Gefn - 01.07.1872, Page 75

Gefn - 01.07.1872, Page 75
75 höfuðpresta og umboðsmenn drottins); veldi þeirra jókst mjög og náði yfir Norðurafríku, Sikiley og Spán; Móngolar steyptu því 1258 og drógu enu seinasta Kalífa um alla höfuðborgina Bagðað, saumaðau í kvrhúð. Móngolar bygðu um miðbikAsíu, og hefst saga þeirra á 13. öld með Gengis- Kan, og það voru hans synir, sem eyddu Kalífaveldinu; eptir það fóru þeir eins og logi yíir akur vestur á bóginn, brendu og brældu hvar sem þeir komu og mundu hafa lagt undir sig alla Norðurálfuna, ef þeir hefðu ekki sjálfkrafa snúið aptur. Annars stofnuðu þeir ríki í Kína, Síbiríu og Kússlandi (þar uefndust þeir Kiptsjak eða gullflokkurinn), en voru allstaðar flæmdir á burtu þegar eptir nokkur ár; þeir mögnuðust aptur þegar Tamerlan eða Tímúr kom, en sú dýrð stóð einúngis um eina öld (1369—1468). Móngolar urðu fvrsta orsökin til eyðileggíngar ens rómverska austur- ríkis, því árið 1224 flýðu Tyrkir undan þeim frá heimkynn- um sínum í Asíu (Kórasan fyrir austan Fersíu) og settust að í litlu Asíu; þar stofnaði Ósman ríki það sem frægt er orðið og enn ber nafn hans (hann dó 1316); leið ekki á laungu áður Tyrkir mögnuðust og þá börðust þeir undir Bajazet við Tamerlan og biðu ósigur, en Tamerlan hélt samt ekki yfir til Evrópu, þó nærri væri. Tyrkir settust að í Evrópu, þar sem nú heitir Tyrkland, því Rómverjastjórn var orðin ónýt og gat ekki bannað; loksins braut Mahómet hinn annar Miklagarð árið 1453 og gerði borgina að nýrri höfuðborg í nýju ríki; en ekki gátu Tyrkir samt gefið borg- inni nýtt nafn, heldur kölluðu þeir hana »Stambúl«, sem er afbakan úr grisku (eis tau polin = eistambolin, þar úr er afbakað Stambul og Istambul). þar með var fallið allt Rómaveldi. þar sem Kristur hafði boðað trúna með hógværð og lítillæti, þá skyldaði Mahómet sína játendur til að boða trúna með eldi og járni, og þessu fylgdu þeir rækilega, og misbuðu með öllu móti enum kristnu mönnum, sem heima áttu í austurlöndum, þjáðu þá og fyrirlitu eins og hunda,

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.