Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Side 41

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Side 41
43 Skaðar og slysfarir. Reykjavík. í júní eða júlí fórst kátur á Yopnafirði og drukkn- uðu 3 menn, einn kvæntur. 15. júlí fór bóndi einn úr Holt- um í Rangárvallasýslu í sjóinn bjá Eyrarbakka. 1 ágúst (5.) drukknaði Björn Benediktsson Blöndal, bóndi frá Breiðabóls- stöðum í Vatnsdal, undir Jjyrilsklifi í Hvalfirði á heimleið úr Reykjavík; í sama mánuði fór útbyrðis af póstskipinu Romny á leið til Khafnar milli Yestmannaeyja og Færeyja stud. mag. Sigurður Jónasson frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal og drukknaði. í sept. (3.) skar maður sig til ólífis í Flóa austur. 20. fórust 4 menn af báti af Vatnsnesi í Húnavatnssýslu, 2 kvæntir, annar þeirra formaðurinn Jakob bóndi Bjarnason á Illugastöðum, sýslu- nefndarmaður. I sama mánuði drukknaði maður í Hjaltadalsá, Björn, faðir Jósefs yfirkennara á Hólum. í oA:t.-byrjun týndist maður í Karlsá í Skagafirði. 31. okt. drekti sér unglingsmaður í Reykjavíkur-gróf, úr Kjós. I nóv. (16.) drukknuðu 5 menn í fiskiróðri í Olafsvík, í lendingu; 17. drukknuðu 6 menn í fiski- róðri frá Húsavík, og sama dag drukknuðu 2 menn af báti í fiskiróðri frá Krossavík í Jústilfirði. í desbr. (13.) drekti maður sér í Reykjavíkurgróf, austan úr Arnessýslu; í sama mán. drukknaði og maður í Héraðsvötnum í Skagafirði, Aron að nafni, og 31. desbr. drukknuðu 11 menn úr Keflavík af 2 skipum, allir einhleypir. |>annig klykti árið út með manndrukknanir af róðrarskipum hér syðra; varð mikið tilrætt um pær að vonum og ýmsum útbúnaði sérstaklega um kent, svo sem báta- og segla-lagi, seglfestugrjóti o. s. frv., enn næsta árs Fr. verður að geyma að skýra frá tilraunum þeim, er f'arið var að gera um áramótin til að firrast slíkt tjón. Enn þá er þó ótalið, að um sumarið fórust í ís 3 hákarlaskútur af vesturlandi, hver með 9 til 10 menn. Smalamaður og stúlka (á grasafjalli) eystra viltust um sumarið í þoku þeirri, er af hafísnuin stóð, og týndu lííi. Um hálft annað hundrað manna hefir þannig farið í sjóinn þetta ár eftir þeim skýrsl- um, sem enn hafa sést. VII. Heilsufar og lát heldri manna. Heilsufar manna var talið í lakara lagi, þar sem þó engar stórsóttir gengu; lungnabólga gerði töluvert vart við sig, einkum

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.