Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Qupperneq 17
19
hringurinn þýfður að innan, og eru margar þúfurnar líkar leiðum,
en snúa þó ýmislega. Leiði Heggs er sýnt, og er það miklu nýleg-
ast að sjá. En sú er orsök til þess, að því fylgja, að sögn, þau um-
mæli, að hver ábúandi á Heggsstöðum skuli endurbæta leiðið, svo
honum búnist þar vel, og kvað því hafa verið hlýtt til þessa.
Aðrar fornleifar eru þar ekki að sjá. Þykir mér liklegt, að hring-
urinn hafi verið til þess gjörður, að vera grafreitur, en verið síðar
haldinn að hafa verið dómhringur vegna líkingar.
9. Ný tilgdta urn Hranastaði.
í Árbók fornl.fél. 1900, bls. 27 hefi eg sett fram þá tilgátu, að
rústin, sem Árni Þorsteinsson sýndi mér á hálsinum rnilli Augastaða
og Sigmundarstaða, kynni að vera rúst Hranastaða, sem Landnáma
nefnir (I. 21.). En í sumar var mér bent á annað fornbýli, sem ef
til vill er enn líklegra til þess. Þar heitir nú Ássel, því þar var á
sínum tima selför frá Stóra-Ási. Er þar seltóft eigi fornleg. En
sé vel að gætt, má sjá merki til fornrar rústar út undan endurn
hennar. Þessi staður er í beinni línu milli Augastaða og rústarinnar
við Grímsgil (nú Hringsgil) og hefir því verið í landnámi Gríms
föður Hrana og Þorgils’s auga. Er óneitanlega líklegast, að þeir
bræður hafi báðir búið i landnámi föður síns. Og sé Ássel raunar
Hranastaðir, þá hefir eigi verið langt milli þeirra og Augastaða.
En hvaða bær hefir þá verið á hálsinum milli Augastaða og
Sigmundarstaða? Mundi hann ekki hafa heitið á Hálsum ? Eins og
kunnugt er heitir sveitin Hdlsasve.it. Það mun vera álitið, að liún
hafl nafn af landslagi og væri það að vísu ekki fjarstæða, en þó
verður því varla haldið fram, að þar sé sérstakt tilefni til þess,
fremur en í nágrannasveitunum. Engu ólíklegra að minsta kosti
væri það, að sú sveit, eins og margar aðrar víðsvegar um land,
hafi verið kend við einstakan innansveitar bæ. Nú er að vísu eng-
inn bygður bær í Hálsasveit, sem heitir á Hálsum. En það nafn
ætti beinlínis við þenna eyðibæ, sem um er að ræða. Og það var
líka sérstaklega eðlilegt að hann týndi nafni sínu, er hann var kom-
inn í eyði, ef hann átti samnefnt við svæðið, sem hann stóð á og
kallað er á Hálsunum. Er líklegt, að Hálsaland, sem Torfi Val-
brandsson fekk með konu sinni, hafx tekið yfir þetta land, ásamt
Signýjarstaða- og Uppsalalöndum, er sagan sýnir að hann átti. En
landið, sem Reykholt á norður við Hvítá og nú er kallað Norður-
landið, á víst ekkert skylt við Hálsaland; það hét fyrrum Háfsland,