Morgunblaðið - 07.12.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 33
LISTIR
Sinfóníuhljómsveit fslands frumflytur verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson á tónleikum í kvöld
„Islandsforleikur á
árþú sundaskiptum “
/ ✓
Atónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í
kvöld verður frumflutt nýtt verk eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, auk þess sem leik-
in verða verk eftir jafnólík tónskáld og
Nebojsa Jovan Zivkovic, Frank Zappa og
Antonio Vivaldi. Margrét Sveinbjörnsdóttir
fékk Hjálmar til að segja sér frá nýja verk-
inu, sem hlotið hefur titilinn I svarthvítu.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Tónskáldið Hjálmar H. Ragnarsson og hljómsveitarstjórinn Jerzy Mak-
ymiuk bera saman bækur sínar á æfingu Sinfóníuhljómsveitarinnar.
HJÁLMAR skrifaði verkið fyrir
SLnfóníuhljómsveitina að beiðni og
frumkvæði stjórnar Reykjavíkur -
menningarborgar Evrópu árið 2000.
Flutningur á verkinu er síðasta sam-
starfsverkefni hljómsveitarinnar og
menningarborgarinnar á menning-
arárinu sem senn rennur sitt skeið.
Um tilurð verksins segir Hjálmar
að i upphafi hafi hann vitanlega ein-
hverjar fyrirframhugmyndir en svo
fari verkið fljótlega að stjórna sér
svolítið sjálft. „I þessu tilfelli leyfði
ég mér að leggja mér mjög strangar
leikreglur. Eg setti mér þröngar
skorður í tónsmíðinni sjálfri, skil-
greindi hvaða möguleika ég hefði og
reyndi að vinna innan þessa ramma
og nýta möguleikana til hins ýtrasta.
Þegar um hljómsveitarverk er að
ræða er hættan nefnilega sú, þar
sem möguleikarnir virðast vera
mjög miklir og margir, að menn fari
í eitt allsherjar litabað og úr verði
hrærigrautur eða sósa. I aðra rönd-
ina er þetta svona andófsverk gagn-
vart þeirri fágun og fimleika sem
einkennir nútímatónsmíðina. Við
sjáum þetta t.d. mjög mikið í bók-
menntunum, þessa fágun sem leiðir
yfirleitt til botnlausra leiðinda. Ég
reyni að einblína á innri gerð verks-
ins og vonandi fær verkið þaðan
kraftinn, úr uppröðun tónanna og
ryþma, þessum einföldu grunn-
stærðum, þannig að ytri áferð er
frekar afleiðing af því en fyrirfram
sett markmið,“ segir Hjálmar. í
gamni og alvöru segist hann stund-
um hugsa verkið sem einhvers kon-
ar Islandsforleik, þótt það hafi ekki
verið upphaflega markmiðið. „Þá er
ég að vísa til þess að Jón Leifs samdi
á sínum tíma frægan Islandsforleik
- kannski má í aðra röndina segja að
þetta sé íslandsforleikur á árþús-
undaskiptum."
Hijúft og vetrarlegt
en örlar á angurbh'ðu
Hann segir verkið, a.m.k. hið ytra,
ákaflega hrjúft og kannski svolítið
vetrarlegt á að hlýða. „En inni á
milli örlar á angurblíðu sem fyrir
mér verður miklu mikilvægari þegar
umhverfið er hrjúft,“ bætir hann
við. „Nú er þetta verk ekki hugsað
myndrænt í sjálfu sér, nema kannski
eins og einhvers konar hljóðskúlpt-
úrar en vilji menn hugsa það mynd-
rænt, þá held ég að því mætti lýsa
sem einhvers konar vetrar-
mynd með skýrum línum.
Það er enginn ofsi, heldur
meira eins og fjúk, ímynda ég
mér - þessi íslenski vetur
sem við þekkjum svo vel
þegar við göngum út í
skammdegisrökkrið. Svo er ynd-
islegt að koma aftur inn í hlýj-
una,“ segir tónskáldið, sem hefur
nú þegar hafist handa við annað
verk sem tengist því sem nú verður
frumflutt. „Þar sný ég þessu alveg
við. Þar erum við inni' í hlýjunni og
þráum kuldann - það eru eiginlega
alger umskipti því þar er opnað fyrir
þær skorður sem ég setti mér í
þessu verki en lokað á annað,“ segir
Hjálmar.
Vísar til eigin upphafs
í tónsmíð
„Ég er algjörlega þeirrar trúar að
þetta ofhlæði listanna sem við höfum
séð síðustu 15-20 árin tilheyri í raun
fortíðinni. Það sem gefur
mest með skírskotun til for-
tíðar eru hreinar línur og ein-
hvers konar nýr mód-
ernismi sem byggist á
mjög hreinni og klass-
ískri hugsun. í þessu tilfelli sé ég að-
allega fyrh’ mér myndlist, eins og
rússnesku fúnksjónalistana sem
voru með þessi skýru form og
skörpu línur, líka allra fyrstu mód-
ernistana, og síðan alveg yfir í
Mozart, klassíkina. Að tína til og
hlaða saman og hræra í því - sem ég
gerði líka sjálfur og hef verið hluti af
- leið það í mínum augum undir lok
fyrir átta níu árum, og í þessu verki
er ég svolítið að uppskera af þeim
pælingum. Þannig að fyrir mér er
þetta að sumu leyti tímamótaverk -
það kemur svo í ljós hvort öðrum
finnst það sama,“ segir hann og upp;
lýsir jafnframt að með titlinum í
svarthvítu sé hann óbeint að vísa til
síns eigin upphafs í tónsmíð en eitt
fyrsta tónverkið hans heitir einmitt
því sama nafni. „Kannski er ég að
taka upp þráðinn aftur - ég veit það
ekki.“
Má skilja tónskáldið sem svo að
það hafi fengið nóg af póstmódern-
isma? „Ég var á ísafirði veturinn
1993-94 og horfði bara á fjöllin, him-
ininn og sjóinn og þá kláraðist þetta
póstmódemíska dæmi hjá mér,“
svarar Hjálmar.
UTIJAKKAR
Herrau
outlet
UR ULL
KR. 12.900
SlUI SGS 9512 SUÐ UKLANDSBRAUT 5« 8LAU HÚSIN VIÐ HLIDINA Á TOPPSKÓR
Einvaldar bók-
menntaverðlaunanna
STJÓRN íslensku bókmennta-
verðlaunanna kynnti í gær þá
tvo einstaklinga sem velja úr til-
nefndum bókum til verðlaun-
anna.
Veitt eru verðlaun í tveimur
flokkum, flokki fagurbókmennta
og flokki fræðibóka og er það
Svanhildur Óskarsdóttir bók-
menntafræðingur sem velur úr
flokki fagurbókmennta og Vil-
hjálmur Lúðvíksson fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs
íslands sem velur úr fræðiritun-
um. í kvöld verður tilkynnt við
hátíðlega athöfn í Þjóðleikhús-
kjallaranum hvaða fimm bækur
eru tilnefndar í hvorum flokki
Vilhjálmur
Lúðvíksson
Svanhildur
Óskarsdóttir
en endanlegt val um hvaða tvær
bækur hljóta verðlaunin verður
tilkynnt í janúar. Athöfnin í
Þjóðleikhúslq'allaranum hefst
klukkan 19.15 og verður henni
sjónvarpað beint.
Með ofur-
tök á slag-
verkinu
STJÓRNANDI á tónleikunum í
kvöld er pólski hljómsveitarstjór-
inn Jerzy Maksymiuk. Þetta er í
fimmta sinn sem hann kemur hing-
að til lands til að stjórna Sinfón-
íuhljómsveitinni, svo hann er ís-
lenskum tónleikagestum ekki með
öllu ókunnur.
Maksymiuk stofnaði Pólsku
kammersveitina, sem nú heitir
Sinfonia Varsovia, og hefur sljórn-
að henni frá upphafi. Þá hefur
hann verið aðalstjórnandi skosku
BBC-hljómsveitarinnar í tæpa tvo
áratugi. Maksymiuk er mjög eftir-
sóttur hljómsveitarsljóri og hefur
hann verið gestastjórnandi
margra af þekktustu hljómsveitum
heims.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir hvorki fleiri né færri en
Qögur tónskáld. Tónleikarnir hefj-
ast á frumflutninginum á verki
BOSS
HUQO BOSS
eterna
Benvenuto.
gardeur
strellson
BERTONI
LACOSTE
| BELUNI |
50-70%
AfSLÁTTUR Af
MERKJAVÖRU
FRÁBÆRIR
Slagverksleikarinn heimsfrægi Evelyn Glennie leikur nú með Sinfón-
íúhljómsveit íslands í þriðja sinn.
Hjálmars H. Ragnarssonar, í
svarthvítu.
Evelyn Glennie leikur einleik
í tveimur verkum
Þá er Konsert nr. 2 fyrir mar-
imbu og hljómsveit eftir serbneska
tónskáldið Nebojsa Jovan Zivkovic
en þar er einn frægasti slagverks-
leikari heims, Evelyn Glennie, ein-
leikari með hljómsveitinni.
Eftir hlé heiðrar Sinfóníuhljóm-
sveitin minningu Franks Zappa,
sem hefði orðið sextugur 21. des-
ember nk. hefði honum enst aldur,
með því að flytja eftir hann tvö
stutt verk; Envelopes og G-Spot
Tornado.
Tónleikunum lýkur á Konsert í
C-dúr RV 443 eftir Antonio Viv-
aldi, þar sem Evelyn Glennie leik-
ur einleik, en hún hefur umritað
piccoloflauturödd konsertsins fyrir
víbrafón.
Þetta mun vera í þriðja sinn sem
Evelyn Glennie leikur með Sinfón-
íuhljómsveit íslands, fyrst lék hún
með hljómsveitinni vorið 1995, þá í
mars 1997 og svo nú. Síðast var
reyndar hljómsveitarstjórinn sá
sami og nú; Jerzy Maksymiuk. í
kynningu frá Sinfóníuhljómsveit-
inni segir að það sé ráðgáta hvern-
ig Evelyn Glennie hafi náð slíkum
ofurtökum á slagverkshljóðfærum
sinum þrátt fyrir að búa við heyrn-
arleysi en hún hefur verið nánast
heyrnarlaus frá tólf ára aldri.
„Eftir að námi lauk hefur Glenn-
ie ferðast heimshorna á milli og
komið fram með mörgum helstu
hljómsveitum veraldar. Meðal
samverkamanna hennar á því sviði
má nefna hljómsveitarstjórana Seji
Ozawa, Mstislav Rostropocich,
Leonard Slatkin og Esa Pekka Sal-
onen.
Evelyn Glennie leikur ekki bara
með sinfónískum sveitum, hún
leggur sig fram um að tengja þjóð-
lega tónlist af ýmsu tagi við klass-
ísku hefðina, hefur leikið með
gamelan-hljómsveitum í Indónesíu,
samba-sveitum brasilískum, jafnt
sem indverskum tónlistarmönnum.
Þá má nefna samstarf hennar við
Björk, með henni hefur Glennie
spilað og þær hafa samið lög í
sameiningu. Sjálf hefur Glennie
samið allnokkur verk, þar á meðal
tónlist fyrir kvikmyndir og sjón-
varpsþætti," skrifar Hanna G. Sig-
urðardóttir í efnisskrá tónleik-
anna.
Tónleikarnir eru í blárri áskrift-
arröð og hefjast kl. 19.30.