Gefn - 01.07.1872, Qupperneq 67
67
þeir þekkjast varla frá gimsteinum, og skína af allskonar
litum; byggíngar þeirra eru gerðar eptir föstum reglum og
standa enn í dag; það eru enar stórkostlegustu rústir sem
til eru á jörðunui. J>eirhöfðu plóga og allskonar verkfæri,
bæði til akuryrkju, veiða og smíða; þetta vita menn bæði
af fornleifunum sem eptir þá finnast, og einkum af málverkum
þeirra, sem til eru enn frá þessari fjarru fornöld og sýna
allt atbæfi þeirra og athafnir. þ>eir höfðu stór skip með
mörgum árum og marglitum seglum, og alkunnugt er að
Nekó konúngur lét sigla í kríngum alla Afríku, þó þessi
þekkíng á löndunum týndist seinna, eins og margt annað.
peir höfðu vefstóla, og ófu svo fína og smágjörva dúka, að
menn hafa ekki getað yfirstigið þá; þeir rituðu og máluðu
á »pappír«, sem gerður var úr jurtalaufum (en seinna var
haft bókfell eða skinn, og enn seinna pappír úr líui, eins
og vér nú höfum). Öll opinber störf á Egiptalandi gengu
með ritum, og ritarar voru allstaðar, tjl að rita nöfn manna,
atvinnu, vegabréf, dóma og allskonar skjöl; sumt af þessu
hefir fundist í rústunum og þar á meðal lángar skemtisögur
sem hafðar voru handa höfðíngjunum. En jafnvel þó mennt-
unin væri svona mikil að einu leytinu, þá var að hinu
leytinu á þeim ýmislegur berserkjabragur. Öll vinna gekk
með höggum og slögum, hvort heldur það var af ríkisins
hendi, eða það voru höfðíngjarnir, sem létu vinna. Grjót
og málmar var brotið í fjöllunum fyrir vestan rauða hafið,
og þar í námunum voru herteknir menn hafðir til vinnunnar,
barðir og þjáðir; engin meðaumkvan var þeim sýnd, þó þeir
hnigi niður dauðir af þreytu og sjúkdómum, heldur voru
yfir þá settir dátar, sem ekkert skildu í máli þeirra, því
þetta voru framandi herteknar þjóðir. Með þessari enni
sömu ánauð og þrælkun voru pyramidarnir bygðir, eins og
nærri má geta að heil fjöll ekki hafi getað orðið hlaðin
nema með ógurlegum þjáníngum margra manna. J>eir létu
og höggva til stóreflis kletta og gera úr þeim manna myndir
og dýra; á fornum málverkum frá þeirri tíð er sýnt hvernig
5*