Morgunblaðið - 07.12.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 2£
ERLENT
Hjákonur Estrada forseta
verða kannski yfirheyrðar
Manila.AP.
RÉTTARHÖLD yfir Joseph Estr-
ada, forseta Filipsseyja, hefjast í dag
og er um fátt meira rætt á eyjunum.
Lögfræðingar deildu í gær um mál
sem hefur vakið mikla athygli, hvort
einhverjar af hjákonum Estrada
verði kallaðar til að bera vitni í mál-
inu.
Estrada er sakaður um að hafa
þegið mútur, spillingu, að hafa með
gjörðum sínum brotið gegn stjórnar-
skránni og að hafa brugðist trausti
almennings. Ef hann verður fundinn
sekur um eitt af ákæruatriðunum
verður honum vikið úr embætti. Tvo
þriðju öldungardeildarinnar þarf
hins vegar til að dæma hann sekan.
Estrada hefur hafnað öllum sök-
um sem á hann eru bornar. Stjóm-
málaskýrendur eru á því að réttar-
höldin geti farið á hvorn veginn sem
er.
Ákærendur vilja láta rannsaka
glæsibyggingar þær sem sagt er að
Estrada hafi útvegað sumum hjá-
kvenna sinna og því gæti reynst
nauðsynlegt að láta þær bera vitni en
hermt er að Estrada eigi sjö börn ut-
an hjónabands með fimm konum.
Forsetaritarinn, Ronaldo Zamora,
hefur gagnrýnt að hjákonum forset-
ans sé blandað í málið og sagt húsin
ekkert hafa með ákærur á hendur
forsetanum að gera. Zamora sagði
einnig að byggingarnar sem öld-
ungadeildin vill fá vitnisburð um
hefðu verið fengnar að láni eða leigð-
ar. Gagnrýnendur forsetans segja
glæsihýsin hafa verið greidd með
óútskýrðum auðæfum og því eðlilegt
að yfirheyra hjákonurnar.
Á sjöunda tug manns
verður yfirheyrður
Embættismenn tilkynntu að lokn-
um fundi í gær að réttarhöldin
myndu a.m.k. vara fram í miðjan jan-
úar og verða um 54 og 66 manns yfir-
heyrðir og þar af um helmingur
þeirra kallaður til að bera vitni fyrir
rétti.
Skorað hefur verið á Estrada að
segja af sér en meðal þeirra sem
hafa hvatt hann til þess eru Corazon
Reuters
Joseph Eslrada, hinn umdeildi
forseti Filippseyja.
Aquino og Fidel Ramos, fyrrverandi
forsetar og hinn áhrifamikli erki-
biskup í Manila, kardinálinn Jaime
Sin. Estrada nýtur hins vegar víð-
tæks stuðnings á meðal fátækra auk
þess sem Imelda Marcos, ekkja ein-
ræðisherrans látna Ferdinands
Marcos og nokkrir öldungadeildar-
þingmenn styðja hann.
Andstæðar fylkingar lögðu í gær á
ráðin um skipulagningu mótmæla í
dag og eru yfirvöld því viðbúin að til
átaka komi og hafa aukið viðbúnað
sinn.
Sjónvarpað beint
frá réttarhöldum
Réttarhöldin vekja gífurlega at-
hygli á Filippseyjum og hyggjast
stærstu sjónvarpsstöðvarnar á eyj-
unum sýna beint frá þeim. Það er í
þágu almannahagsmuna, segja tals-
menn þeirra og hafa bent á að þeir
verði af miklum auglýsingatekjum
fyrir vikið enda jólin í nánd. Aðrir
hafa þó haldið fram að stöðvarnar
muni finna leið til að bæta sér tapið
upp. „Þær munu finna einhverja leið
til að græða pening [á réttarhöldun-
um],“ spáir ritstjóri einnar af netút-
gáfum Filippseyja.
20 ára
dómur fyrir
njósnir
Moskvu. Reuters.
RÚSSNESKUR dómstóll dæmdi í
gær Bandaríkjamanninn Edmond
Pope í 20 ára fangelsi fyrir njósnir.
Er hann fyrsti Vesturlandamaður-
inn sem dæmdur er fyrir þær sakir í
Rússlandi frá lokum kalda stríðsins.
Hefur þetta mál spillt mjög sam-
skiptum Rússa og Bandaríkjamanna
að undanförnu.
„Sekur, 20 ár,“ sagði dómarinn
eftir rúmlega tveggja tíma réttar-
hald en málið hefur tekið mjög
skamman tíma, aðeins nokkra mán-
uði. Hefur málsmeðferðin, sem fór
fram fyrir luktum dyrum, verið
harðlega gagnrýnd en Pope var gefið
að sök að hafa reynt að komast yfir
leynilegar upplýsingar um tundur-
skeyti. Segist hann alsaklaus af því
en hins vegar hafi hann beðið um
upplýsingar um tundurskeyti sem
áður var búið að opinbera.
Pope, sem er 54 ára kaupsýslu-
maður og starfaði fyrrum í leyni-
þjónustu bandaríska sjóhersins, er
með beinkrabba og fjölskylda hans
segir, að hann muni ekki þola vistina
í rússneskum fangelsum.
OPELVECTRA
**!SSlSS5,
KANAR*
SONY
brelÖSrp
fróAeo (um l,u uu —.—'
PLAYSTATION 1
leikiatöNur
frá Skffunm ---
lyiaferðirfynr"
únall-ÚtíÝn (um l5°'
Samtals 190 þúsund vinningar að verðmæti á annað hundrað milljónir króna!
Hver miði verður að mörgum trjám
Fyrir hverja póstkröfu sem þú leysir út fást um 40 trjáplöntur og ef allir
sækja vinninginn sinn á pósthúsið dugar ágóðinn til gróðursetningar
á um 1000 ha svæði. Til samanburðar þá er stærsti skógur landsins,
Hallormsstaðarskógur, um 700 ha að stærð.
Ert þú búin(n) að sækja vinninginn þinn?
ÍSLANDSBANKHWl
PÓSTURINN
íslandssfmi
SKÓGARSJÓÐURINN
Upplýsingasími 581 1770