Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Page 26

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Page 26
28 Löggjöf og landsstjórn. Haldóri Briem, 2. kennara á Möðruvöllum, veitt 1. kennara- embættið par 29. ágúst, enn 31. ágúst var Stefán Stefánsson, stud. mag., settur í 2. kennaraembætti. Paterson fór þaðan, með pví hann ekki heldur fékk inn- fæddra réttindi eptir beiðni sinni. Lausn frá prestskap fengu prestarnir Jón Sveinsson að Mælifelii (vígður 1842) og þorvaldur Asgeirsson í Steinnesi (v. 1862), báðir 2. mars, Jóhann Knútur Benediktsson á Kálfa- fellsstað (v. 1849) 19. mars, Snorri Norðfjörð í Hítarnesi (v. 1849) 16. apríl, Tómas porsteinsson í Reynistaðarpingum (v. 1842) 15. júlí og Stefán Jónsson á Kolfreyjustað (v. 1844) 2. sept. Lausn frá -sýslan var Jóni Árnasyni landshókasafnsverði veitt 5. júlí, með 800 kr. eftirlaunum í fjárlögunum, enn 29. septbr. var aðstoðarbókavörður Hallgrímur Melsteð skipaður aðalbókavörður í hans stað. Prestvígðir vóru lcandídatarnir Skúli Skúlason 15. maí til Odda, Einar Eriðgeirsson 11. sept. sem aðstoðarprestur séra porkels Bjarnasonar á Beynivöllum, og 6. nóv. Arni Björnsson, Jón Steingrímsson og J>órður G. Oiafsson til áðurnefndra prestakalla. — H. J. Ernst, cand. pharm., var veitt kgl. leyfi til að reka lyfjaverslun á Seyðisfirði, sem S. 0. Kjær (sjá Fr. f. á.) hafði afsalað sér. — N. Chr. Gram, kaupmaður á Dýrafirði, var 2. ágúst viðurkendur konsúll (consular-agent) á Islandi fyrir Bandarík- in með konungsúrskurði. Heiðursgjafir úr styrktarsjóði Christians konungs IX fengu petta ár Eiríkur Björnsson, hóndi á Karlskála, og Oddur Eyjólfsson, bóndi á Sámstöðum í Fljótshiíð, 140 kr. hvor, pví konungur hafði breytt pannig (8. júlí) upphæð gjafanna með viðauka við skipulagsskrá sjóðsins. Heiðursmerki. Landshöfðingi Magnús Stephensen 24. febr. dannebrogsmaður og s. d. amtmennirnir E. Th. Jónassen og Júlíus Havsteen riddarar af dannebr. og 29. maí séra Eiríkur prófastur Kúld riddari af dannebr.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.