Skírnir - 01.12.1909, Blaðsíða 38
326
Um starf og stjórn sjúkra'samlaga.
og atkvæðisbærra samlagsmanna krefst þess. Skal þá
boða til fundar á venjulegan hátt, og geta þess í fundar-
boðinu, að ræða eigi lagabreytingu, er eigi hafi orðið
samþykt á hinum fyrri fundi vegna þess, hve fáir hafi
sótt þann fund. Ef breytingin er samþykt á þessum fundi
með 2/3 greiddra atkvæða, þá er hún lög, hvort sem
margir eða fáir sækja fundinn.
Nú þykir ráðlegt, eða nauðsynlegt að slíta samlaginu,
og fer þá um tillögur þar að lútandi sem um lagabreyt-
ingar.
Ef samlaginu er slitið, skal öll skuldlaus eign þess
renna til Heilsuhælisins á Vífilsstöðum.
Sá fundur, er samþykkir á löglegan hátt að slíta
samlaginu, kveður að öðru leyti á um, hvernig ráðstafa
skuli eignum þess og lúka skuldum.
Þetta frumvarp ætti að vera næg leiðbeining fyrir
alla þá, sem vilja koma á fót sjúkrasamlögum.
En þegar menn hafa samið sér lög, þá kemur að því,
að útvega reikningsbækur með réttu sniði, skrásetningar-
bækur og ýms eyðublöð. öllum þeim, er koma á fót
sjúkrasamlagi, stendur til boða að fá hjá Oddfellowfé-
laginu leiðbeiningar um reikningsfærslu og skrásetning;
en þá verða þeir að senda eitt eititak af lögum sínum
fullgerðum, því að eftir þeim verður að haga bókfærsl-
unni.
Eg býst við, að margur bregði við fátækt sinni,
þykist ekki hafa efni á því, að vera í sjúkrasamlagi En
ef öllum er orðið ljóst, að það sé heimska af fátækum
skipseiganda, að vátryggja ekki skip sitt, þá verða menn
vonandi fljótir að átta sig á því, að það sé enn meira
óráð fyrir fátækan mann, að vátryggja ekki heilsu sína.
I sumar sem leið talaði eg til alþýðu manna um
sjúkrasamlög á nokkrum stöðum út um land. Það var