Fréttir frá Íslandi - 01.01.1887, Blaðsíða 49
Menlnti og menning.
51
arar tillögu, er eigi sé minni enn helmingur móts við styrkinn
úr landssjóði«. Enn svo bætti pingið við 1500 kr. »til sveita-
kennara, alt að 50 kr. til hvers á ári, er veitt skyldi eftir til-
lögum sýslunefnda«. Af stefnu fyrri þinga í þessu máli hafði
það leitt, að menn keptust við að koma upp barnaskólahúsum
til að geta komið upp skólum og náð í styrk, er eigi fékst
ella, og liafa því fastir barnaskólar risið upp til sveita (t. a. m.
að Leirá, á Reynivöllum, á þingvelli og á Kröggólfsstöðum í
ölfusi), þótt erfitt hafi gengið. Og með því að það þótti
reynast sumstaðar, að almenningi yrðu lítil not að slíkum skól-
um og þeim enda eigi mögulegt að koma við víða hvar, þá tók
þingið nú þessa stefnu, jafnvel þótt liinir föstu sveitaskólar þættu
nú verða of mjög útundan.
Búnaðarskólamálum og búnaðarskólunum miðaði lítið á-
fram þetta ár; nú jók þó þingið fjárframiögur iandssjóðs til
hvers skóla (Hóla 3500 kr., Ólafsdais 2500 kr. og til Eiðaskóla
og búnaðarfélaga til samans 6000 kr., er útbýtt skyldi af
landshöfðingja eftir tiliögum sýslunefnda og amtsráða); aftur á
móti feldi þingið frumvarp (frá Ben. Sveinssyni) um að leggja
20,000 kr. úr landssjóði til handa búnaðarkenslustofnunum til
skiftingar milli sýslufélaga. — Allar sýslunefndir vesturumdæm-
isins höfðu »ráðið frá því að svo stöddu að stofna bún-
aðarskóla á Hvanneyri sameiginlegan fyrir suður- og vestur-
umdæmið«, og Borgfirðingum var neitað um (2000 kr.) lán til
að »styrkja Svein búfræðing Sveinsson til að reisa bú á Hvann-
eyri næsta vor«, enda höfðu þeir eigi greitt alla veksti af lán-
um sínuin (9000+1200-f3000 kr.) til Hvanneyrarkaupanna.
Sömuleiðis neitaði sýslunefnd Eyfirðinga (21. febr.) »að ganga
í félag við vestursýslurnar (Húnavatns- og Skagafjarðarsýslur)
um búnaðarskólann á Hólum«; enn fremur féllu búnaðarskóla-
mál fingeyjarsýslnanna niður.
Til sjómannakenslu veitti þingið nú 800 kr. á ári til
kennara og húsnæðis í Reykjavík og 1000 kr. til kenslu »ann-
arstaðar«, enda var eitthvað stofnað til kenslu á Isafirði um
haustið, enn í Hafnarfirði varð eigi af því fyrir árslok. I
Reykjavík nutu þar á móti 9 piltar kenslu í sjómannafræði
hjá Markúsi skipstjóra Bjarnasyni, og hann sá um ísl. þýð-
4*