Skírnir - 01.12.1909, Síða 82
370
Erlend tiðindi.
og komst síðan inn í Holsteinsráðuneytið sem helzti maðurinn
að forsætisráðherra frátöldum. Óánægjan yfir þessu braust út
skömmu eftir að Hollsteinsráðuneytið tók við. Vildu mótstöðumenn
Christensens að múgur og margmenni gengi á konungsfund til þess
að mótmæla því, að Christensen sæti í ráðuneytinu, en konungur neit-
aði að sjálfsögðu að taka á móti mönnum í slíkum erindum. Varð
það úr, að mikill mannsaftiaður fór um götur Khafnar 29. ág. með
blaktandi fánum og endaði svo för þessi með harðorðum ræðum í
garð Christensens. Er þetta hreif ekki, var undirskriftum safnað
um land alt og jafnvel erlendis til þess að krefjast þess, að Christ-
ensen viki úr ráðherrasæti. Rituðu undir áskorun þessa 65 þús.
manna í Höfn, en 76 þús. utan Hafnar. Lauk þessu svo, að 18.
okt. fór Christensen úr ráðgjafasæti. Þegar Zahlesráðuneytið tók
við völdum, var það eitt af loforðum þess að fá alt þetta mál
rannsakað af ríkisdómi. Þessu hefir síðan verið hrundið i fram-
kvæmd og var Christensen og Berg stefnt fyrir ríkisdóm, hversu
sem mál þeirra ráðast.
Þá er annað mál, er Dönum þykir miklu skifta og Zahles-
ráðuneytið ætlar sér að fá komið áleiðis. Kjördæmaskifting f
Danmörku er nú orðin úrelt, svo að sum kjördæmi hafa hálfu
meiri fólksfjölda en önnur. Nú stendur til að umsteypa kjördæm-
unum og jafna þau.
Þeirri nýbreytni hefir Zahlesráðuneytið komið á, að ráðgjaf-
arnir hafa afsalað sór öllu titlatogi og einkennisbúningum. Er
þetta að vísu lítilvægt en ekki ólíklegt að vel mælist fyrir hjá
allri alþýðu, sem ætíð er lítið um tildur höfðingjanna gefið og hé-
gómaskap.
Fjármál. Vér höfum sjaldan heyrt það, íslendingar, að
Dönum verði fjárskortur, en þó er svo nú. Síðastliðið fjárhagsár
var tekjuhallinn 8 miljónir króna, en nú er tekjuhalli áætlaður
30J miljón. Þarf ekki að taka það fram, hve ískyggilegt þetta
fjármálaástand er, þótt sú sé bót í máli að landið er frjósamt og
þjóðin auðug þrátt fyrir alt og því vel fær að bera þungar byrðar.
Tekjuhallinn stafar auðvitað af auknum kostnaði til hermála.
Það er eins og hin mikla uppgangs og gróðaöld Dana sé liðin. Nú
er farið að berjast í bökkum og safna skuldum. Eiga útlendir
menn geysimiklar eignir í dönskum verðbréfum auk þess sem bein
ríkislán ná til.
Eftirmaður Skats Bördams Sjálandsbiskups er orðinn Peter
Madsen, fyrverandi háskólakennari.