Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 42

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 42
42 Þó eg sé búinn að skrifa talsvert saman um Þingvöll fyrir sjálfan mig, þá á það samt enn lángt í land, því eg þarf að smala saman um allt, og er það ekki fljótlegt; eg er alltaf að frétta til manna hér og hvar, sem eitthvað vita, eða sem eg hefi von um að eitthvað viti, og hefi eg ekki enn náð í þá alla; líka þarf eg að fá hitt og þetta að vita um aðra þingstaði til samanburðar, bæði um stœrd og lag á búð- um og dómhringum etc. Því maður þyrfti að komast sem næst, hvernig allt þess konar leit út í fornöld, ef unt væri. Hér getur því ekki verið að tala um nokkra borgun handa mér að svo komnu. Það, sem verst er, er það, að eg er mjög illa að mér í gömlu lögunum, eins og þér getið nærri, og er það ekki gott, því þau þarf maður víða að taka til hjálpar á þeim stað. Ef menn eiga að skilja Þíngvöll, þá verða menn að mestu leyti að vita, hvað þar fór fram, og hvernig það gekk til, til þess að geta sennilega fundið þá staði, sem voru lögákveðnir til þarfa þingsins, og vita til hvers þeir voru hafðir. En ólukkan er, að hér stendur maður hjálparlaus, af því þeir, sem hafa vitað um lögin, hafa lítið þekt Þingvöll; en það hvorutveggja er rannsókn, sem verður að vera samhliða, því annars verður hún eins og haltur klár. Mig langar til að vita, hvað þjer haldið að lögbergisganga sé. Það er ekki greinilegt í Grágás og handritin eru ekki vel samhljóða í þeim pósti. Af Eglu, kap. 83, og Fornmannasögum, II. bls., 172, sést, að það hefir verið eins konar almenn formúla eða prósessíón, máske á föstudaginn fyrra í þingi, samanber Grágás? En hvað gerðu menn þá? Er það sama og þingsetningin? Eða er það áður en dómar fara út? Það er eins og öllu sé þá niðurskipað frá Lögbergi, eða á Lög- bergi, það er ekki gott að sjá. Á föstudaginn voru og lesin upp þíng- sköp, máske á eptir Lögbergs-gaungunni; það er eins og hún sé fyrsta og stærsta aðalformúla þíngsins? Það er eins og goðar eigi að setja niður dómendur sína í hamra- skarðinu um það leyti eða rétt á eptir að Lögbergis-gángan fer fram. Hér er um lögboðinn stað að tala, sem er hafður til þarfa þingsins, og svo er um fleira. Eg vildi við hentugleika fá að vita um þetta lauslega. Eg skrifa yður þessar línur til gamans, og til að benda yður á hitt og þetta, sem þarf að athuga þessu viðvíkjandi. Fyrirgefið þessar fáu línur. Yðar vin Sigurður Guðmundsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.