Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 8

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Síða 8
10 Löggjöf og landsstjórn. daufar urðu undirtektir manna, að ekkert varð af útkomu pess, enda enginn nafngreindur sem útgefandi né ritstjóri blaðsins. Yar svo að öðru leyti tíðindalítið í þessu máli það sem eftir var ársins. |>inginu var slitið 26. ágúst; þingmál urðu alls 91 : 63 lagafrumvörp, þar af samþykt 28 (17 þingm. frv. og 11 — öll — stjórnarfrv.), 5 óútrædd, hin feld; þingsályktanir urðu 26 að tölu: 8 feldar eða ekki ræddar og teknar aftur, hinar sam- þyktar; fyrirspurnir vóru 2, báðar leyfðar. Alþingiskostnaður- inn varð alls um 36000 kr.; fæðispeningar og ferðakostnaður þingmanna varð um 1000 kr. meiri enn 1885, mest sökum þess, að helmingur hinna konungkjörnu átti nú heima norður í Eyjafirðí. Nú skal skýrt frá lögum þeim, sem samþykt vóru af þessu þingi og náðu staðfestingu konungs fyrir árslokin. 4. nóv. vóru staðfest: 1. Fjárlög fyrir árin 1888 og 1889. Tekjur vóru nú settar nálægt 40000 kr. minni enn gjöldin, líkt og stjórnin hafði gert í fjárlagafrumv.sínu, og vóru bæði tekjur (einkum) og gjöld gerð miklum mun minni nú enní fjárlögunum fyrir 1886 og 1887. Tekjulækkunin saman borin við þau fjárlög var nú ein- kum í því fólgin, að aðflutningsgjald af áfengum drykkjum, er reynst hafði langt of hátt sett þá, var nú ætlað 80000 kr. minna á fjárhagstímabilinu eða 90000 kr. hvort árið ; enn árið áður hafði það orðið að eins 80123 kr. Gjöldin lækkuðu mest við það, að þingið færði styrkinn til gufuskipaferða hér, 18000 kr. á ári, niður um helming, og veitti nú rúmum 18000 kr. minna til vísindalegra og verklegra fyrirtækja enn þá, enda lét stjórn- ina (landsh. og ráðgj.) ekkert hafa til útbýtingar af því fé, er það veitti í þessu skyni (6180 kr.), þvíað sá andi varð nú ráðandi í fjárlögunum jafnframt meiri sparnaði, að láta stjórn- ina eina ekkert fé hafa til ótiltekinna umráða og útbýtingar. Helstu gjaldauka-nýmæli fjárlaganna vóru þau, að bókkaupafé landsbókasafnsins var hækkað um helming á ári, úr 600 kr. á ári, áður og til forngripakaupa vóru veittar 1000 kr. á ári í stað 700 kr. áður. Alþingiskostnaðurinn var settur hærri sök- um »alt að 5000 kr.« fjárveitingu »til kostnaðar við máls-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.