Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Síða 35

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1908, Síða 35
37 Syðsta byggingin, »hofið«, gat ekki orðið rannsökuð i þetta sinn, enda bar ekki brýna nauðsyn til þess að svo stöddu. Breiddin virð- ist vera um 6 m. og lengdin kringum 27 m., en austurendinn alls- endis óskýr; getur verið að hann hafi verið í lögun sem hálfhring- ur, svo sem oft er á hoftóftum. Vesturendinn allur gleggri og greini- leg bæði hornin. Um 18 m. frá vesturenda virðist óljós vottur um þverbálk. »Hofið« er um 34 m. fyrir sunnan bæjartóftina og hefir verið allbreitt bil milli þess og miðbyggingarinnar. Það hefir náð lengra vestur en bæjartóftin; þverbálkurinn í því hér um bil í sömu línu og vesturgaflhlað hennar. Hvernig stendur nú á því að svo fornar tóftir hafa haldist hér óbreyttar, úr því að bygð hélst þó við í Helludal? Ástæðan er sú, að bærinn hefir verið fluttur ofar á túnið, og það eflaust þegar er hinar upprunalegu byggingar voru orðnar fúnar og óhæfar. Tóftir hinna upprunalegu bygginga hafa fengið að standa, ef til vill óhaggaðar að mestu. En hvað olli fiutningi bæjarins? Landnámsmaður sá, er hér bygði fyrstur, hefir án efa bygt bæ sinn um sumar eða milli vetra og hefir honum verið þá ókunnugt um hversu fannir legðust á túnið á vetrum, en fellin fyrir ofan valda strengjum og sköflum á túninu. Nú hefir einmitt hittst svo á, að hann bygði þar á túninu, er skafiar urðu og aðfenni mikið að húsum; en litlu ofar á túninu blés ætíð snjó af og því hefir bærinn verið þangað fiuttur er hann var bygður upp í næsta skifti. Á því fræddu mig þeir Helludalsbændur hversu hér er háttað fannalögum, og kann eg þeim beztu þakkir fyrir það svo sem og aðra aðstoð þeirra við rannsóknina. Matthías Þórðarson.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.