Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 07.12.2000, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Tæpur þriðjungur elli- lífeyrisþega nær ekki „1 ág- marksframfær slumörkum “ UM 23.000 ellilífeyrisþegar fá óskert- an grunnlífeyri þ.e. 17.715 kr. á mán- uði en rúm 10.000 af þeim fá til viðbót- ar óskerta tekjutryggingu, þ.e. 30.461 kr. á mánuði eða samtals 48.176 kr. á mánuði. Rúm 4.000 fá heimilisbætur að upphæð 14.564 kr. á mánuði og 361 fá 7.124 kr. sem sérstakar heimilis- bætur. Ur almennum lífeyrissjóðum verkafólks fá 3.486 manns kr 5.637 kr. á mánuði að meðaltali en 3.627 manns fá 14.743 kr. að meðaltali á mánuði, skattlagning hefst við 63.878.- fyrir einstakling en um 130.000 kr. fyrir fólk í sambúð. Hveijar eru rauntekjur ellilífeyris- þega þegar á heildina er litið. FEB óskaði eftir úttekt ríkisskattstjóra á málinu. Samkvæmt útreikningum sérfræðinga skattstjórans er tekju- dreifing ellilífeyrisþega þessi. Tekið er tillit tíl allra tekna, skatta, útsvara, ívilnunar skv. 66 gr. og skv. 80 gr. ásamt persónuafslætti. >fekjur og skattar ellilífeyrisþega árið 1999 Fjöldi Meðalt. áári Skattar 890 124.000 4.000 1271 299.000 2.000 1917 522.000 3.000 3312 702.000 12.000 4296 909.000 68.000 4912 1.097.000 130.000 3121 1.292.000 186.000 7147 1.495.000 206.000 26.866 1.233.000 168.000 -Ér þessari töflu má lesa að 7.390 manns, þ.e. 28%, hafa lægri mánaðar- tekjur (meðaltal) en 58.500 kr. fyrir skatta og 11.686, þ.e. 44%, um 75.000 kr. fyrir skatta. Eignarskattstofn þessara einstaklinga er rúmar 3-4 milljónir, óljóst er um skuldir. En tilraun verður gerð að áætla þær. Einnig verð- ur kannaður hagur dval- arheimilisvistmanna en nú bíða um 560 manns þar af um 230 í brýnni þörf. Vissulega er hát- ekjufólk í hópnum en um 400 manns þ.e. 1.5% hafa á milli 370.000- 735.000 á mánuði með eignarskattsstofn á milli 10-16 milljónir. Hag- stofa íslands hefur ekki reiknað út áætlaðan lágmarksframfærslukostnað eins og Hagstofur nágrannalandanna gera reglulega. En með hliðsjón af að skattleysis- mörk eru tæpar 64.000 kr. á mánuði og LIN áætlar að námsmenn þurfi Ellilífeyrir Þarf að fara með málið til mannrétt indadóm- stóls Evrópu, spyr Ólafur Ólafsson, til þess að úrbætur fáist? 66.500 kr. á mánuði til framfærslu má ætla að Iágmarksíramfærslukostnað- ur í dag sé á þeim slóðum. Ætla má að þriðjungur ellilífeyrisþega (þar á meðal öryrkjar) bera ekki úr býtum lágmarksframfærslutekjur. Saman- burðurinn verður óhagstæðari ef kíkt er á síðustu neyslu- könnun Hagstofu ís- lands frá 1995. Þar kem- ur í ljós að miðað við 16,3% verðlagshækkun fram til ársins 2000 eyð- ir hver einstaklingur um 100.000 kr. á mánuði til lífsnauðsynja. Astandið verður skýrara þegar litið er til þróunar kaupmáttar á síðustu árum. Þó að kaupmáttur lífeyris- þega hafi hækkað nokk- uð á allra síðustu árum er Ijóst að kaupmáttur þeirra hefur ekki tekið mið af launaþróun verkamanna eins og eldri borgarar hafa krafist. Þessar niðurstöður hafa öðlast viðurkenn- ingu í „ráðherrasamráðsnefndinni". Starfstengda lífeyrissjóðskerfið nær ekki að brúa þetta bil á næstu 15- 20 árum. Langt er því í land áður en „lífeyrir 69 ára ellilífeyrisþega verður 70% af meðaltalsatvinnutekjum fólks á aldrinum 40-60 ára (að viðbættum 11% af atvinnutekjum á grunnlífeyri)“ eins og menn ætla í ritinu „Líf- eyriskerfi og umönnunar tryggingar" sem gefið var út á ári aldraðra 1999 af heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytínu. Hvers vegna er verið að rýra kjör margra aldraðra? Althyglivert er að á árunum 1995-1999 fjölgaði lífeyr- isþegum er búsettu sigí útlöndum um 64%. Hvað er til ráða? Þarf að fara með málið til mannréttindadómstóls Evrópu tíl þess að úrbætur fáist? Höfundur er ellilífeyrisþegi og fyrrverandi landlæknir. Ólafur Ólafsson Lestrarerfíð- leikar Hjörleifs Guttormssonar GREIN Hjörleifs Guttormssonar í Mbl. í gær ber þess merki að hann eigi erfitt með lestur. Athugasemdir hans við útvarpspistil minn í síðustu viku eru hjá- kátlegar. Ein er efiiis- lega rétt, sumsé að verkfræðistofa en ekki skipulagsstjóri sjálfur auglýsti eftir athuga- semdum við matsáætl- un vegna stækkunar ál- vers á Grundartanga. Það er bitamunur en ekki fjár og víðs fjarri þeim kjarna málsins, að framlengja þurfti frest til þess að slíkar athugasemdir kæmu fram. Slíkur var áhugi þeirra, sem í Álver Athugasemd Hjörleifs Guttormssonar, segir Karl Th. Birgisson, er víðs fjarri kjarna málsins. fyrravetur hrukku af hjörunum vegna fyrirhugaðs álvers í Reyðar- firði. Um það var pistill minn og um hugsanlegar skýringar á því. Og þar kemur að lestrarerfiðleik- um - og óheiðarleika - Hjörleifs Guttormssonar. Skýring mín var ekki „óvild íbúa höfuðborgarsvæðis- ins í garð landsbyggð- arinnar“, eins og hann gerir mér upp. Þvert á móti sagði skýrt að „ég tek ekki undir þessar kenningar". Eg kæri mig ekki um að vita af hverju Hjörleifur kýs að fara með rangt mál. Mér þykir líklegra, eins og sagði í pistlin- um, að fjarlægðin geri fjöllin venju fremur blá í þessu efni. Umræðan um álver í Reyðarfirði ber vitni um þá róman- tísku mynd af Islandi sem þéttbýlisbúar eru óðum að koma sér upp. Það er mynd af landi sem býr yfir einhverju stórkostlegu dulmagni og dulúð, næstum því guðlegu afli sem er manninum meira og æðra, landi sem við eigum að tilbiðja og vera undirgefin. Munurinn á Reyðarfirði og Grund- artanga er sá, að Reyðarfjörður er nógu langt í burtu frá höfuðborginni til að vera hluti af þessari glapsýn. Grundartangi er bara Grundartangi. Það er ein skýringin á því, hvers vegna þarf að toga athugasemdir við matsáætlun um álver í Grundarfirði upp úr fólki með töngum, en allir keppast um að hafa skoðun á því hvað Austfirðingum er fyrir beztu. Hjörleifur Guttormsson má kalla það „óvenju ósvífnar dylgjur", „grófa árás“, „ósannindavaðal" eða hvað annað sem hann kýs. Það eru samt staðreyndir málsins. Höfundur býrá Stöðvarfirði. Birgisson Minningarkort Styrktarfélags IX krabbameinssjúkra barna f f www.skb.is/framlog/minningarkort.html sími 588 7555 s Islensk list Fálkagötu 30b Gleðilegir jólaglerfuglar Opið frá kl. 14-18, símar 552 8141 og 861 5693 rerutoDfrjals! Hjá ursmiðnum oD>-*Sk m ATVIIMNUHÚSNÆDI Glæsilegt verslunarhúsnæði Til leigu verslunarhæð í Þingholtsstræti 5. Um er að ræða bjarta og glæsi- lega verslunarhæð eða þjónusturými með stórum gluggum. Hæðin er um 310 fm og er ný endur- bætt. Upplýsingar eru veittar í símum 562 2860, 899 4689 og 899 6926. KENNSLA ^róf í verðbréfamiðlun verðbréfaviðskiptapróf Tek að mér einkakennslu í undirbúningi fyrir verðbréfamiðlunarpróf, viðskiptafræði, hag- fræði, fjármagnsmarkað o.fl. Upplýsingar í síma 696 6767, netfang kristjansson@rocketmail.com . VINNUVÉLAR Fermec smágröfur til sölu Vel með farnar Fermec smágröfur, teg. 115, 128, 526 og 528, í góðu ásigkomulagi til sölu. Allarundir 1000tímum — ýmsir fylgihlutir með. Tilboð óskast. Uppl. í síma 567 2230, fax 567 2272. ÍAðaldeild KFUM, Holtavegi 28. Aðventufundur ásamt KFUK á Holtavegi 2 kl. 20.00. Hugleiðing: Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup. Upphafsorð: Bjarni Árnason. Stjórnun: Ómar Kristjánsson. Blandaði kórinn syngur. Allir hjartanlega velkomnir. www.kfum.is . kvöld kl. 20.00: Ljósvaka í umsjón majóranna Turid og Knut Gamst ásamt Andreu og starfsfólki Flóa- markaðsbúðarinnar. Allir hjartanlega velkomnir. I.O.O.F. 11 a 1811278’/2 = Bk. Landsst. 6000120719 X I.O.O.F. 5 = 1811278 = Jv, Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Lækningasamkoma kl. 20. Björgvin Óskarsson predikar, fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. „Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekk- ir þá sem treysta honum." www.vegurinn.is fnmhjólp Almenn samkoma í Þribúðum, Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00. Vitnisburðir. Ræðumaður: Kristinn Birgisson. Fjölbreyttur söngur. Kaffi að lokinni sam- komu. Allir velkomnir. www.samhjalp.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.