Gefn - 01.07.1872, Side 6

Gefn - 01.07.1872, Side 6
6 arisku þjóðir til þess að fara frá Asíu og vestur tilEvrópu; það er laungu á undan þeim tímum sem um nokkra sögu er að ta'la; það var laungu fyrr en þærþjóðir urðu til, sem vér nú köllum Grikki og Rómverja, Germana og Slava. En hversu sem þessu er varið, þá knúðust þær af enum sömu hvötum og orsökum, sem enn í dag knýja Evrópumenu yiir veraldarhafið til Ameríku: menn vilja bæta hag sinn á ein- hvern hátt (það er eiginlega sérplægni og gróðavon). Annars eru taldar ýmsar orsakir til þjóðflutnínganna: stundum ofmikill fólksfjöldi í löndunum (sem rauuar er lítt trúlegt); stundum náttúruviðburðir (svo sem vatnsleysi af lángvinnum þurkum); stundum stjórnleg hlutföll. Sólargángurinn verður fyrir manna sjónurn frá austri til vesturs: í sömu átt gengur þessi aðalhreifíng þjóðalífsins, og hefir alltaf gengið — hverr veit hvenær hún muni enda? hverrveit nema allt mannkyn hverfi þannig smátt og smátt í kríng um hnöttinn frá austri til vesturs? hverr getur sannað, að eptir nokkrar þúsundir ára muni Evrópa ekki vera orðin svipt allri menntun og menntunin þá horfin yfir til Ameríku og Kína, til þess að hverfa þaðan aptur til Indíalands, þar sem vagga hennar stóð. og liefja þaðan aptur þessa undursamlegu ferð í kríng um jarðarhnöttinn ? menntun Evrópu er ekki svo fjarska gömul: tvær þúsundir eru en hæsta áratala sem vér getum talið; og geta ekki stórkostlegar byltíngar hrundið henni úr stað, bæði af náttúrunnar og mannanna völdum? Höfum vér ekki séð þau ríki eyðileggjast, sem menn hugðu staðfest með óupprætanlegu magni, andlegu og líkamlegu? Hvað varð um Rómaveldi, þetta heimsdrottnandi Imperium Romanum ? Hvað segjum vér nú um það sem Ovídíus kvað um Róm: Longa sit huic aetas dominaeque potentia terrae, sitque sub hac oriens occiduusque dies ... Et quoties steteris domito sublimis in orbe, omnia sint humeris inferiora tuis ... ?

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.