Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 12

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 12
12 Málið er kennt við norska stúlku, sem hét Appollonia Swartskopf1)- Hún hafði verið trúlofuð Niels Fuhrmann, norskum manni, sem hafði komið hingað 1718, til að vera hér amtmaður, en hann hafði brugðið við hana eiginorði. Hún hafði kært hann fyrir og fengið hann dæmdan af hæzta-rétti, 10. júlí 1719, til að giftast sér, og greiða sér 200 dali árlega, unz úr því yrði, ef það frestaðist. Vorið 1722 hafði hún farið hingað með Hólmsskipi og komið 29. mai tii Bessastaða, þar sem amtmaður átti heima. Amtmaður hafði þá fengið henni húsnæði sitt til afnota, en setzt sjálfur að í tjaldi á túninu og hafzt þar við allt til hausts, unz búið var að breyta húsakynnum. Þau amtmaður höfðu matazt saman og farið allvel á með þeim fyrst í stað, en ekki hafði hann gengið að eiga hana. Hjá amtmanni hafði verið fyrir, og var enn, ráðskona dönsk, Katharina Holm, ekkja, og kærasti hennar, Pipers að nafni, fulltrúi amtmanns. — Vóru þau Pipers gift er málið var tekið fyrir. — Vorið eftir að Appollonía hafði komið, hafði amtmaður farið til Grindavíkur og flutt heim með sér dóttur frú Holm, Karen, sem þá var nýkomin með Grindavíkur-skipi frá Höfn. Mun hann hafa ætlað að ganga að eiga hana. Þeim mæðgum, einkum frú Holm, var illa við AppoIIoniu og henni að sama skapi við þær. Amtmaður hætti um haustið að matast með henni og tók þá vist hennar að versna. Sunnudaginn 30. april næsta vor, 1724, varð Appollonía skyndilega mjög veik, eftir að hafa borðað 2 vöflur. Náði sér þó nokkuð aftur, en varð enn veikari næsta miðvikudag, 3. maí, eftir að hafa borðað hrísgrjónavatnsgraut, sem henni hafði verið borinn. Lá hún síðan rúm- fest í 7 vikur, fór æ versnandi og andaðist þriðjudaginn 20. júní. Var jörðuð í Bessastaða-kirkju 29. s. m. af séra Halldóri Brynjólfssyni á Útskálum, síðar Hóla-byskupi. Appollonía átti bróður í Höfn, Frantz að nafni. Veturinn eftir að hún dó, lýsti hann því fyrir konungi, Friðriki 4., að hann hefði heyrt, að systir sín hefði verið ráðin af dögum, og óskaði eftir, að bæjar- fógeta yrði falið að yfirheyra því viðvíkjandi 2 menn, sem þá voru í bænum og kunnugir málavöxtum. Konungur skrifaði stiftamtmanni 16. mars (1725) og bað hann láta taka málið hér fyrir undir eins og hægt væri. Þá var sýslumaður i Gullbringusýslu Cornelius Wulf landfógeti. Hann átti heima á Bessastöðum og var fyrirsjáanlegt að hann myndi verða að bera vitni í málinu. Þurfti því að skipa setudómara og ') Líklega öllu heldur Schwartzkopf; svo er nafn hennar ritað í fyrsta bréfi konungs um þetta mál (16. marz 1725) og svo er ritað nafn Daniels S., sem var gullsmíðameistari í Höfn um þetta leyti.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.