Morgunblaðið - 07.12.2000, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skiptinemar AFS fara fram á tafarlausan brottflutning frá „verkfallshrjáðu“ landi
Vilja ekki vera
og langar burt
LANGVINNT verkfall fram-
haldsskólakennara teygir anga sína
víða og jafnvel inn á alþjóðaskrif-
stofu skiptinemasamtakanna AFS.
37 skiptinemar á aldrinum 16 til 18
ára frá 15 þjóðlöndum dvelja á fs-
landi á vegum samtakanna við það
sem átti að vera nám en reynist vera
langt verkfall. Krakkarnir voru
orðnir leiðir á þófínu og sendu al-
þjóðaskrifstofunni bréf þar sem þeir
kröfðust tafarlauss flutnings frá
þessu verkfallshrjáða landi en
reglur AFS segja að skiptinemi sé
ekki fluttur á milli ianda nema í ýtr-
ustu neyð og hann sé í verulegri
hættu vegna stríðsátaka eða nátt-
úruhamfara. Petrína Ásgeirsdóttir,
framkvæmdastjóri AFS á íslandi,
kallaði skiptinemana til fundar í
gær þar sem bréfið til alþjóðaskrif-
stofunnar var rætt sem og líðan
nemendanna í verkfallinu sem nú er
komið á fimmtu viku. Petrína segir
krakkana vera leiða og þeir séu
hræddir um að þegar skólahald
hefjist að nýju verði áherslan lögð á
hraða yfirferð og þeir verði þá skild-
ir eftir í kapphlaupinu við tímann.
„Varðandi nám er verkfallið nyög
slæmt fyrir þá krakka sem ætluðu
að fá skólavistina hér metna heima
fyrir en mun alvarlegri áhrif verk-
fallsins eru þau félagslegu þar sem
skólinn er svo gríðarlega mikilvæg-
ur,“ segir Petrína og minnir á að í
skólanum eignist skiptinemarnir fé-
laga og fái tækifæri til að læra og
tala fslensku. Petrína segir nemend-
urna reyndar fá mikinn styrk frá
fósturfjölskyldum sínum en skólinn
hafi verið fastur punktur í tilver-
unni sem nú sé horfinn og ekkert
ljóst um hveraig framhaldið verði.
Til þess að ijúfa félagslega ein-
angrun krakkanna og minnka álag á
fjölskyldurnar fór AFS í samstarf
við leikskóla úti um allt land og
vinna skipt inemarair nú tvo morgna
í viku í sjálfboðavinnu á leikskólun-
um og kunna þeirri tilbreytni vel.
Spurð hvaða viðbrögð hún hafi
fengið frá samstarfsaðlinum sínum
erlendis vegna verkfallsins segir
hún AFS-skrifstofur í Evrópu og í
Bandaríkjunum fylgjast náið með
framvindu mála og þeim „þykir
furðu sæta, að þær aðstæður geti
komið upp í vestrænu ríki, að allt
skólahald lamist f framhaldsskólum
landsins svo vikum skipti vegna
kjaramála kennara.“
Txema Urratia Aldama, átján ára
Baski, er nemi við Menntaskólann í
Kópavogi, og Iréne Brun, sextán ára
Svisslendingur, og Andrés Riera
Zecchini, átján ára frá Venesúela,
eru í Flensborgarskólanum í Hafn-
arfirði. Þremenningarair komu til
landsins í ágúst og segjast rétt hafa
Morgunblaðið/Ásdís
Nokkrir þeirra erlendu skiptinema sem dveljast hér á landi og kunna verkfalli kennara illa.
verið farin að kynnast samnemend-
um og læra tungumálið þegar verk-
fallið skall á.
„í byijun var ég alveg hæst-
ánægður með verkfallið, gamall
draumur um að þurfa ekki að fara f
skólann rættist og það var fint að fá
að sofa út. Eftir eina viku fór svo
glansinn af þessu og manni fór að
leiðast," segir Txema og hin taka
undir. „Mamma hefur miklar
áhyggjur afþví að slaki ég um of á í
náminu verði ég eim vitlausari,"
segir Andrés og krakkarnir veltast
um af hlátri og segjast hafa fengið
svipað viðmót hjá foreldrum sínum
sem hafa nokkrar áhyggjur af böra-
um sínum í ókunnugu landi. Þegar
krakkarair eru spurðir hvemig þeir
eyði dögunum segjast þeir mæla
göturaar og vita til dæmis upp á hár
hvað sé í hveijum einasta búðar-
glugga við Laugaveginn, þeim leið-
ist.
„Við erum búin að vera að leita að
risastóru púsluspili til að dunda okk-
ur við,“ segir Txema. Sjónvarpsgláp
og tölvuleikjahangs er ofarlega á
verkefnalistanum og þau sakna
skólans. „í skólanum Iærum við ís-
lensku og eignumst vini. Nú hefur
verið klippt á þetta og við ein-
angrumst og þá fær maður svolitla
heimþrá," segir Iréne. Spurð hvort
þau hafi áður lent i kennaraverkfaili
svara þau samhljóma neitandi.
Strákamir ganga í einkaskóla
heima fyrir „og þar fá kennaramir
góð laun,“ segir Andrés en man þó
óljóst eftir verkföllum í almenna
skólakerfi Venesúela en þær deUur
hafi allar verið leystar á nokkrum
dögum. Krakkarair segjast fá frétt-
ir af framvindu kjaradeilunnar með
því að stauta sig fram úr fyrirsögn-
um dagblaða auk þess að leita mikið
tU fósturforeldranna. „Okkur finnst
umræðan vera neikvæð og höfum á
tilfinningunni að verkfallið verði
enn lengra - okkur er sagt að það
geti varað fram á nýtt ár,“ segir
Txema. Þremenningarnir hafa nú
fylgt í fótspor íslenskra samnem-
enda sinna og farið á vinnumarkað-
inn í verkfaUinu. Txema er bakari á
pitsastað, Andrés vinnur á kaffihúsi
en Iréne er að leita sér að vinnu. Og
nú velta þau skattamálum íslend-
inga fyrir sér - hvað skyldu þau
þurfa að borga mikið?
Foreldrar framhaldsskólanema hafa vaxandi áhyggjur af áhrifum verkfallsins
Foreldrar sýna áhuga
á stofnun félags
Foreldrar 19 þúsund framhaldsskólanema,
sem verkfallið bitnar mest á, hafa vaxandi
áhyggjur af stöðu mála. Þeir eru ekki
bjartsýnir á að deilan leysist fljótlega.
SAMTÖKIN Heimili og skóli, sem til
þessa hafa staðið vörð um hagsmuni
nemenda í leik- og grunnskólum,
áforma stofnun félags foreldra fram-
haldsskólanemenda undir 18 ára
aldri. Samtökin auglýstu nýlega eftir
foreldrum til að taka þátt í starfi
sameiginlegs félags og hafa fjölmar-
gar fyrirspurnir borist skrifstofu
þeirra. A aðalfundi Heimilis og skóla
næstkomandi laugardag verða þessi
mál á dagskrá ásamt öðrum.
Halldór Leví Bjömsson, sem býr í
Reykjanesbæ, á sæti í framkvæmda-
ráði Heimilis og skóla og á dóttur
sem nemur við Verslunarskóla ís-
lands. Hann sagði verkfallið hafa
meðal annars orðið tilefni þess að
Heimili og skóli auglýstu eftir for-
eldrum sem hefðu áhuga á að stofna
foreldrastarf í framhaldsskólum.
Tímabært hefði verið að foreldrar
stofnuðu með sér sameiginlegan
vettvang, ekki síst þar sem sjálfræð-
isaldur hefði verið hækkaður í 18 ár. 1
Þar með væri um helmingur fram-
haldsskólanema ósjálfráða sam-
kvæmt lögum.
„Við höfum orðið vör við mikinn
áhuga og ég á von á því að þetta for-
eldrastarf komist á innan framhalds-
skóla. Óbeint skapar þetta einnig
öðruvísi flöt á starfi framhaldsskóla-
kennara en verið hefur," sagði Hall-
dór Leví.
Hann sagði verkfallið hafa slæm
áhrif, sér í lagi þegar það drægist
þetta mikið á langinn. Ákveðin óvissa
skapaðist sem væri óþægileg. Mikið
rót væri komið á krakkana og finnst
honum það verst við verkfallið. Um
kröfur kennara sagðist Halldór Leví
hafa skilning á öllum launakröfum en
en það væri aldrei öðrum aðilanum
að kenna þegar tveir deildu. „Menn
verða að finna einhvern umræðuflöt.
Það er vonlaust að kennarastéttin
þurfi alltaf að vera í verkfalli með
reglulegu millibili," sagði Halldór.
Haukur Lárus Hauksson á son á
sautjánda ári sem byrjaði nám í
Menntaskólann við Sund í haust. Er
þetta í annað sinn sem sonur hans
lendir í verkfalli, áður var það í
grunnskóla fyrir fáum árum. „Okkur
þykir miður hvaða áhrif þetta hefur á
hans skólagöngu. Hann er á fullu við
að undirbúa sig fyrir lífið og það er
vont þegar svona hlutir trufla. Við
sáum strax að hætta væri á rótleysi,
þegar daglegt líf yrði truflað með
verkfalli og freistingamar margar.
Við hefðum aldrei látið það viðgang-
ast að hann hefði snúið sólarhringn-
um við með því að horfa á vídeó, leika
sér í tölvuleikjum og sofa á daginn.
Við höfum sagt við hann að enginn
sefur heilu dagana á meðan þjóðfé-
lagið er á fullum snúningi. Lífið
gengur út á aðra hluti,“ sagði Hauk-
ur.
Hann sagði að það hefði verið lán í
óláni að stærðfræðikennarinn væri
stundakennari og því ekki í verkfalli.
Sonur Hauks hefur sótt reglulega
stærðfræðitíma og hefur lokið haust-
annarprófi í greininni. Þetta gerði
það að verkum að verkefni voru til að
vinna heima fyrir.
Nú þegar stærðfræðiprófi er lokið
hefur sonur Hauks leitað eftir vinnu
og fengið við uppvask í veitingahúsi
og við afgreiðslu frá kjötborði í mat-
vöruverslun. Svipaða sögu er að
segja af félögum hans, enda sagði
Haukur útgjöldin töluverð á tímum
farsíma og almennrar bílaeignar
meðal framhaldsskólanema. Pyngj-
an væri að tæmast eftir sumarvinn-
una.
Spurður um kröfur kennara og
deiluna við ríkið sagðist Haukur Lár-
us sýna kröfum kennara skilning.
Burt séð frá deiluefninu þá væru það
ákveðin skilaboð til unglinga að ekk-
ert gengi í viðræðum eftir mánaðar-
verkfall.
„Þetta eru skilaboð um að ungl-
ingarnir séu ekki meira virði og það
finnst okkur mjög neikvætt. Ungl-
ingarnir skynja þetta, þeir fylgjast
með fréttum af gangi viðræðna þar
sem ekkert er að gerast. Hvað sem
líður kurteisislegum ummælum
kennara og ráðherra um hvað þeim
finnist leitt hvernig farið er með
unglinga þá eru það verkin sem tala,
ogþau eru nákvæmlega engin. Ungl-
ingarnir sjá í gegnum þetta. í engum
öðrum greinum myndi svona langt
verkfall líðast. í raun er þessi fram-
koma beggja aðila til skammar gagn-
vart hinum stóra hópi unglinga sem
eru að fara út í lífið. Þessir aðilar
verða að fara að leysa deiluna.
Við þurfum líka að horfa til fram-
tíðar. Við erum með stelpu sem er
fimm árum yngri og ef þetta er það
sem bíður hennar þá verða menn
bara að flytja til útlanda, enda miklu
betra skólakerfi þar víðast hvar,“
sagði Haukur Lárus.
Andstæð öfl að tala saman
Bryndís Kristjánsdóttir á strák á
fyrsta ári í Menntaskólanum í
Hamrahh'ð. Hún sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa vaxandi áhyggj-
ur af sínu bami. Verkfallið væri erf-
iðast fyrir þá nemendur sem væru að
byija og þá sem væru að útskrifast.
„Þeir sem eru að byrja eru rétt að
fóta sig í framhaldsskóla og kynnast
því að leggja þarf talsvert meira á sig
en í grunnskólanum og beita t.d. ann-
arri námstækni,“ sagði Bryndís og
hafði af því áhyggjur að sonur henn-
ar ætti erfitt í prófum, yrði þeim
skellt á strax eftir áramót eftir nokk-
uraa daga kennslu ef deilan leysist
skömmu fyrir jól. Hann hefði ekki til
að bera þá námstækni ennþá sern
þyrfti við slíkar aðstæður.
Varðandi deiluna sjálfa, milli
framhaldsskólakennara og ríkisins,
sagði Bryndís hana virka á sig líkt og
að algjörlega andstæð öfl væru að
tala saman. Kennararnir kæmu út
líkt og óvinir ríkisins, en hún sagðist
sýna kröfum þeirra mikinn skilning.
„Kennarar eru hluti af þjóðfélag-
inu og við viljum ekki vera í þjóðfé-
lagi þar sem ekki er boðið upp á góða
kennslu á öllum stigum. Sem þegn í
þessu þjóðfélagi finnst mér bráð-
nauðsynlegt að þeir sem kenna, á
hvaða skólastigi sem er, séu þannig
launaðir að þeir tolli í starfi og séu
ánægðir. Þetta finnst mér frum-
skylda í landinu og eitt af því sem
mínir skattpeningar eiga að fara í,“
sagði Bryndís. Hún sagðist ekki vera
bjartsýn á að deilan leystist. Svo virt-
ist sem tónninn væri þannig að deilu-
aðilar töluðu ekki sama tungumál.
lÁkENDlÐ
Rnk vikunnar
WX& 7.-14. desember
HÁLENDIÐ í nátKúru ístands
Stórvirki Guðmundar Páls Ólafssonar sem
birtir þér nýja sýn yfir náttúruperlur á
hálendi íslands.
11.920
kr. Verð áður 14.900 kr.