Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Page 37

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Page 37
Bjargræðisvegir. 39 illa eins og árið áður, þó að nú flyttist næstum heimingi minna út af honum og var hann pó alt af að lækka í verði, enda opnaðist honum enginn nýr markaður. Saltkjöt steig í verði, er svo lítið fluttist út af pví sökum fjárflutningsins til Englands, og komst jafnvel upp í 50 kr. tn. hæst úr 33 kr. minst. TJll seldist fremur vel líkt og árið áður. Hér á landi gáfu kaupmenn, t. a m. í Reykjavík, líkt fyrir íslensku vörurnar og árið áður, lítið betur fyrir pær, er betur seldust erlendis, svo sem saltfisk (34 kr. skippd. af nr. 1) og hvítri ull (60 au. pd.). enn talsvert minna fyrir pær, er ver seldust, svo sem harðfisk (50—60 kr. skpd.) og lýsi (hrátt 22 kr., soðið 15 kr. tn.) og æðardún 15 kr. pd. Mikið orð komst á blautfiskverslunina, einkum á ísafirði, í Reykjavík og Gullbringusýslu, um haustið ; komu skuldir manna við kaup- menn jafnframt eyðslusemi henni af stað, enda sagt, að kaup- menn væru nú sem oftar tregir til að láta salt af hendi, nema móti skuldbindingum um fisk og jafnvel sumstaðar nú alls ekki viljað láta salt úti; hvað um gilti: blautfiskssala komst á, og putu enda margir upp aðrir enn reglulegir kaupmenn til að kaupa blautan fisk; varíbúðum í Rvík gefið fyrir lýsipundið af flött- um porski blautum almennast 50 au. og fyrir smáfisk 40 au., enn talið, að um 50 lýsipd. færi af flöttum porski blautum í 1 skippd. af purkuðum saltfiski. pótti pessi sala mjög skað- söm, enda freista par að auki til óforsjálni, leti og drykkju- skapar; pó kvað mikið að henni, jafnvel póað margir kaupmenn ekki vildu gefa sig við henni. Útlendar vörur vóru seldar í Reykjavík með sama verði og árið áður, nema kaffi, er par komst í 95 au., enn sum- staðar annarstaðar jafnvel í 1 kr. 10 au. pd., enda varð pað loks til að kenna mönnum að fara sparlegar með kaffi enn áður, auk pess, sem raddir fóru að heyrast á móti pví; kaffi- brúkun, eins til sveita, hefir verið talin svo mikil, að kaffi- drykkjan kostaði landsmenn árlega 1 miljón króna. |>að var líka sem komið væri við hjartað í mörgum, er kaffitolls-frumv. heyrðist getið á pingi nú, líkt og verið hafði 1885, enn pá fóru að koma pakkarávörp í blöðunum til peirra pingmanna, er mótfallnir höfðu verið kaffitolli.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.