Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 13

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 13
13 lagði stiftamtmaður til í bréfi til konungsritara 24. apríl, að Páll lög- maður Vídalín og Sigurður Sigurðsson, sýslumaður í Árnessýslu, yrðu skipaðir rannsóknardómarar, en Frantz Sw. yrði gert skylt að mæta fyrir réttinum sem sækjandi eða fá annan til þess í sinn stað. — Konungsritari féllst ekki á þetta, vildi láta skipa Sigurð sækj- anda og einhvern andlegrar stéttar mann dómara. Stiftamtmaður lagði þá til 5. maí, að Þorleifur Arason, prófastur í Rangárvallasýslu, og Hákon Hannesson, sýslumaður í sömu sýslu, yrðu skipaðir dóm- arar, því að hann hafði frétt, að Páll lögmaður myndi eiga erfitt með að gegna því starfi sökum veikinda (kviðslits og sjóndepru). Fáum dögum siðar, 9. maí 1925, gekk Frantz fyrir notarius publikus í Höfn og með honum annar maður þar í borginni, Svend Larsen, trésmið- ur, er verið hafði samtíða systur hans á Bessastöðum, meðan hún lifði. Lagði Larsen fram skrifaðan vitnisburð um, hvers hann hefði orðið þar áskynja viðvíkjandi Appolloniu og hvað hún hefði látið í ljós við hann, m. a. þetta: Skömmu eftir alþing 1723 hafði hann heyrt hana segja við Sigurð Ámundason múrara, sem var fyrir henni er hún ætlaði inn: »Dreptu mig nú, þá geturðu fengið 50 dali, sem þér hafa verið lofaðir«. Amtmaður varð var við þetta og kallaði alla heimilismenn inn til hennar, hvern eftir annan, en Piper stóð fyrir utan dyrnar og sagði við hvern, sem inn gekk: »Segðu nei, annars fer illa fyrir þér«. Þegar röðin kom að Larsen, bar hann það hiklaust, að hann hefði heyrt Sigurð segja það í eldhúsinu hjá lanfógetanum, Cornelíusi Wulf, sem þá var einnig á Bessastöðum, að madama Holm hefði boðið sér 50 dali til að drepa ungfrú Swartskopf. Næsta vor, 1. maí, kvaðst Larsen hafa komið inn til ungfrú Swartskopf og hafði hún þá verið mjög veik um nóttina; kvaðst hafa orðið það eftir að hafa borðað vöflur. Því næst hafði vinnukona amtmanns sagt Larsen, að madama Holm hefði spurt sig, hvernig því væri háttað með ung- frú Swartskopf, og þegar stúlkan hefði svarað, að hún hefði haft upp- köst um nóttina, þá hefði madama Hólm sagt: »Djöfullinn fari í hana; úr því svona er, þá getur hún lifað 10 ár enn«. — Enn hafði Larsen litið inn tveim dögum síðar; þá var ungfrú Swartskopf nýbúin að borða graut; kvaðst hún álíta það óhætt, því að Maren, vinnukona, hefði borðað af honum með sér. Um nóttina hefðu þær báðar orðið mjög veikar. Stúlkan hefði síðan fengið meðöl og komizt á fætur eftir fáa daga, en ungfrú Swartskopf hefði engin meðöl fengið, en legið og dofnað öll, unz hún dó. Nokkru síðar hefði Maren verið að kvarta yfir því í eldhúsinu, hve heilsa sín væri slæm. Kvaðst Larsen þá hafa spurt hana um orsökina og hefði hún þá svarað: »Þegar ég át af grautnum með henni ungfrú Swartskopf, þá át ég djöfulinn ^
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.