Tímarit - 01.01.1869, Blaðsíða 19
19
ríka, en þó er hér við aðgætanda, að 'sumar ættir
gánga stundum mjög seint fram, og þetta heflr átt sér
einmitt stað í sumum kvíslum af Hrólfs ætt. Þeir eru
til, er telja föður Hrólfs, Bjarna Hrólfsson Þorsteins-
sonar, og híta þá Hrólf Bjarnason og í’orberg sýslu-
mann Bessason hafa verið bræðrasonu; en það er þó
engin ástæða til að efast um, að Bjarni Skúlason hafi
verið faðir Hrólfs, eins og talið er, og það því síður,
sem aí skjölum sést, að Bjarni Skúlason hefir átt jörðina
Skálá í Fljótum, er Hrólfur síðar seldi sem óðalsjörð sína.
8. gr.
3. Sesselja llallsdóttir hét kvinna síra Eggerts og móð-
ir íngibjargar kvinnu Brynjólfs Halldórssonar;
hennar faðir
4. Hallur Ólafsson, prófastur í Grímstúngum, dó 1741;
hans faðir
5. Ólafur Hallsson, prófastur í Grímstúngum, dó 1681;
hans faðir
6. Hallur Ólafsson digri, prestur á Höfða; hans faðir
7. Ólafur Árnason, prestur; hans faðir
8. Árni Petursson i Stóradal í Eyjafirði;‘hans faðir
9. Petur Loptsson, lögréttumaður; hans faðir
10. Loptur Ormsson; hans faðir
11. Ormur Loptsson; hans faðir
12. Loptur Guttormsson ríki, er dó 1436; hans faðir
13. Guttormur Örnúlfsson í Þykkvaskógi; hans faðir
14. Örnúlfur Jónsson á Staðarfelli; hans faðir
15. Jón [Örnúlfssonj.
Ath. Ætt þessi mun runnin úr Eyjafirði og mætti, ef
til vill, rekja hana betur. Espólín telur Ólaf föð-
ur Halls prests digra, prest, og son Árna Péturs-
sonar, eins og hér er gjört, og seinni konu hans
2*