Gefn - 01.07.1872, Side 65

Gefn - 01.07.1872, Side 65
65 Kumrar (Germanar), Skytar (Norður-Asíumenn), Medar, Grikkir, Tíbarenar, Moskar og Juakar; af þessum flokki eru og Keltar, íberar og ítalir. J>etta eru forfeður allra Norðurálfumanna, sem nefnast aunars einnig »Kákasusmenn«, af því menn hafa þókst finna fyrirmynd þeirra á meðal þeirra þjóða, sem byggja Kákasusfjall. þetta fjall eða fjall- garður liggur á railli Svartahafs og Kaspíhafs frá suðaustri til útnorðurs og hefir verið einua merkilegast fjall og helg- ast í fornöld; þar eru himinháir tindar og jöklar, stríðar ár og vötn, ógurleg gljúfur oghengiflug; en við fjallsræturn- ar eru fagrir og blómlegir dalir. Elbrus heitir hæstur tindur á Kákasus og kölluðu Persar enir fornu hann Albordj eða Borz og héldu þar goðheim; en Grikkir trúðu að Prometheus hefði verið bundinn þar og þjáður þángað til Herkúles leysti hann. Á Kákasus byggja enn feikna margar þjóðir og þar eru töluð svo mörg mál að það heitir einnig »Túngnaberg« og var af því frægt þegar í fornöld. Yfir Kákasus leituðu margar þjóðir austanað og einkum í dæld þeirri sem er á milli fjallsins og Kaspíhafsins; á þessum stöðum létu fornkonúngar gera járnhlið i gljúfrunum og ýms vígi til varnar á móti þessum þjóðstraumum, og sérmenjar þess enn í dag. Af Sem komu fimm synir, sem urðu forfeður Assýra, Kaldea, Persa, Araba og Gyðínga. AUar þessar þjóðir heita Semítar og mál þeirra eru enn semítiski málflokkur. Af Sem láta menn og vera komnar enar aðrar Asíuþjóðir: Inda og Tattara (sem Tyrkir eru aptur komnir af), Síbiríuþjóðir, Móngola og Malaja. (þessum Móngolum og Malajum mega menn ekki blanda saman við enn móngolska og malajska mannflokk, sem felur í sér marga þjóðflokka; en hér er einúngis um einstakar þjóðir að tala). Ham átti fjóra sonu, og af þeim eru komnir Negrar í Afríku, Egiptar, Föníkar og Kanaansmenn. þetta er raunar allt saman á undan enum sögulega tíma, og þessa ættleiðíngu getum vér ekki sannað af öðru en því 5

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.