Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 48

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Side 48
48 íngar geta orðið, hvað þörf sé á að athuga eða ekki; eg hefi máske sérskilda skoðun á því. Þar undir getur margt heyrt. Á Þingvalla-fundinum hreyfðu Borgfirðíngar þeirri uppástúngu, að þeir vildu byggja skýli á Þíngvöllum til fundarhalds, að mér skild- ist, eins og hestarétt, klaungrað upp úr grjóti og torfi og tjaldað yfir, fyrir það sem fengist. — Eg var kosinn í nefnd í því máli og leiddi eg mönnum fyrir sjónir, hvað aðgæzluvert það væri, að byggja nokk- uð á þeim stað, sem gæti orðið þjóðinni til vanvirðu, þar sem svo margir ferðamenn kæmu, og var nefndin treg að fallast á það, en þó félst hún loksins á mína uppástúngu. Eg sá að eg varð að miðla málum, því margir voru á móti mér, og stakk eg því upp á, að menn gérðu tópt úr grjóti, kalkaða, svo sterka, að hún væri ekki alltaf að hrynja niður, og að það sem gert væri, væri að gagni, svo að menn gætu hlaðið ofan á það og aukið það, ef menn vildu. Eg stakk uppá að hafa tóptina kringlótta, líka að stærð og þær gömlu lögréttur, 16 álnir þvert yfir og 3'/2 al. til 4 á hæð, með sperrum yfir, sem allar gengju upp í odd, og þar yfir mætti hafa eins konar hrauktjald til bráðabirgðar og með hringbekkjum í kring, þá gæti það vel rúmað 200 manns. Okkar áætlun var, að þetta myndi kosta 12—14 hundruð dali. Þetta þótti mönnum samt ókjör og mótmæltu menn mikið nefnd- inni. Eg þóttist samt taka það minnsta til, sem hugsast gat, og hvað úr þessu verður-, skal eg láta ósagt. Þar var og hreyft nýju máli, sem þér sjáið af Þjóðólfi, um minn- isvarða Ingólfs Arnarsonar; þar var eg ekkert við riðinn, en skoðanir manna voru mjög einkennilegar fyrir þennan tíma og á hæfilegri sundrung, sem einkennir íslendinga nú. Eins og þér víst búist við, þá sá maður á höfuðleðrunum og axlaburði flestra, að þeir vildu flestir ekkert þess háttar hafa, en þá sízt í Reykjavík. Sumir vildu byggja hús á Þingvelli í minníng Ingólfs og hafa málaða mynd hans inní því, eða sameina hús og mynd, án þess þeir vildu hugsa sér, hvernig það ætti að vera. Aðrir vildu safna sjóð, mér skildist til að styrkja ís- lendinga í sáluhjálparefnum, eða til einhvers, sem til þyrfti að taka. Sumir held eg hafi hugsað um uppástúngu Halldórs Fr., en svo að segja aungvir um það sem hér átti við. — Eg segi frá þessu í þeim tilgangi, að þér vitið hugsanir manna í þessu efni, því mér finnst að þetta mál sé í alla staði þess vert, að því sé gaumur gefinn, bæði sögulega og iþróttlega. Og þið þarna ytra getið varla leitt hjá ykkur að segja álit ykkar á þessu máli, annaðhvort í líka stefnu og áður hefir verið hreyft eða þá öðruvísi. Mína skoðun á málinu sjáið þér að mestu leyti í ritgjörðinni No. 2 í Þjóðólfi, sama efnis, en í þeirri þriðju, ef Halldórs er meðreiknuð. — Seinustu No. af íslending sýna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.