Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Qupperneq 65
65
sem bendíngu, sem mér reyndar þykir þó nokkurs varðandi, því mér
blöskrar að heyra predikanir sumra manna í því efni; eg játa samt,
að þeir 2, sem þér nefnduð, hafi verið með þeim lökustu hér sunn-
anlands; en það er skoðun, sem þarf að hrynda, ef unt væri, því hún
er ótrúlega skaðleg og drepur allar tilraunir til að koma landinu
upp og alla föðurlandstilfinníng.
Eg býst nú við, að eg sé búin að þreyta yður með þessu lánga
rugli og bið yður að forláta allt saman.
Yðar vin
Sigurður Guðmundsson.
Eg þakka yður fyrir Cataloginn, sem mér þótti gott að fá; hann er
furðanlega stuttur, og nær var hann fyrst prentaður?
(S. G.)
10.
Reykjavík 16. desember 1868.
Góði vin!
Þó eg fengi ekkert bréf frá yður síðast, þá ætla eg samt að
skrifa yður fáar línur, þó eg reyndar geti sagt yður litlar fréttir. Lítið
hefir safninu miðað áfram síðan seinast, en samt hafa það verið góðir
hlutir, sem það hefir fengið, til dæmis: Skrautlamir frá Grenjaðar-
staða-kirkjuhurð, er kvísluðu sig út um alla hurðina, í býsönskum stíl,
kirkjuhurðarhringur silfursmeltur frá Stafafelli og tvær stórar plötur,
allar silfurrósaðar, af sömu hurð, merkilegan kvenhött, sem eg hélt
að væri orðið ómögulegt að fá, og útskorinn stokk, sem á eru skornir
allir þeir helztu karlmanns- og kvenmanns-búningar frá um 1730,
bóndi, kona i hempu, stúlka ógift, prestur og tveir heldri menn etc.,
og fleira, sem er mikið merkilegt viðvíkjandi sögu landsins á fyrri
og seinni öldum. En þess háttar þykir mönnum hér ekki mjög merki-
legt; ef það er ekki frá 10. og 11. öld, þá þykir þeim það einkisvirði.
En sjálfir þekkja þeir þó ekkert til þjóðhátta íslands, nema svo sem
fram undir síðustu aldamót; það er ekki ofmikið sagt um þá flesta.
Það versta er, að flestir af þeim heldri kærasig ekkert um safnið (heldur
en annað), og eg hefi komizt að því, að það muni vera skoðun bæði
biskups og stiptamtmanns, að þeir hafi enga skyldu að rækja við
safnið. Líklega hánga þeir í því, að það er eingin konungleg stað-
festing fyrir því, því allt er ónýtt, nema á því sé danskur stimpill.
Ólukkan er líka, að Jón Árnason er líka eins konar undirtylla hjá
5