Morgunblaðið - 07.12.2000, Qupperneq 92
M 0 ' ‘>4 f f •
PERFECT STORM
Komin ut á leígumvndbandi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 6691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ§MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Þriðjungrir ellilífeyris-
þega nær ekki
lágmarksframfærslu
7.400
' með undir
58.500 kr.
á mánuði
UM 7.400 ellilífeyrisþegar voru með
tekjur undir 58.500 kr. á mánuði í
fyrra. Kemur þetta fram í grein sem
Olafur Ólafsson, formaður Félags
eldri borgara, skrifar í blaðið í dag.
Ólafur vitnar í upplýsingar frá rík-
isskattstjóra um dreifingu á tekjum
ellilífeyrisþega. Par er tekið meðal-
tal úr tekjuhópum. Kemur éinnig
fram að alls höfðu tæplega 11.700
' 'ríianns, eða tæp 44% ellilífeyrisþega,
75.750 kr. mánaðartekjur eða lægri,
og er miðað við tekjur fyrir skatta.
Ólafur dregur þær ályktanir af töl-
unum að um þriðjungur ellilífeyris-
þega beri ekki úr býtum lágmarks-
framfærslutekjur.
1 umræddri úttekt ríkisskatt-
stjóra eru 26.866 einstaklingar og
eru meðaltekjur alls hópsins 102.750
kr. á mánuði fyrir skatta.
■ T»pur þriðjungur/58
*
Arangurs-
laus sátta-
fundur
SAMNINGAFUNDUR í
kjaradeilu framhaldsskóla-
kennara var haldinn í gær en að
sögn Elnu Katrínar Jónsdótt-
ur, formanns Félags fram-
haldsskólakennara, var enginn
árangur af honum. Verkfall
framhaldsskólakennara hefur
nú staðið í fjórar vikur. Elna
Katrín sagði að kennarar hygð-
'í Y ust kynna sjónarmið sín í dag.
«m■a
Samkomulag milli stjórnarflokka um sölu Landssímans
Selja á 20% hlutaQár
ríkisins á næsta ári
STJÓRNARFLOKKARNIR gera
ráð fyrir að selt verði^ a.m.k. 20%
hlutafjár í Landssíma íslands hf. á
næsta ári, samkvæmt upplýsingum
Geirs H. Haarde fjármálaráðherra.
Tillagna framkvæmdanefndar um
einkavæðingu um hvemig standa
skuli að sölunni er að vænta í skýrslu
sem lögð verður fram fljótlega.
„Það liggja íyrir hugmyndir um
nánari útfærslu á þessu og jafnframt
um næstu skref í málinu frá einka-
væðingamefnd, sem hún mun ganga
frá í skýrslu til okkar fljótlega. í fram-
haldi af þessu er það niðurstaða í rík-
isstjóminni að gera ráð fyrir tekjum
af þessari sölu á tekjuhlið fjárlaga
sem verður birt í dag,“ sagði Geir.
„Tekið ágætt tillit til
sjónarmiða beggja flokka“
„Ég tel að nefndin hafi tekið ágætt
tillit til sjónarmiða beggja flokka í
þessu. Það er mjög mikil tæknileg
fagvinna á bak við þessa skýrslu sem
er að því er okkur sýnist mjög vel úr
garði gerð. Það hefur verið sjónarmið
beggja flokka að taka mjög ríkt tillit
til sjónarmiða landsbyggðarinnar og
Nú er rétti tíminn
Stofnaðu reikning
með einu símtali
75 15 7 S
MTÍÐAR
RCIKHINCUR ÍSlfiNDSBRNKR
gæta þess að gengið verði tryggilega
frá því að samkeppnisstaða íyrir-
tækja á landsbyggðinni skerðist ekki
af þeim sökum að fyrirtækið var
einkavætt. Ég held að það séu Ijóm-
andi góðar lausnir á öllum slíkum at-
riðum í þessu," sagði Geir.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði í gærkvöldi að aðstæður í
efnahagslífinu kölluðu á aukna einka-
væðingu ríkisfyrirtækja. Stjómar-
flokkamir hefðu sett sér ákveðin
markmið varðandi sölu á hlutabréfum
í Landssímanum og falið einkavæð-
ingamefnd að undirbúa hana. Sagðist
ráðherra te\ja að vinna nefndarinnar
benti eindregið tál að hægt yrði að ná
þeim markmiðum. Því hafi verið talið
óhætt að gera ráð fyrir að sala yrði
hafin. Endanlegar ákvarðanir yrðu þó
ekki teknar fyrr en skýrsla nefndar-
innar hafi komið fram og búið að fjalla
um hana í ríkisstjóm.
Áætlanir í fjárlagafrumvarpi um
tekjur ríkissjóðs af sölu rfldseigna
breytast vegna þessara áforma. Er
nú gert ráð fyrir að hagnaður rflds-
sjóðs af sölu eigna á árinu 2001 verði
rúmir 15 milljarðar króna en í frum-
varpinu var gert ráð fyrir 7,5 millj-
arða kr. tekjum. Meginhluta viðbótar-
tekna á að afla með sölu á eignarhlut í
Landssímanum og með hugsanlegri
sölu á hlutabréfum rflasins í bönkun-
um og íslenskum aðalverktökum.
„Ég tel að ef eitthvað er sé þetta
mjög varfæmisleg áætlun um sölu-
hagnað,“ sagði fjármálaráðherra.
Ijóla-
skapi við
ÞEIR voru jólalegir við vinnu sfna í
gær, mennimir sem sjá um endur-
bætur á hringtorginu á homi Ána-
nausta og Eiðsgranda.
Að sögn Sigurðar Skarphéðins-
sonar, gatnamálastjóra í Reykjavík,
er verið að hressa upp á útlit hring-
torgsins sem þótti heldur flatt og
við framkvæmdina er tekið mið af
hringtorginu sem stendur neðar við
Ánanaust. Við hleðsluna á hring-
torginu er notast við jarðveg sem
fallið hefur til við gatnagerð í
Vatnsmýrinni og er gert ráð fyrir
því að framkvæmdum ljúki að
mestu fyrir jól.
Spáð er mildu veðri suðvestan-
lands, en slyddu og snjókomu norð-
anlands. Norðaustlæg átt verður
áfram um allt land og fer veður
kólnandi. Má búast við snjókomu
um mest allt land á sunnudag.
Væntanlegt frumvarp í Noregi
Greiðsla fyrir leyfi
til sjóeldis á laxi
NORÐMENN hyggjast úthluta allt
að 50 leyfum til sjókvíaeldis á laxi á
næsta ári og verða leyfrn veitt gegn
gjaldi. Slík leyfi hafa ekki verið veitt
í 15 ár, en nú þegar stunda 800 leyfis-
hafar laxeldi víðs vegar um Noreg.
Þeir, sem fyrst fengu leyfi til sjó-
kvíaeldis á laxi, þurftu ekki að greiða
fyrir þau, en leyfin hafa síðan gengið
kaupum og sölum fyrir allt upp í
nokkur hundruð milljónir íslenskra
króna hvert.
Nú er í smíðum frumvarp til
breytinga á lögum um fiskeldi og
styður meirihluti þingmanna í Nor-
egi að rétt sé að krefjast greiðslu
fyrir leyfin.
Magnor Nerheim, deildarstjóri í
norska sjávarútvegsráðuneytinu,
segir í samtali við Morgunblaðið að
of snemmt sé að segja hvað leyfin
muni kosta. Leyfunum hafi verið út-
hlutað endurgjaldslaust á sínum
tfma, enda hafi þá verið um að ræða
nýja atvinnugrein. Nú hafi laxeldi
öðlast sinn sess og því réttlætismál
að þeir, sem fái nýju leyfin, borgi fyr-
ir þau.
Einnig er væntanlegt svokallað
laxafjarðafrumvarp í Noregi þar
sem lagt er til að sjö svæði í Noregi
verði algjörlega án laxeldis. Tilgang-
urinn er að vernda villta laxastofna.
Segir Nerheim að nú sé til umræðu
hvemig jákvætt samspil eldislax og
villts lax verði sem best tryggt.
Hann treystir sér þó ekki til að segja
til um hvort frumvarpið um bann við
laxeldi á ákveðnum svæðum verði
samþykkt.
■ Greiðslu/13