Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Síða 79
79
eru til samans c. 16. álnir á lengd og vel há og breið. Þau eru á fram-
kirkjuloptinu. Líka hefir stiptsbókasafnið verið stækkað allt að helm-
ing, svo bæði þessi söfn hafa fyrst um sinn nóg húsrúm, þó einkum
stiptsbókasafnið. Alþíngistíðindin og bókmentafélagsbækurnar eru flutt-
ar upp í skólabibliotek, og þar kom mönnum saman um að væri
hentugt með tímanum að búa til herbergi handa því uppi á lofti,
sem gæti orðið bæði stórt og hentugt. Jens bróðir yðar hefir vist
skrifað yður um þetta. Þannig held eg að þessu sé nú komið fyrir
svo hentugu, sem unt er fyrir öll þessi félög eins og stendur, svo
að öllu þessu sé þannig bjargað í nokkur eptirfylgjandi ár. — Safnið
hefir nú fengið allt að 830 nr. í allt og eru þau mörg góð. Eg er
búinn að kasta upp allri skýrslunni, um allt það, sem komið er til
datum, og ætlast eg til, að eg geti sent það með fyrsta póstskipi í
vor. Það mun allt verða álíka stórt og fyrri. Bæði eru númerin fleiri
og svo mörg af þeim merkari. Eg held að það sé nauðsynlegt eink-
um í byrjuninni, að skrifa nokkuð ítarlega um þá hluti, sem komnir
eru, einkum þá sem sjaldgæfir eru og óþekktir af alþýðu. Það skýrir
fyrir mönnum tilgang safnsins og kann að auka áhuga alþýðu á safn-
inu, sem mér finst að heldur sé að minka, eins og á öllu því, sem
hefir staðið nokkur ár, því þá vilja menn fálma eftir nýju.
Líka þarf að gefa skýrslu um þá hauga, sem hefir verið grafið í
nýlega, og jafnvel að skrifa eins konar leiðbeining um, hvernig grafa
á í hauga. Eg hugsa mér skýrsluna, eins og eins konar tegund af
fornfræðisannál, og jafnframt eins konar ruslakistu til kúltúrsögu ís-
lands, einkum fram á 15. öld, sem maður geti með tímanum fundið
í lýsing af vopnum, byggíngum og búníngum etc., einkum fram til
1500, og séð flesta þá hluti á safninu, eða þá gamlar myndir af því,
en það sem viðvíkur fornöldinni og allt að 1500 verður að útskýrast
sér í lagi, að undanteknu sumu, t. d. sumum vopnum og kvenskarti,
sem sést á safninu. Það er auðvitað, að þetta getur ekki orðið nein
alveg samanhángandi heild, en lítil byrjun getur þó verið betri en
ekkert, til að vekja áhuga manna; og þess vegna held eg það væri
mjög nauðsynlegt, að skýrslan gæti komist út í vor, ef unt væri. Eg
vona að þér hafið fengið frá mér bréfið um dúkkuhausinn. Eg fer nú
að láta smíða stóran skáp fyrir þess kyns dót. Það er svo erfitt að
fá hér nokkuð gert, að maður brúkar þrefalt meiri tíma til alls, en
annars væri þörf á. —
Hér er allt slegið í dúnalogn, einkum síðan Jón Olafsson fór.
Allt virðist mér hér sofandi og aðgjörðalaust, svo eg er dauðhrædd-
ur um að allar þær framkvæmdir, sem byrjaðar voru í fyrra, sofni
nú alveg útaf. Vitleysan vakir samt, þar sem eru tómthúsmennirnir