Morgunblaðið - 07.12.2000, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Vectra
vel búinn og
fallegur
Búnaður
Loftpúði fyrir ökumann
Tveir hliðarloftpúðar
Rafeindastýrt ABS hemlakerfi
Loftpúði fyrir framsætisfarþega
Fimm höfúðpúðar
Fimm þriggja punkta bílbelti
Forstrekkjarar á bílbeltum
.;
Hreyfiltengd þjófavörn
styrktarbitar í hurðum
Hemlaljós í afturrúðu
Margspegla aðalljós
Varahjól í fullri stærð
Hæðarstilling á bílbeltum
Dagljósabúnaður
Snúningshraðamælir
Rafstýrð hæðarstilling á framljósum
Aflögunarsvið að framan óg aftan
Verð kr. 1.705.000,-
ESB fliugar hámarksinnihald dfoxíns í fískimjöli og lýsi
Gæti nánast rústað
fískimj ölsiðnaðinn
VÆNTANLEG ákvörðun Evrópu-
sambandsins um hómarksmagn af
díoxíni í fiskimjöli og lýsi getur orðið
til þess að notkun fiskimjöls í aUt
dýrafóður verði bönnuð innan sam-
bandsins. Slík myndi nánast leggja
íslenzkan fiskimjölsiðnað í rúst, þar
sem mestur hluti þessara afurða er
seldur til ESB. Ákvörðun af þessu
tagi myndi jafnframt rústa fiski-
mjölsiðnaðinn í Evrópusambandinu.
Þetta kann að virðast nokkuð ein-
kennUegt í ljósi þess að nær öll
díoxínmengin á norðurhveli jarðar
er komin frá iðnríkjunum, mest frá
Evrópu. Óstaðfestar fregnir herma
að árlega losi aðildarlönd ESB um 38
kfló af díoxíni út í andrúmloftið, en í
því fiskimjöU sem flutt sé inn til sam-
bandsins, mælist magn díoxíns í
milligrömmum.
Getur valdið krabbameini
Díoxín er þrávirkt eiturefni, sem
getur valdið ýmsum slæmum kvill-
um meðal annars krabbameini. Það
verður til við bruna við lágt hitastig,
sérstaklega þar sem klórefni koma
við sögu, svo sem pappírsgerð. Það
myndast við bruna á úrgangi og við
skógarelda svo dæmi séu tekin.
Díoxínið myndast því fyrst og fremst
við mengun, einkum frá iðnaðarlönd-
unum. Líklega myndast mest díoxín
í andrúmslofti hér á gamlárskvöld.
Eiturefnið berst síðan út í and-
rúmsloftið en endar loks í sjónum
eins og flest annað. Þaðan berst það í
fiska og fleiri sjávardýr, sest í fitu
þeirra og safnast upp. Mest er af efn-
inu í dýrum ofarlega í fæðukeðjunni,
feitum fiski og fiski sem bæði er feit-
ur og verður gamall, en dýrin geta
ekki losað sig við eitrið. Mun meiri
díoxínmengun er á norðurhveli en
suðurhveli vegna meiri mengunar
frá iðnaðarríkjunum og til dæmis
finnst mjög lítið af því í fiski og fiski-
mjöli og lýsi frá Chile og Perú. Þess-
ar afurðir frá þeim myndu því að öll-
um líkindum standast kröfiir um lágt
díoxíninnihald.
Mælingar á innihaldi díoxíns eru
erfiðar og mjög kostnaðarsamar
enda er um afar lítið magn efnisins
að ræða hverju sinni. í Evrópu eru
aðeins nokkrar rannsóknastofur,
engin á íslandi, sem gera slíkar mæl-
ingar og kostar hver um 100.000
krónur. Fyrir vikið hefur innihald
díoxíns í raun ekki verið mikið mælt.
Ekki yfír „þolanlegum“
mörkum
Til þessa hefur ekki verið talið að
innihald díoxíns í fiski eða fiskafurð-
um eins og mjöli og lýsi hafi verið yf-
ir þeim mörkum að það sé mann-
skepnunni hættuleg. Viðmiðanir
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
WHO um „þolanlegt" innihald í mat-
vælum er 1 til 4 píkagrömm á hvert
kíló líkamsþunga daglega. Píka-
gramm er afar smá mælieining eða
einn milljónmilljónasti úr grammi.
Fyrir nokkrum mán-
uðum kom upp umræða
um að setja hámark
díoxíns innan ESB í
fiskimjöli og lýsi, sem
notað er í dýrafóður. Lægstu mörk,
sem rætt var um voru 2.000 píka-
grömm í kílói, en það hefði leitt til
þess að notkun þessara afurða héðan
hefði verið bönnuð. Talið er að sé
miðað við 10.000 píkagrömm í hverju
kílói af lýsi og 6.000 í hverju kflói af
mjöli, verði í lagi með þessar afurðir
héðan.
Fjrrir Evrópusambandinu liggja
nú tvær skýrslur um díoxín- og pcb-
mengun og hvernig bregðast skuli
við til að koma í veg fyrir eða draga
úr því að hún berist í fólk. Ganga
skýrslurnar mislangt, en það er
nefnd um dýrafóður, Standing
Committee on Animal Nutrition,
sem leggur tillögur sínar fyrir fram-
Nánast öll díoxínmeng-
un á norðurhveli jarðar
er komin frá iðnríkjun-
um. Eiturefnið lendir
að lokum í sjó og sest
í fítuvefí físka og berst
þaðan í mannskepnuna.
Hjörtur Gíslason kynnti
sér stöðu þessa máls
í Ijósi þess að ESB
hyggst nú setja mörk
um hámarksinnihald
þessara efna í
fískimjöli og lýsi.
kvæmdastjóm Evrópusambandsins,
sem síðan tekur ákvörðun um há-
marksinnihald þessara eiturefna í
dýrafóðri. Nefndin kemur saman
einu sinni í mánuði, um miðjan mán-
uðinn, er óvíst er hvort einhverjar
tillögur verða samþykktar á næsta
fundi hennar. í skýrslu hennar er
miðað við lægstu mörkin frá Alþjóða
heilbrigðisstofnuninni eða 1 píka-
gramm á hvert kfló líkamsþunga
daglega hjá fólki.
Minnkandi mengun
Ljóst er að díoxínmengun hefur
farið minnkandi í löndum Evrópu-
sambandsins um allt að 50% og er
hættan af þessu eitur-
efni því dvínandi.
Einnig er ljóst að í
langflestum tilfellum
er innihald díoxíns inn-
an þolanlegra marka, sem Aiþjóða
heilbrigðisstofnunin WHO hefur sett
og miðað er við í Bandaríkjunum.
Það á til dæmis við um fiskimjöl og
lýsi héðan frá íslandi. Enn liggur
ekkert fyrir um það hver ákvörðun
ESB kann að verða en ljóst er að
mikill þrýsingur er á hana um að
setja mörkin afar lágt. í ljósi þess
vaknar sú spurning hvernig verði
tekið á fiski almennt, því í heilum
fiski getur hlutfall díoxíns verið jafn-
mikið eða hærra en í mjöli og lýsi.
Það er ljóst að íslendingar þurfa að
heyja aðra baráttu fyrir tilvist fiski-
mjölsiðnaðarins á Islandi á næstu
dögum ogvikum.
Þolum ekki mjög lág mörk
„Það er í raun ekki verið að banna
fiskimjöl eða lýsi sem slíkt í dýrafóð-
ur. Heldur er um að ræða hvort inni-
hald díoxíns er undir þeim mörkum,
sem sett verða. Það er svo spuming-
in hvort við þolum þau mörk,“ segir
Jón Reynir Magnússon, formaður
Félags fiskmjölsframleiðenda, í sam-
tali við Verið. „Það er
hægt að hreinsa lýsi af
díoxíni, en það er mjög
dýrt. Miðað við verð á
lýsi um þessar mundir
er enginn gmndvöllur fyrir því. Það
eru því miklir erfiðleikar framundan,
verði þessi mörk sett mjög lág. Við
þolum sennilega mörk við 10.000
píkagrömm í lýsi og 6.000 í mjöli.
Díoxíninnihald er minna í mjöli en
lýsi af því það fylgir fitunni, en þó
eru um það bil 10% af mjölinu fita.
Það skiptir þó máli hvort miðað er
við 6.000 píkagrömm í hverju kílói af
mjöli eða í hverju kílói af fitu í mjöl-
inu. Sé miðað við kfló af fitu skiptir
ekki máli hve mikil fita er í mjölinu
og það virðist mér vera út í hött.
Það er svo annað, sem kemur fram
í þessum skýrslum, að þar er líka
fjallað um pcb-eiturefnin, sem voru
framleidd á sínum tíma og til dæmis
notuð á straumbreyta, en við fram-
leiðslu þess varð díoxín til. Þess
vegna eru ákveðin tengsl þar á milli
og í skýrslunni eru þau fundin út
með því að margfalda það díoxín sem
finnst með 5 til að fá út mengun af
díoxíni og díoxínskyldu pcb. Þannig
fengu þeir út fimmfalt meiri meng-
un, en líklega ætti þetta að vera ná-
lægt þremur en ekki fimm, auk þess
sem hætt er að framleiða pcb og
mengun af þeim völdum því minni,“
segir Jón Reynir.
Fólk deyr frekar úr elli
Hann segist vera á þeirri skoðun
að þessi mengun sé ekki meiri en
svo, að fólk verði dáið úr elli áður en
komi að _því að eitrið fari að hafa
áhrif. „Eg hef því ekki miklar
áhyggjur af áhrifum dfoxíns, en það
er hægt að æsa fólk upp í svona mál-
um og fólk er orðið mjög hrætt við
mengun í matvælum, sérstaklega
eftir að kúafárið kom upp í Evrópu.
Því er hætt við að gengið verði
lengra en nauðsynlegt er.
Mér finnst full ástæða til að óttast
framhaldið, því Evrópusambandið
hlýtur að ganga lengra og setja mörk
um díoxíninnihald í fiski. Fyrst ekki
má nota mjölið í dýrafóður, þar sem
það er afskaplega lítill efnisþáttur, 2
til 6% í svína- og fuglafóðri, hlýtur að
koma að fiskinum næst, fyrst verið
er að vernda mannskepnuna fyrir
þessu eitri á annað borð. Þama
skiptir annars vegar máli aldur
fisksins og hins vegar eru sum haf-
svæði meira mengandi en önnur. Þá
skiptir fitumagnið í fiskinum máli,
því sé tekið dæmi af loðnunni er
minna hlutfall af eiturefnum í lýsinu,
þegar hún er feitust.
Þegar hún horast
eykst hlutfallið hins
vegar, því loðnan nýt-
ir fituna sér til gagns.
Þannig er hlutfall díoxíns í lýsi úr
sumarloðnu mun minna en úr loðnu
úr sama árgangi um veturinn," segir
Jón Reynir.
Uppsprettan ekki í físki
Hann segir að mikilvægt sé að
gera sér grein fyrir því hvaðan þessi
mengun komi, en svo virðist sem í
skýrslu nefndarinnar um dýrafóður
sé gert ráð fyrir því að uppsprettan
sé í fiski. Hann segir að mengunin
komi fyrst og fremst frá iðnaðarríkj-
unum og kannski sé eðlilegast að
vera ekkert að fárast yfir þessum
mörkum, heldur ráðast að rót vand-
ans. Það sé Ijóst að Svíar hafi þar náð
góðum og mælanlegum árangri og
sömu sögu sé að segja af öðrum þjóð-
in innan ESB. Því skipti það mestu
máli að minnka framleiðslu díoxíns
með enn frekari ráðum. Þá væri ver-
ið að vinna til frambúðar í stað þess
að ráðast á einn þátt eins og fiskinn
eins og hann sé einhver uppspretta
að þessu.
Vilja ekki að fiskur sé
veiddur í mjöl og lýsi
„Þetta virðist allt komið frá Græn-
ingjunum og þar eru ekki öll kurl
komin tl grafar. Þjóðverjar settu lög
fyrir helgina um bann við notkun
kjöt- og beinamjöls og fiskimjöls í
dýrafóður. Bannið við notkun fiski-
mjöls var runnið undan rifjum
Græningja, en fram á síðustu stundu
stóð til að undanskilja það banninu.
Mér sýnist að þeir séu farnir að
vinna meira á þessum vettvangi en
áður í stað þess að stunda áberandi
mótmæli. Eg er þvi hræddur um að
þeir komi að þessu díoxínmáli líka.
Græningjarnh vilja einfaldlega ekki
að fiskur sé veiddur í mjöl og lýsi og
vilja láta hvalina og selina hafa nóg
að éta. Þeir beita því öllum aðferðum
til að stöðva þessar veiðar. Þetta er
ein leiðin,“ segir Jón Reynir Magn-
ússon.
Mengun frá
iðnríkjunum
Komið frá
Græningjum