Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 91

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 91
91 verið. Það væri vert að gæta að, hvort ekki sæist votta fyrir eins og mjórri ræmu, sem héngi frá kverkinni og ofan að hné að framan, eða neðar. Það hneykslar mig að sjá slörið og barba þvert yfir hök- una, alveg eins og á nunnu, og sloppinn lika líkan, með eins og uppslögum; það getur ekki verið almennur búníngur. Víst er um það, að eg hefði viljað styrkja Þjóðvinafélagið, það sem eg get, en minn kraptlausi vilji megnar sama sem ekkert, og síst hér, en Norðlendínga þarf eg ekki að minna á það, að eg held; að minsta kosti held eg að Skagfirðíngar séu ekki eftirbátar í því efni, og þá gæti eg helzt verkað á. Hér eru menn vit- og vilja-lausar skepnur í öllu, eða roðatikur embættismanna og búðarloka. Enga rit- gjörð hefi eg tilbúna í neina stefnu, og allra síst pólitík. Eg hefi að eins söfn til ritgjörða um ýmislegt, einkum fornfræðilegt, t. d. búnínga og þess háttar, sem setja mætti saman i góðu næði. Líka hefi eg allt af verið að tína saman sitt hvað um Þíngvöll, og við og við fengið sitt hvað, þó smátt sé; því er safnað sér i hylki; það þyrfti nauðsyn- lega að setjast saman í eitt. — Allar bjargir eru hér bannaðar og skrælíngjaskapurinn svo mikill, að því getur enginn ærlegur maður trúað!! — Þegar eg loksins get haft herbergi út af fyrir mig, sem eg ekki hef getað áður haft, verður maður líklega að sitja allan veturinn í kulda og, ef tii vill, ljóslaus, því bærinn er alveg kolalaus og þegar mólaus; — menn mega, ef til vill, þakka fyrir, að það verði soðið, sem sjóða þarf. Hvort nokkur ögn af steinolíu fæst flutt híngað, er óvíst. Hér er sem sagt versta ástand í öllu. — Steinvopnunum hefi eg komið öllum fyrir í skáp sér, sem eg ætlaði varla að fá efnið í né gler i. Nú er eg kominn í stökustu vandræði með safnið, því herbergisrúmið er gjörsamlega þrotið. Það mætti pakka saman þaf lakasta, ef pláss væri til að geyma það í, en það vantar lika. Hér þarf eitthvað að gera; — sjáum nú hvað pólitíkin gengur. — Hvað sem því líður, þá vona eg samt, að skýrslan komi út í vor. Það er lífsspursmál safnsins, ef ekki á að deyja út allur áhugi alþýðu á því. Eg veit, að yður er farin að Ieiðast þessi vandræða-vella, sem eg vildi óska, að ekki hefði ofmikla ástæðu. Forlátið miðann. Yðar vin Sigurður Guðmundsson. Hér er allt slegið í dúna-Iogn; pólitik heyrist ekki nefnd; það lízt mér ekki á. Það er eins og allir hafi oftekið sig með gauragang- inum í vor. Betra minna og jafnara. (S. G.)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.