Tímarit - 01.01.1869, Síða 81

Tímarit - 01.01.1869, Síða 81
81 eða hvert goðorð hafi verið þínghá fyrir sig og náð yfir afmarkað svæði, þá er öðru nær en að takmörk þeirra sé auðfundin víðast hvar. Það sem helzt má ráða nokkuð af í því efni er Landnáma, borin saman við náttúrlega skiptíng héraðanna. Sumstaðar má og ráða nokkuð af sögunum og enda af haustþíngstöðun- um, þar sem þeir verða fundnir. En það getur villt sjónir fyrir mönnum í þessu efni, að takmörkin hafa á ýmsum stöðum verið breytíngum undir orpin, þó mun það einkum hafa átt sér stað áður en stjórn landsins komst á fastan fót, eða eptir að henni fór að hnigna en á meðan hún stóð í blóma mun það hafa verið föst regla, að þegar einn eignaðist hlut í nokkru goðorði, i arf eða á annan hátt, að hann átti hann síðan sem hlut í sama goðorði, en skeitti honum ekki við annað goðorð, þó hann ætti það áður. Annað, sem líka get- ur vilt fyrir manni, er það, að goðinn bjó ekki allt af meðal þíngmanna sinna, þó það væri optast, hann bjó stundum í öðru goðorði, öðrum þriðjúngi, öðru þíngi og jafnvel í öðrum fjórðúngi, en hann átti mannaforráð í. Þannig átti t. d. Arnsteinn þriðjúng í Ljósvetnínga goðorði, en bjó þó í Öxarfirði, og hefir ef til vill verið Öxfirðínga goði. Vígaglúmur hélt goðorði sínu þó hann flytti úr héraði, «hann átti að helga haustþíng» í Eya- firði eptir það. Það sést af Ljósvetníngasögu, að Guð- mundur hinn ríki átti Reykdæla goðorð, mun hann hafa fengið það af Þorsteini Áskelssyni, þegar «hann seldi af höndum goðorð þeirra Skútu». Þorkell Geitisson fekk með Jórunni konu sinni hlut í Þveræínga goðorði, — því Einar tengðafaðir hans hefir náð goðorðinu undir sig þegar Glúmur var orðinn örvasa, þó bjó Þorkell í Krossavík eplir sem áður. Og hér eptir mun sýnt, að 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit
https://timarit.is/publication/91

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.