Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Um peningalegar eignir erlendis PENINGALEGAR eignir íslendinga er- lendis eru nú komnar yflr 300 milljarða og hafa ekki verið meiri frá því að innistæður voru leystar út í bresk- um bönkum eftir heimsstyrjöldina síð- ari. Eignasöfnunin hófst að marki eftir að fj ármagnshreyfingar urðu frjálsar 1995 og frá þeim tíma hefur fjöldi fjárfesta leitað á erlend mið. Margir hafa velt fyrir sér þýð- ingu þessa fyrir þjóð- arbúskapinn. Sú skoð- un hefur oft heyrst að erlendar eignir skapi viðnám gegn viðskipta- hallanum og eyði áhrifum af gengis- falli krónunar á innlent atvinnulíf. Aðrir halda því fram að þessi fjár- straumur út úr landinu, og þá sér- staklega af völdum lífeyrissjóðanna, sé helsti hvatinn að gengislækkun krónunnar síðustu misseri og þeim vandræðum sem því fylgja. Viðskiptahalli og eignatekjur Erlend markaðsbréf gefa af sér arð og vexti, sem koma landinu til góða á sama hátt og útflutningstekj- ur. En við þessar aðstæður kemur það fyrir lítið. Utanríkisviðskiptin fara fram í erlendri mynt og við- skiptahalla verður að fjármagna með erlendum lánum eða með bein- um fjárfestingum útlendinga. Þetta er járnlögmál milliríkjaviðskipta. Flest bendir til þess að viðskipta- halli þessa árs verði um 50-60 millj- arðar króna og uppsafnaður halli undanfarinna 5 ára er því um 150 milljarðar. Á móti hafa komið 35-40 milljarðar með beinni erlendri fjár- festingu hérlendis, en það sem eftir stendur er fjármagnað með erlend- um lánum. Neikvæður viðskipta- jöfnuður þýðir því að skuldir lands- ins aukast hraðar en eignir. Fjármögnun hallans verður jafn- framt til þess að vaxtagjöld vaxa hraðar en eignatekjur, þrátt fyrir að áhættufjárfestingar íslendinga hafi að jafnaði borið hærri ávöxtun en erlendar skuldir landsins. Eignasöfnun erlendis síðustu ár er því í raun aðeins færsla á gjald- eyri á milli vasa. Einn tekur erlent lán og færir fjármagn til landsins sem annar notar síðan til þess að kaupa erlend verðbréf. Hrein eigna- staða landsins breytist lítið við þessa gjörninga nema þá að erlendu eign- irnar falli eða hækki í verði. Lán og áhætta Það eru að mestu fyrirtæki sem tekið hafa erlend lán, m.a. til þess að forðast háa innienda vexti. Þetta er ekki hvorki ljótt eða rangt í sjálfu sér. ísland er frumbýlt og mikið uppbygging- arstarf liggur fyrir. Vandamál geta þó skapast ef forsendur lántökunnar breytast snögglega, t.d. við gengisfall sem hækkar erlendar skuldir í krónum talið. Það kemur sérstaklega illa við þau fyrirtæki sem hafa ekki erlendar tekjur af útflutningi til mótvægis. Peningamálastefnan flækir einnig málin. Stjórnvöld fylgja fastgengisstefnu og hafa skuldbundið sig til þess að halda genginu innan ákveðinna vikmarka. Þetta þýðir í raun að erlend lán eru tekin með ríkisábyrgð í þeim skiln- ingi að lántakendur búast ekki við að greiðslubyrðin þyngist að miklum mun vegna gengisbreytinga. Með þessari blöndu af fastgengisloforði og vaxtahækkunum hafa stjómvöld gefíð fyrirtækjunum óeðlilega mik- inn hvata til þess að leita á fjármagnsmarkaði ytra, þar sem full gengisáhætta er ekki tekin með í reikninginn þegar erlend lán eru tekin. Það getur síðan haft hrapal- legar afleiðingar ef fastgengið gefur eftir. Ef gengið krónunar fellur hagn- ast allir sem eiga erlendar eignir. Þess vegna er freistandi að álykta að eignir í útlöndum komi til mót- vægis og jafni þjóðarhag ef gengið sígur. Hins vegar eru það ekki sömu aðilar sem eiga og skulda. Erlend eignakaup hafa að miklu leyti orðið fyrir atbeina lífeyrissjóðanna. Fyrir- ætlan sjóðanna er væntanlega sú að jafna áhættu í eignasafni sínu og þannig tryggja hag sjóðsfélaga. Og er það vel. En þessar fjárfestingar eru flestar til lengri tíma og hafa lítil áhrif á landshag til skamms tíma. Sjóðimir munu hafa bókahaldslegan ábata af gengislækkun krónunar en áþreifanleg jákvæð eignaáhrif verða lítil fyrir þjóðarbúið. Svipaðir hlutir eiga við um eignasöfn annarra aðila sem leggja áherslu á langtímaávöxt- un. Gengissig Ef mikið erlent fjármagn leitar inn í landið á stuttum tíma leiðir það til aukinnar þenslu og erlendar fjár- festingar lífeyrissjóðanna sem veita peningum úr landi hafa því verið til aðhalds á fyrstu árum yfírstandandi uppsveiflu. Að vísu hefði verið hægt Fjármál Eignasöfnun erlendis, segir Ásgeir Jónsson, er jákvæð þróun sem mun koma landinu til góða til lengri tíma. að ná sama árangri með því að ríkis- sjóður greiddi niður erlendar skuld- ir sínar sem staðið hafa nær ósnert- ar síðustu þrjú ár. Þá eða stofnað erlendan fjárfestingarsjóð með tekjuafgangi ríkissjóðs. Á þann hátt hefðu yfirvöld fengið fleiri tæki til sveiflujöfnunar, en á tímum niður- sveiflu væri hægt að færa sjóðinn heim til þess að jafna gjaldeyrisstöð- una og örva hagkerfið með opinber- um framkvæmdum. Hvað sem því líður hefur krónan átt undir högg að sækja á þessu ári vegna minna fjár- magnsinnstreymis og hafa erlend kaup lífeyrissjóðanna á þeim tíma verið til veikingar. Sama fjárfesting- arstefna sjóðanna fyrir næsta ár mun líklega verða til þjóðhagslegra vandræða. Það verður því að teljast andvaraleysi, að auka erlendar fjár- festingarheimildir lífeyrissjóðanna upp í 50% af heildareignum í byrjun þessa árs, rétt í þann mund er hags- veiflan var að ná hámarki og fyrir- séð að innstreymi myndi minnka. Sú staðreynd mun líklega gera mjúka lendingu erfíðari í framkvæmd. Nýtt gangvirki Enginn skyldi þó ekki freistast til þess að álykta að fjárfestingarfrelsi sé af hinu illa. Hagsaga síðustu ára- tuga væri mun áheyrilegri ef lands- mönnum hefði leyfst að fjárfesta er- lendis hluta af þeim mikla gjaldeyri sem flóði hingað eftir 1972 þegar skuttogaravæðingin var í algleym- ingi og verðbólga hljóp á tugum prósenta. En aðlögun að nýjum að- stæðum getur verið erfið. Landið er nú að ganga í gegnum töluverðar breytingar í kjölfar þess að fjár- magnshreyfingar urðu frjálsar 1995. Þessu er helst hægt að jafna við af- nám haftanna árið 1960, en í kjöl- farið hefur gangvirki efnahagslífsins breyst. Eignasöfnun erlendis er já- kvæð þróun sem mun koma landinu til góða til lengri tíma, en getur skapað þrýsting á gengislækkun við núverandi aðstæður. Þær peninga- legu eignir sem nú þegar eru erlend- is munu aftur á móti skipta litlu máli fyrir atburði á ári komanda. Höfundur er hagfræðingur. Ásgeir Jónsson FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 6^ Sig^a &TiWO Bonanza pannan hlaut einkunnina „Sehr gut", eða „Mjög góð" í saman- burðarkönnun þýzku Neytendasamtakanna og er hún eina pannan sem hefur hlotið slíka viðurkenningu! Verð: 24 sm 3.860 / 26 sm 4.390 / 28 sm 4.850 Glerlok kr. 990 - 1.380 Glæsileg og gagnleg gjöf fyrir hvern sem er! Einar Farestveit&Cohf. Borgartúni 28 XP 562 2901 og 562 2900 www.ef.is Notaleg bómullarnáttför á dömur og herra Verð frá kr. 3.900—6.900 Stærðir: XS-S, M, L, XL undirfataverslun, 1. hæð Kringlunni, sími 553 7355 Sendum i póstkröfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.