Skírnir - 01.12.1909, Síða 37
Um starf og stjórn sjúkrasamlega. 325
samlagsmanna, gjafir, arð af hátíðahöldum, hlutaveltum
og því um líkt.
Ef mikil veikindaár ber að höndum og hrökkva tekj-
ur ekki fyrir útgjöldum, þá skal greiða hallann úr vara-
sjóði.
Nú hrekkur varasjóður ekki til þess að greiða tekju-
halla að loknu reikningsári, þá getur samlagsfundur ákveð-
ið að jafna því, er á vantar, á alla hluttæka samlags-
menn, sem þá eru í samlaginu, í réttu hlutfalli við mán-
aðargjöld þeirra.
Það er lifsnanðsyn fyrir hvert samlag, að koma fyrir sig álitleg-
um varasjóði. Aukaniðurjöfnun i miklum veikindaárum verður jufnan
illa þokkuð. Þá er vel að verið, ef varasjóður nemur eins árs útgjöld-
um samlagsins. Hvert samlag ætti að gera sér far nm að koma upp
varasjóði sem allra fljótast, efna til hans með gjöfum, áheitum, hluta-
veltum, kappleikum, skemtunum o. þv. u. 1. Varasjóðurinn er' fjöregg
hvers samlags.
17. gr.
Ef deila rís milli stjórnar samlagsins og einhvers sam-
lagsmanns, skal leggja málið í gerð. Skal þá velja 3
menn í gerðardóm á samlagsfundi og skulu báðir máisað-
ilar hlíta úrskurði gerðardómsins, enda mega deilumál í
samlaginu aldrei koma fyrir dómstóla landsins. Gerðar-
dómi er ekki heimilt að sekta samlagsmenn eða skerða
réttindi þeirra frekar en lög þessi leyfa.
18. gr.
Þessi lög eru samþykt á aðalfundi . . . dag . . . mán
19 . . . og ganga í gildi..............
Breyta má lögum samlagsins á hverjum þeim aðal-
fundi, sem boðaður er til þess, meðal annars, að ræða
lagabreytingu, ef fullur helmingur atkvæðisbærra samlags-
manna sækir fundinn; en 2/3 greiddra atkvæða þarf til
þess, að samþykkja hverja lagabreytingu.
Nú skortir á, að helmingur sæki fund, og er þó laga-
breyting samþykt með 2/g atkvæða, þá skal halda fund
aftur innan 2 mánaða, ef stjórnin vill, eða l/5 hluttækra