996 frá 20. maí til 8. júlí hefðu 643 fuglar verið skotnir. Þá sagði hann að á tveimur dögum í séptember á síðasta ári hefðu 366 fuglar verið skotnir. Guðmundur sagðist hafa sent Samfökum. sveitarfélagá á höfuð- borgarsvæðinu bréf árið 1997 þar sem hann hefði farið fram á fjár- hagsaðstoð við að skjóta fuglinn en fengið neikvætt svar. Hann sagðist á sínum tíma hafa viljað fara með gröfu niður í fjöru til að dýpka ána, til þess að seiðin gætu varið sig bet- ur gegn vargfuglinum. En þar sem Leirvogur væri á náttúruminjaskrá hefði hann sent Náttúruverndar- ráði erindi árið 1996 vegna þessa, en aldrei fengið neitt svar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.