Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Blaðsíða 17
Löggjöf og landsstjórn.
19
nauðsyn og ef manndauði bersýnilega vofir yfir; að veitaHúna-
vatns- og Skagafjarðarsýslum alt að 10,000 kr. hvorri eigi fyr-
ir lengri tíma enn í hæsta lagi 10 ár, og að láta alþingi
í hvert sinn, er það kemur saman, í té nákvæmar skýrslur um
hallærislán úr landssjóði, sem veitt hafa verið milli pinga, sem
og um það, hvernig peim hafi verið varið«. J>etta varð endi-
legt í málinu þetta sinn.
5. Arnarstapa oy Skógarstrandar-uniboð. Nefnd var sett
eftir tillögum yfirskoðunarmanna til að íhuga reikningsskil
þess og hag (sjá l'r. f. á., bls. 20). Hún vildi að svo stöddu
ekki gera neina tillögu um reikningsskilin, sem henni póttu
þó mjög bágborin, aðra enn pá, að vísa »hinni nánari rannsókn
umboðsreikninganna fyrir árin 1884 og 1885, eftir að hinni
umboðslegu endurskoðun peirra væri lokið, til yfirskoðunar-
manna landsreikninganna 1886 og 1887«. Enn fremur lagði
nefndin til, »að allar pjóðjarðir í Arnarstapa- og Skógarstrandar-
umboði, pær sem nú eru í eyði og ekki verða bygðar með
vanalegum skilmálum, verði boðnar duglegum mönnum til á-
búðar næstu 5 ár landsskuldarlaust, gegn pví, að þeir svari
venjulegum smjörleigum eftir kúgildi þau, er jörðunum kunna
að fylgja, og vinni að jarðahótum og húsabótum eftir pví sem
um semur. Allar pær jarðir, sem gerðar eru falar til ábúðar
með pessum kjörum, skulu auglýstar í blaði pví, sem birtar
eru í stjórnarvalda-auglýsingar«. Báðar þessar tillögur vóru
sampyktar.
— Ut af ályktun alþingis 1885 um samning verðlagsskýrslna
(sjá Fr. 1885, bls. 12, nr. 5) skrifaði ráðgjafi landshöfðingja
14. maí, að samkvæmt tillögum landshöfðingja treystist hann
eigi að gjöra neitt í því efni, er tryggilegra væri eftir enn
áður; pað yrði og ekki gert með k:gsúrskurði, heldur með
lagafrumv. með líkum reglum og gilda í Danmörku og Færey-
jum, nefnil. að priðju skýrslurnar yrðu samdar af kosnum manni
fyrir hvern hrepp eða kaupstað, enn frá pví hafði landshöfð-
ingi ráðið.
Nú sendi ráðgjafinn reglugerð 7. nóv. um sérstakt nám
og próf kvenna í guðfræði (sjá Fr. f. á., bls. 12—13). Kon-
2*