Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 21

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 21
21 var setið yfir Maren í tvo daga enn (21. og 22. sept.). Vitnisburður hennar gekk vitanlega á móti öllu því sem haft hafði verið eftir ungfrú Swartskopf eða aðrir höfðu borið og saknæmt var. — Veik- indi hennar sjálfrar t. d., höfðu ekki stafað af grautnum, henni hafði ekkert orðið meint af honum, hún hafði verið lasin af öðru áður og siðar o. s. frv. Hún virðist ekki hafa komist í nein vandræði með að svara því sem hún var spurð um hvern dag, enda mátti nokkuð vita jafnan fyrirfram, hvers spurt myndi verða, — og svo gat verjandi og amtmaður, og Þorleifur prófastur, ráðið því, hvort hún þyrfti að svara þeirri og þeirri spurningu, sem fyrir hana var lögð af sækjanda, eða ekki, en helzt spurðu þeir hana sjálfir á víxl. — Mánudaginn 24. sept. kom Maren enn og spurði þá Þorleifur prófastur hana beinlínis, hvort hún hefði átt nokkurn þátt í að ráða ungfrú Swartskopf af dögum. Hún neitaði því afdráttarlaust. Hákon sagði að sækjandi ætti fyrst að koma með sínar spurningar til vitnanna, þá þeir verjandi og amtmaður, en dómendur síðast, ef þeim virtist nokkurri spurningu gleymt. Nú kom kona Kiers vísilögmanns fyrir réttinn með bréf frá hon- um, dags. þennan sama dag, mótmæli gegn því, að Maren leyfðist að bera vitni gegn eiðfestum vitnisburði konu hans. Er Maren nú ekki kvaðst hafa meira fram að bera til skýringar í málinu, mun hafa verið lokið yfirheyrslu hennar, og þrýtur nú það gagn, sem hér hefir verið farið eftir, útlegging af málinu, að svo miklu leyti, sem það hefir verið á íslenzku, með þeim málsskjölum í, sem nú hafa verið nefnd. Er óvíst, hvað fram hefir farið fyrir réttinum næstu daga, en til er útlegging af svari dómanda til sækjanda, dags. 28. sept., við bréfi hans frá deginum áður. Hafði hann þá enn Iátið í ljós, að hann hefði oftsinnis tekið eftir því, að vitnin hafi ekki mátt svara spurn- ingum hans samkvæmt skyldu þeirra og eiði, heldur hefðu þær ein- ungis verið bókaðar. Dómendur bera á móti því, að haft hafi verið á móti öðrum spurningum en þeim, er voru ónauðsynlegar og ekki til að skýra málið, heldur að eins til að lengja réttarhöldin, og vara þeir sækjanda síðan við því að koma með aðrar spurningar en þær sem gagnlegar séu í aðalmálinu. En sama daginn, sem þeir skrifuðu þetta svar til sækjanda (28. sept.), ritaði annar þeirra, Þorleifur pró- fastur, stiftamtmanni, hvernig komið væri málunum og að hætta væri á að óánægja risi út af úrskurði hans um yfirheyrslu vitnanna (sbr. bréf stiftamtmanns til prófasts 27. febr. 1726); en hinn dómandinn, skifti amtmanns af þeim, og má sjá af svari stiftamtmanns 27. febr. 1726, að honum hefur mislíkað þetta.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.